Birkir sat við tölvuna sína og spjallaði við fólk sem að duldist bak við furðuleg gælunöfn, rétt eins og hann sjálfur. Hann hafði verið að leita sér að fallegri og skemmtilegri stelpu á hans aldri sem að væri til í að hitta hann. Enn sem komið er hafði leitin engan árangur borið, jafnvel þótt að þessi leit hafði nú staðið í rúm tvö ár. Birkir var við það að gefast upp, en það var ekkert nýtt. Hann hafði einu sinni hitt stelpu á internetinu sem að honum geðjaðist að, þau hittust og neistarnir flugu. Áður en þau vissu að voru þau byrjuð saman. Þau höfðu verið saman í rúma þrjá daga þegar að hún hélt framhjá honum og allt fór fjandans til.
Píng! -Ný skilaboð biðu Birkis á skjánum.

"[Fjörleg] Hæ! Ertu til í spjall? :)"

Að venju brást Birkir við þessu játandi og upp hófust lítríkar umræður um bíla, hvernig þeir virka og hvernig frændi hennar Fjörlegar kunni allt á þá. Þau sendu hvort öðru myndir af sér. Fjörleg var, að sögn, um 172 cm. á hæð, 68kg á þyngd með ljóst hár og skærblá augu. Myndin staðfesti þetta allt saman. Birki leist vitaskuld mjög vel á þessa stúlku og þegar leið á daginn ákváðu þau að hittast að tveimur dögum liðnum á kaffihúsi niðri í miðbænum.

Ooooog ritstífla.... :Þ


alliat@simnet.is

aftur á aðalsíðu...