21 November 2004
Óhappapróf
26/11/04 10:08 |
Permalink
Jæja, betatestið lagaði íslenskustafavandamálið að
mestu, en nú er dagsetningin eitthvað í rugli nema
það hafi verið lagað frá því ég bloggaði síðast.
Ég tók listasöguprófin tvö og fékk ágætt út... 6.5 í seinna prófinu... Ég er nokkuð viss um að ég hefði fengið 9.0 hefði danabrókin ekki hellt sér yfir mig í tímanum sem að fimm myndanna voru sýndar. Þá snarhætti ég að glósa og fór að teina níðmynd af danabrókinni. Myndirnar fimm giltu 2.5 af prófinu... jæja, ég verð bara að fá hærra á lokaprófinu.

Það er gaman að betatesta
24/11/04 16:39 |
Permalink
Ég hef fengið sérútgáfu af bloggforritinu til
betatprófunar... Nú ætla ég að hola niður íslenskum
stöfum út um allt og sjá hvernig gengur. Múhahaha!
En ekki lengi samt... Er að fara í tvö listasögupróf á morgun, bæði úr öllu efni beggja áfanga... Einmitt þegar ég hét að ég fengi vikufrí... :S

Eldur - tsssssshh...
23/11/04 21:07 |
Permalink
Ég fór með tótu á listasýningu í dag í Listasafni
Reykjavíkur... Ótrúlegt en satt, þá gleymdi ég að
borga í stöðumælinn og mundi ekki eftir því fyrr en
við vorum komin út aftur, engin sekt var á bílnum!
Hefði viljað vera lengur á sýningunni, en við vorum tímabundin. :S
Sýningin er um grafík, eða öllu heldur gamlar auglýsingar... Þarna má finna gamlar umbúðir af hlutum eins og "Egils Kampavín í gleri" o.fl... Í kvikmyndasalnum eru sýndar ýmsar sjónvarpsauglýsingar frá horfnum tímum og eru langflestar stórskemmtilegar.
Það kostar 500kr. inn, en sé farið á mánudögum þá fær maður frítt inn. Ég mæli með þessari án hiks.
Um sýninguna
Áður en við fórum á sýninguna fórum við Tóta að dekkjabrennunni og smellti ég af nokkrum, vonandi, góðum myndum. Enginn eldur sást, en mikill reykur steig upp úr hrúgunni ásamt ókræsilegri fýlu. Við hrúguna sat slökkviliðs maður með dælu í klofinu og sprautaði á eldinn og færði bununa reglulega. Hann var líklega búinn að gera þetta lengi því hann var farinn að leggjast út af á milli bunubyltinga.
Það var slatti af fólki þarna að skoða þetta, sumir með vídjóvél, heilu fjölskyldurnar lögðu leið sína að Hringrás til þess að horfa á brennandi dekkjahrúgu...
-Þjófstart á þrettándann?

Eldur?
23/11/04 12:31 |
Permalink
Ég svaf af mér þennan eldsvoða sem varð á
athafnasvæði Hringrásar, en það kviknaði víst í öllum
dekkjunum þeirra... Spurning hvort þeir eigi ekki
svona varadekkjahaug?
Ég var einmitt á þessu svæði um daginn og tók meðal annars myndir af dekkjahaugnum... Spurning hvort ég komist núna nógu nálægt til að taka svona póst-mortem myndir af honum. Síðast var ég allur dúðaður upp í skær-apelsínugul föt og fékk líka svona hjálm áður en ég fékk að stíga fæti inn á svæðið. Ég vona að Hringrás fari ekki illa út úr þessu öllu saman.

Return of the Danabrok
23/11/04 08:41 |
Permalink
Hún hellti sér yfir mig aftur í íslensku...
Ég var nýsestur niður og voru ÖLL orðaskiptin á þessa leið (allir hvísluðu nema Danabrókin):
Sessunautur: Úff hvað er mikið til prófs, ég veit ekki hvort ég meika að læra þetta allt saman.
Ég: Hehe, sama hér, við setjum þá bara saman á næsta ári.
Danabrók: AÐALSTEINN!!!!! Þegiðu bara!
Hún hefur eitthvað alvarlegt á móti mér... Ég veit ekki hvað eða hvers vegna, en ég held að það liggi nokkuð ljóst fyrir.
Ég bíð bara eftir því að ég eigi eftir að segja eitthvað við kennaran og Danabrókin reyni að þagga niður í okkur báðum... En það mun ekki gerast því að hún reynir BARA að þagga niður í mér, ekki viðmælandanum... Rugl...

Windooze 2
22/11/04 22:10 |
Permalink
Jæja, nú ætti ég að standa vel að vígi í tölvumálum.
Nú er ég að keyra þrjú stýrikerfi í einu á tölvunni
minni: MacOS 9, MacOS X og Windows XP... Windósin
rúllaði loksins inn í seinni tilraun, en lausnin
fólst í því að bíða lengilengi eftir þessum
margbölvuðu þrettán mínútum sem að
innsetningarforritið hélt fram að væru eftir af
innsetningarferlinu.
Windósin keyrir ekkert ofboðslega hratt, en þó hraðar en ég bjóst við... mun ég geta notað hana í ýmiss einfaldari verk eins og að búa til þema fyrir GSMminn minn og nota venjulegt MSN.
Ég svaf nær ekkert síðustu nótt og er ég búinn að rembast við að halda mér vakandi en tóri ekki mínútunni lengur... Góða nótt!

Windooze
22/11/04 14:56 |
Permalink
"Estimated time left" þegar ég hóf innsetninguna um
hálf tvö var 39 mín.
Nú er klukkan að ganga þrjú og þetta er búið að vera stopp í 13 mín. í rúma klukkustund... Er að spá í að reyna einu sinni enn...

