Víííj!!! Búinn í prófunum þremur!!
Ekki er ég viss hvernig mér gekk í íslenskuprófinu, en ég held mér hafi gengið svona nokkurn vegin jafn vel og í Listasögu 304 prófinu sem var í gær... Ef ég fell í öðru, þá fell ég í þeim báðum. :/

Eins örmagna og ég var eftir prófin, þá ákvað ég að taka törn í Taz: Wanted tölvuleiknum sem ég hafði áður gefið 8 í einkun... Ég er ekki á sama máli núna...
Hann fær 10!!!
-Hvers vegna?
Vegna þess að ég fékk að drepa Tweety!! Laugh Laugh Laugh
Mest óþolandi Looney Tunes™ kvikind allra tíma fyrr og síðar. Trúðu mér, lesandi góður, ég hef beðið þessarar stundar lengi, lengi!
Þar að auki var geggjað að heyra Taz segja "Jibbíkajei Motherf***er!" í endann...
Ókei, hann sagði ekki "Motherf***er" reyndar. :P