 | Þessa mynd tók ég að viðgerðarsvæði Esso. Ég fékk leyfi til þess að spássera um svæðið og taka myndir gegn því að ég lofaði að nota myndirnar ekki gegn þeim á neinn hátt. :) |
| |  | Ah, gömlu góðu dagarnir... Ég gríp enn í þessa dýrgripi annað veifið. -Myndin er tekin í rúmminu heima. |
| |  | Ég var í rúmar fjórar klukkustundir að framkalla þetta kvikindi, en ég er loksins orðinn nokkuð sáttur. Myndefnið fann ég á smábátahöfninni fyrir neðan Hamborgarabúllu Tomma™. |
| |  | Gleymdi að ég var með svarthvíta filmu, en myndin skilaði sér samt ágætlega að mínu mati. :) -Þessa tók ég á Austurvelli. |
|
|  | Ég þekki mig ekki vel í Hafnafirðinum, en þetta er tjörnin þarna sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. :P |
| |  | Þessi er tekin í skóræktinni í Fossvogsdalnum. Þetta tré hefur séð betri daga, en það var orðið mikið sport á tímabili að binda reypi við það og spranga. Skógarvörðurinn skar síðan á þetta. :( |
| |  | Tóta og tíminn. Í senn bestu vinir og harðskeyttir óvinir. Tóta er kærastan mín og klukkan er staðsett á ganginum heima. Hugmyndina fékk ég að láni frá Snefu frænku. |
| |  | Ég er rosalega hrifinn af svona ryðguðu járnadrasli, en ég hef ekki glóru um hvers vegna. Þetta stykki fann ég á kópavogshöfn. |
|
|  | Tekið í gegn um röð af svona trégrindum sem notaðar eru til að halda við skip og báta á slippum (sést betur á næstu mynd), en ég fann þetta myndefni á slippsvæðinu nálægt Kolaportinu. |
| |  | Trégrindurnar sem myndin á undan er tekin í gegnum. |
| |  | Þetta er bíllinn minn... Hann er ljósmyndafyrirsæta bílanna... Sama hvernig byrta, veður og hve hreinn hann er, hann kemur alltaf geggjað út á ljósmyndum hjá mér! :D |
| |  | Björgunarhringur, Reykjavíkurhöfn. |
|
|  | Gremlingsdúkkan mín, Gizmó. |
| |  | Dekkjahaugurinn frægi á athafnasvæði Hringrásar skömmu fyrir brunann. |
| |  | Laukur á bekk á Austurvöllum. |
| |  | Kranar bera við himinn í Hafnarfirðinum. |
|
|  | Rúlla af vírneti, nærmynd. Rúlla þessi er staðsett fyrir utan listasmiðjuna í FB. |
| |  | Kennari og nemandi virða fyrir sér listaverk á ganginum í listasmiðju FB. |
| |  | Ástfangið par að gefa öndunum við Reykjavíkurtjörn. |
| |  | Ingó félagi í þann vegin að fara að setja eina í miðgatið. |
|
|  | Bauja sem er staðsett á höfninni fyrir utan Kolaportið. |
| |  | Vinalegur lögregluþjónn við Austurvöll. |
| |  | Einmanna skúlptúr á svæði á móti Kaffi Reykjavík. |
| |  | Hildur vinkona að hlaupa í drullupolli fyrir utan listasmiðju FB. |
|
|  | Næturmynd af götum Grundahverfisins í Kópavogi. |
| |  | Olíustúturinn á bílnum mínum. |
| |  | Háfur sem að hangir uppi á vegg á slippsvæði nálægt Kolaportinu. |
| |  | Önnur nærmynd af vírnetsrúllunni fyrir utan listasmiðjuna. |
|
|  | Skip speglast í polli á Reykjavíkurhöfn. |
| |  | Myrkrakompan í listasmiðju FB. |
| |  | Dekk af reiðhjóli sem ég fann í landfyllingu í Hafnafirðinum. Ég grýtti því upp í loftið og smellti af. |
| |  | Brú í skóræktinni í Fossvogsdalnum. |
|
|  | Er ekki viss hvort þetta er ljósmynd. Ég setti mæliglasið bara á óbrúkaðan ljósmyndapappír og lýsti í smá stund og voilah! |
| |  | Klassísk mynd... Verst að ég hef ekki hugmynd um hvar ég tók hana, var svo viss um að hún yrði yfirlýst. |
| |  | Vafasamlega laggt í bílastæði á athafnasvæði Hringrásar... Nokkrum dögum eftir að ég tók þessa mynd logaði dekkjahaugurinn svo eftirminnilega. |
| |  | Elli kallinn er loksins búinn að sigrast á myndavélafóbíunni sinni og fékkst til þess að pósa fyrir mig á þessari mynd. :) |
|
|  | Rak augun í þennan undarlega vasa í glugga á huggulegu kaffihúsi staðsettu um borð í bát í smábátahöfninni við Kolaportið. |
| |