Leikid tveimur skjoldum...
22/11/04 13:50 |
Permalink
Nú, sem ég skrifa þetta, er ég að skella inn Windows
XP á makkann minn. Ég kem líklega ekki til með að
nota það oft, en það er aldrei að vita hvenær manni
langar til þess að vita hvaða vírusar eru að ganga og
hvaða poppöpp auglýsingar eru á kreiki. Ef þetta
gengur upp ætti ég að geta keyrt bæði mac og pc
stýrikerfin á tölvunni minni samtímis.
Danabrok...
22/11/04 13:37 |
Permalink
Það var bókstaflega ráðist á mig í myndlistasögutíma
í dag. En ég var eitthvað að fíflast nett með Jóni,
sem ég sit einstaka sinnum við hliðina á í þessum
tímum. Óaðvitandi að fyrir framan mig sat gömul kona
sem peppaði sig ákaft upp í að hefja sig yfir mig
(ath. mig, ekki Jón) og halda stutta, en ruddalega
ræðu sem að varð til þess að kennsla stöðvaðist. Ég
var búinn að fyrirgefa henni gjörninginn áður en
honum lauk og sat bara undir ræðunni og pírði augun á
móti, þegjandi... En þá gerði hún hið
ófyrirgefanlega. Hún sló lokapunktin á fyrirlestur
sinn með orðunum "Hóld kjeeeft bara!"
DANSKA!?!?
Ég viðurkenni fúslega að ég hafði verið að trufla hana án þess að vita það. Kurteisislegt "Afsakaðu, ÞIÐ (ekki ÞÚ
eruð með smá læti og mér þykir það
truflandi." hefði dugað, en hún varð að grípa í
dönskuna. Ég sat þarna á meðan kennarinn íhugaði
upphát hvort það ætti að færa mig, færa mig út
úr stofunni eða leyfa mér að sitja. Sjálfur var
ég búinn að læsa klónnum um borðið mitt svo ég
myndi ekki freystast til þess að kippa undan
danabrókinni stólnum og brjóta þar með á henni
mjaðmirnar.
Ég lét hugan reika og ímyndaði mér glæstan listaferill minn þar sem eingöngu væru limlestingarmyndir og annað slíkt með danabrókinni á boðstólnum... Hljómar næstum nógu frumlegt til þess að geta gengið upp.
Danska... Mér var nauðgað í tíma í dag og ég ætla að eyða restinni af deginum í sturtu... Danabrók... dönskunni var ofaukið.
DANSKA!?!?
Ég viðurkenni fúslega að ég hafði verið að trufla hana án þess að vita það. Kurteisislegt "Afsakaðu, ÞIÐ (ekki ÞÚ

Ég lét hugan reika og ímyndaði mér glæstan listaferill minn þar sem eingöngu væru limlestingarmyndir og annað slíkt með danabrókinni á boðstólnum... Hljómar næstum nógu frumlegt til þess að geta gengið upp.
Danska... Mér var nauðgað í tíma í dag og ég ætla að eyða restinni af deginum í sturtu... Danabrók... dönskunni var ofaukið.
ArtyParty frh.
21/11/04 10:06 |
Permalink
Þetta fannst mér gaman!
Iðkendur partýsins skiptu sér strax upp í hópa:
1) Iðkendur leikjarinns Eve Online.
2) Grasalækningafólk.
3) Reykingafólk (einungis mátti reykja við eldhúsið
.
4) Reyklausir (héldu sig nálægt Eve spilurunum).
5) Fólkið sem flakkaði á milli hópa í sífellu.
Var ég mestmegnis í hópum þrjú og fimm, en hópaskiptingin leystist þó upp að mestu þegar heiti potturinn var kominn í gagnið. Í heita pottinum var fólk annað hvort nakið eða á nærfötunum. Ég lét ógert að skella mér ofan í, enda á föstu og tími til kominn að skella sér niður í bæ.
Fékk ég tveggja manna fylgd með mér niður í bæ, þá Bödda og Grétar, og lónuðum við á Nelly's þar til fleira fólk kom. Þarna var beðið eftir að Snefa og Thelma, frænkur mínar, kæmu og var planið að leggja leið okkar á Kapital.
Tóta kom á nelly's skömmu eftir að sunnefa og thelma, sem komu alla leið úr bryggjuhverfinu til að hitta mig, komu. Tóta lagðist strax í stigann og gerði sig líklega til þess að sofna og fór ég með tótu heim og ekkert varð meira úr kvöldinu.
Við stoppuðum á Bæjarins Bestu þar sem ég ákvað að fá mér pylsu, en tóta hatar sinnep jafnmikið og ég elska það. Hafði ég hugsað mér gott til glóðarinnar og ætlaði mér pyllu með helling af snepi, en Tóta greip fram í fyrir pöntuninni hjá mér og sagði mér að setja bara lítið sinnep. Ég fór í fýlu og lét sleppa sinnepinu, pylsan varð óæt og ég henti henni í ruslið og frussaði út úr mér þessum bita sem ég hafði tekið af henni. Tótu var ekki skemmt og fór hún aftur í röðina og keypti aðra pylsu með normal snepi fyrir mig á meðan ég æpti á hana og togaði í hana að vera ekki að þessu... Ég var kominn í hörkufýlu og langaði ekkert lengur í pysluna, ég tróð henni nú samt í andlitið á mér á mettíma, enda fannst mér nægur skaði skeður.
Hvers vegna ég er svona snemma á fótum er ofar mínum skilningi, hins vegar, en ég ætla að reyna að nota tímann til þess að skrifa ritgerðirnar tvær sem ég á að skila á morgun. :/