Spánarmyndir
Nautabaninn rekur hnífinn á kaf í höfuð nautsins sem baular af sársauka... Það lifði af... Önnur stunga... Annað sársaukabaul, mér leið hryllilega og tók ekki fleiri myndir... Nautabaninn stingur aftur og nautið veinar aftur... Áhorfendunum er flestum illilega misboðið og eru farnir að púa... Nautabaninn fer því að stinga oft og hratt í höfuð nautsins, það rekur upp sitt hinsta langa sársaukabaul sem hefst á fyrstu stungunni, fjarar síðan hægt út, það limpast niður á síðuna og aðalnautabaninn (sem stóð bara hjá á meðan hinn stakk) tekur að hoppa um af gleði... Þarna fékk ég að horfa upp á fjögur naut fara þessa leið og er enn að ná mér... Þetta er þjóðaríþrótt Spánverja dömur mínar og herrar. :(