Meira artý dæmi...
Ég var að ljúka við mynd:

Smella hér til að skoða! Happy

Þessi er gerð eftir málverki Michelangelos "Sköpun Adams" sem að er í loftinu á Sixtínsku kapellunni.
Á minni útgáfu hefur Adam hafnað guði fyrir veraldlegan munað... svipað og er í raun mikið að gerast í dag. Adam reykir sígarettu og hefur snúið sér undan guði, sem er niðurlútur og ekkert himinlifandi yfir þessu öllu saman.
Ég teiknaði myndina í PhotoShop með tölvupennanum mínum. Laugh

Ég átti að vera í Íslenskuprófi áðan, en tvennt réði úrslitum um fjarveru mína:

1) Ég fékk hörmulega ælupest og eyddi þarsíðustu nótt frussandi eins og múkki á hálftíma fresti og tapaði því dýrmætum námstíma.

2) Það var aukatími í ljósmyndun í dag á sama tíma og prófið var og ég vildi ekki missa af honum þótt ég væri búin með mestallt efnið.

Í ljósmyndunartímanum gerðist ég vondur. Ég var uppiskroppa með framköllunarpappír og lét kennarann hafa pening fyrir aukablöðum. Hún vísaði mér inn í myrkrakompu þar sem blöðin voru geymd í kassa. Ég fór inn og náði í tóman, sams konar, kassa og fór með hann framm í ljósið, opnaði hann (ljósmyndunarpappír þolir ekki ljós fyrr en eftir framköllun) undir nefinu á kennaranum og þóttist ætla að telja blöðin sem ég keypti. Kennarinn flippaði áður en hún fattaði að kassinn var tómur. Í skaðabætur bauðst ég til að skutlast með alla ónýtu spilliefnisframköllunarvökvana á Sorpu eftir tímann. Fyrir vikið var mér fyrirgefið og fékk ég að launum tilvonandi afmælisjólagjöfina hans Agga (hann virtist ekki mikið gefinn fyrir lúftgítarinn sem ég gaf honum, því hann gleymdi honum heima hjá mér og hefur ekkert um hann spurt síðan).

Á sorpu var bakkað á mig, en það var glerhált út um alla borg í dag. Sem betur fer sást ekkert á bílnum, enda hafnaði hinn bíllinn á stuðaranum. En aumingja konan sem var að keyra var í rosalegu losti. Ég gerði mitt besta til að hughreysta hana áður en ég hélt heim á leið að blogga.