Bílavesen...
Ég skrapp á kaffihús í fyrradag með Tótu, Agga, Silju og Bjarka. Andrúmsloftið var frekar rafmagnað og var yfirnáttúrulega mikið skvaldur inni á kaffihúsinu miðað við að þar voru varla fleiri en svona 25-30 manns. Síðan fór Bjarki og varð ég að hlaupa á eftir honum með eitthverja gamla sokka sem hann hafði gleymt hjá Tótu forðum daga. Síðan fór Tóta og svo tæmdist kaffihúsið nánast þannig að aftur var hægt að heyra orða skil. Sigrún Siljuvinkona bættist svo í hópinn og var setið þar til kaffihúsið lokaði.
Við héldum þaðan á bílnum mínum út á BSÍ að fá okkur svið... Nei, við fengum okkur pizzusamlokur og franskar, kanski svið seinna. Eftir matinn var planið að Skutla Sigrúnu heim, en bílinn var búinn að fá nóg og tók upp á því að drepa reglulega á sér... Ég hélt að hann væri bara kaldur og hélt ótrauður áfram og skömmu síðar dó bíllinn og fór ekki aftur í gang.
Sem betur fer var ekki langt til Sigrúnar og fórum við þangað að bíða Þorgeirs sem að var svo góður að redda restini af liðinu heim. Heima hjá Sigrúnu kennir ýmissa grasa úr íslenska listaheiminum enda faðir hennar einn af stóruköllunum í LHÍ. Ég hefði viljað skoða þetta lengur, en það verður víst að bíða betri tíma því Þorgeir var kominn og þolynmæðin á þrotum.
Það þurfti meðal annars að skipta um rafgeymi og bensínsíu í bílnum mínum, en hann er orðinn eins og nýr núna. Happy



Meira artý dæmi...
Ég var að ljúka við mynd:

Smella hér til að skoða! Happy

Þessi er gerð eftir málverki Michelangelos "Sköpun Adams" sem að er í loftinu á Sixtínsku kapellunni.
Á minni útgáfu hefur Adam hafnað guði fyrir veraldlegan munað... svipað og er í raun mikið að gerast í dag. Adam reykir sígarettu og hefur snúið sér undan guði, sem er niðurlútur og ekkert himinlifandi yfir þessu öllu saman.
Ég teiknaði myndina í PhotoShop með tölvupennanum mínum. Laugh

Ég átti að vera í Íslenskuprófi áðan, en tvennt réði úrslitum um fjarveru mína:

1) Ég fékk hörmulega ælupest og eyddi þarsíðustu nótt frussandi eins og múkki á hálftíma fresti og tapaði því dýrmætum námstíma.

2) Það var aukatími í ljósmyndun í dag á sama tíma og prófið var og ég vildi ekki missa af honum þótt ég væri búin með mestallt efnið.

Í ljósmyndunartímanum gerðist ég vondur. Ég var uppiskroppa með framköllunarpappír og lét kennarann hafa pening fyrir aukablöðum. Hún vísaði mér inn í myrkrakompu þar sem blöðin voru geymd í kassa. Ég fór inn og náði í tóman, sams konar, kassa og fór með hann framm í ljósið, opnaði hann (ljósmyndunarpappír þolir ekki ljós fyrr en eftir framköllun) undir nefinu á kennaranum og þóttist ætla að telja blöðin sem ég keypti. Kennarinn flippaði áður en hún fattaði að kassinn var tómur. Í skaðabætur bauðst ég til að skutlast með alla ónýtu spilliefnisframköllunarvökvana á Sorpu eftir tímann. Fyrir vikið var mér fyrirgefið og fékk ég að launum tilvonandi afmælisjólagjöfina hans Agga (hann virtist ekki mikið gefinn fyrir lúftgítarinn sem ég gaf honum, því hann gleymdi honum heima hjá mér og hefur ekkert um hann spurt síðan).

Á sorpu var bakkað á mig, en það var glerhált út um alla borg í dag. Sem betur fer sást ekkert á bílnum, enda hafnaði hinn bíllinn á stuðaranum. En aumingja konan sem var að keyra var í rosalegu losti. Ég gerði mitt besta til að hughreysta hana áður en ég hélt heim á leið að blogga.