05 December 2004
Víííj!!! Búinn í prófunum þremur!!
10/12/04 22:19 |
Permalink
Ekki er ég viss hvernig mér gekk í íslenskuprófinu,
en ég held mér hafi gengið svona nokkurn vegin jafn
vel og í Listasögu 304 prófinu sem var í gær... Ef ég
fell í öðru, þá fell ég í þeim báðum. :/
Eins örmagna og ég var eftir prófin, þá ákvað ég að taka törn í Taz: Wanted tölvuleiknum sem ég hafði áður gefið 8 í einkun... Ég er ekki á sama máli núna...
Hann fær 10!!!
-Hvers vegna?
Vegna þess að ég fékk að drepa Tweety!!
Mest óþolandi Looney Tunes™ kvikind allra tíma fyrr og síðar. Trúðu mér, lesandi góður, ég hef beðið þessarar stundar lengi, lengi!
Þar að auki var geggjað að heyra Taz segja "Jibbíkajei Motherf***er!" í endann...
Ókei, hann sagði ekki "Motherf***er" reyndar. :P

Al-Qaida ræðst á Vatnsleysuströnd!
10/12/04 00:33 |
Permalink
Miltisbrandur á Vatnsleysuströnd... En af hverju voru
þeir að ráðast á íslensku hrossin? o_O
Ég er búinn að gefa Ella þrisvar að borða í dag. Át hann nægju sína í öll skiptin, en gerði þó áhlaup á Subway™ samlokuna mína skömmu eftir þriðja skiptið.
Þökk sé skjótum viðbrögðum mínum að eina máltíð dags míns fór ekki í eðlukjaft. Að auki tel ég að sterkt pepperoni sé ekki gott í mallann fyrir svona dýr.
Þetta er ofar mínum skilningi ogþetta þykir mér alveg magnað!

Tveir niðri, einn til fara...
09/12/04 12:29 |
Permalink
Two down, one to go...
Listasöguprófið var erfitt, en ég lærði vel og gæti jafnvel átt möguleika á því að ná!
Þá er bara Íslenskuprófið eftir hjá mér, en ég var eitthvað lasinn þarna þegar ég átti að taka það fyrst.
Ég fór núna fyrst með læknisvottorðið á skrifstofuna. Ég veit að ég var seinn með vottorðið, en það sem ritarinn sagði við mig fékk hjartað í mér til þess að stoppa: "Nei, þú ert allt of seinn að skila vottorðinu, verður bara að vera stundvísari með svona lagað á næstu önn.".
Vitaskuld hélt ég að hún væri að gefa það í skyn að ég væri of seinn að skila vottorðinu og mætti ekki taka sjúkraprófið og þyrfti að taka þetta allt saman aftur á næstu önn. Þegar betur var að gáð, þá hélt hún að ég væri að fara að skila vottorði fyrir eitthvern kennsludaginn sem ég hafði verið fjarverandi. Mikill léttir það, skal ég segja ykkur!
Jæja, íslenska, hér æ komm!!

Blessað veðrið...
08/12/04 21:48 |
Permalink
Gerði mér ferð í dag til þess að ná í Tótu, þegar ég
var rétt ókominn í götuna hennar lýsti elding upp
himininn.
Einkar falleg sjón, enda sá ég hana alla, en undarlegt þótti mér að hún virtist ekki leitast við að slá niður, heldur lá hún lárétt yfir stóru svæði... Ég hélt að þessi fyrirbæri væru alltaf nær því að vera lóðrétt frekar en lárétt.
Jæja, listasögupróf á morgun og svo íslenskupróf hinn daginn og þá er ég búinn í prófunum þremur!

Búúiiinn!!!

07/12/04 03:20 |
Permalink
Nú hef ég lokið við að velja og líma í portfolio
möppuna mína fyrir ljósmyndunaráfangann... Það gengu
469 A3 arkir af. :/
I am the great Portfolio!! And I Need TP for my
bonghole!
05/12/04 19:40 |
Permalink
Jæja, þá er að velja og hafna ljósmyndum í portfolio
möppuna sem ég á að skila á morgun. Ég áttaði mig
fljótlega á því að ég var uppiskroppa með A3 blöð
fyrir hana og skrapp í Smáralindina með það í huga að
versla svona eins og 30 arkir. Ég labbaði út með um
það bil 500 stykki (virkar meira eins og 3000 stykki,
en það stendur 500 á pakkanum) og 1100 krónum
fátækari. Ekki hægt að kaupa færri arkir í einu, "10
kíló af A4 handa þér, næsti gjörsoveeel!"
Þegar heim kom reyndust arkirnar vera næfurþunnar... Eiginlega næstum því eins og klósettpappír (TP = Toilet paper).
10 kilos of TP for the great Portfolio coming up!
Þetta virðist nú samt vera allt í lagi, sem betur fer... Jæja, flokka, líma, muna, skrifa...