ArtyParty frh.
Þetta fannst mér gaman! Laugh
Iðkendur partýsins skiptu sér strax upp í hópa:

1) Iðkendur leikjarinns Eve Online.
2) Grasalækningafólk.
3) Reykingafólk (einungis mátti reykja við eldhúsiðWinking.
4) Reyklausir (héldu sig nálægt Eve spilurunum).
5) Fólkið sem flakkaði á milli hópa í sífellu.

Var ég mestmegnis í hópum þrjú og fimm, en hópaskiptingin leystist þó upp að mestu þegar heiti potturinn var kominn í gagnið. Í heita pottinum var fólk annað hvort nakið eða á nærfötunum. Ég lét ógert að skella mér ofan í, enda á föstu og tími til kominn að skella sér niður í bæ.
Fékk ég tveggja manna fylgd með mér niður í bæ, þá Bödda og Grétar, og lónuðum við á Nelly's þar til fleira fólk kom. Þarna var beðið eftir að Snefa og Thelma, frænkur mínar, kæmu og var planið að leggja leið okkar á Kapital.
Tóta kom á nelly's skömmu eftir að sunnefa og thelma, sem komu alla leið úr bryggjuhverfinu til að hitta mig, komu. Tóta lagðist strax í stigann og gerði sig líklega til þess að sofna og fór ég með tótu heim og ekkert varð meira úr kvöldinu.
Við stoppuðum á Bæjarins Bestu þar sem ég ákvað að fá mér pylsu, en tóta hatar sinnep jafnmikið og ég elska það. Hafði ég hugsað mér gott til glóðarinnar og ætlaði mér pyllu með helling af snepi, en Tóta greip fram í fyrir pöntuninni hjá mér og sagði mér að setja bara lítið sinnep. Ég fór í fýlu og lét sleppa sinnepinu, pylsan varð óæt og ég henti henni í ruslið og frussaði út úr mér þessum bita sem ég hafði tekið af henni. Tótu var ekki skemmt og fór hún aftur í röðina og keypti aðra pylsu með normal snepi fyrir mig á meðan ég æpti á hana og togaði í hana að vera ekki að þessu... Ég var kominn í hörkufýlu og langaði ekkert lengur í pysluna, ég tróð henni nú samt í andlitið á mér á mettíma, enda fannst mér nægur skaði skeður.
Hvers vegna ég er svona snemma á fótum er ofar mínum skilningi, hins vegar, en ég ætla að reyna að nota tímann til þess að skrifa ritgerðirnar tvær sem ég á að skila á morgun. :/