14 November 2004
ArtyParty
20/11/04 14:30 |
Permalink
Í kvöld ætla ég að taka upp gleði mína á ný og fá mér
bjór af eitthverju ráði í fyrsa skiptið í alltof
langan tíma. Tilefnið er afmæli félaga míns úr
skólanum, Kristjóns. Vonandi verður þetta gaman.

AEtli eg verdi alltaf ad skrifa e-d i "Title"
gluggann?
20/11/04 13:39 |
Permalink
Vissar takmarkanir í nýja bloggforritinu eru að angra
mig sem stendur, en þá er ég aðallega að tala um
leturstærðir á fyrirsögnunum og þetta "#%$$#%
kjaftæði efst í vinstra bláhorninu á síðunni. Ég get
auðvitað tekið það í burtu með öðru forriti, en það
kemur allt saman aftur þegar ég blogga næst.
Svo væri fínt að fá skella inn kommentakerfi... lít í það mál bráðum.

Magic... Magic! MAGIC!!! Bwaghahahaha!!! o_O
19/11/04 14:07 |
Permalink
Sökum prófana sem ég nefndi hér áður hef ég ekki
fengið mikinn svefn undanfarið og í morgun var svo
komið að ég hefði ekki getað haldið mér vakandi yfir
hvorugu prófana sem ég þreytti. Brá ég á það ráð að
slafra í mig svona eins og fjórum stykkjum af Magic
orkudrykkjum á mettíma.
Þegar ég mætti í seinna prófið hafði ég verið búinn með tvo þeirra í frímínútunum á undan. Þambaði ég svo hina tvo í prófinu.
Þetta bjargaði kanski deginum, en þetta er örugglega stórhættulegt líka!
Ég var allur á iði, kominn með skræka rödd eins og Cornholio og gat ekki fókuserað á hluti nema að þeir væru á hreyfingu. Prófið mitt var útkrotað þemateikningum líkamlegs ástands míns er það rataði aftur í hendur kennarans...
Þrátt fyrir ástandið tókst mér samt að fá 8 fyrir .
En nú er orkan úr drykkjunum á þrotum og ég ætla að leggjast aðeins undir feld áður en ég fer og hitti Tótið mitt. :*

Skolavesin...
19/11/04 13:44 |
Permalink
Var ég nú að ljúka við fjórða prófið í þessari viku.
Ég fékk 8,0 og var fagið listasaga, en ég tók einnig
þriðja prófið í dag og var það í Íslensku... Þar fékk
ég 1,0 (sem var í raun ekki fjarri meðaltali). Í raun
hefði þetta átt að vera 0,5, en fyrir eitthverja
ótrúlega heppni tókst mér að giska á eitthvað ártal
algerlega úr samhengi. Spurningin var svona:
Árið _____ kom út ljóðflokkurinn ________ eftir _________. Skáldið hafði...
Framhald spurningarinnar var langur texti sem átti að láta mann fatta hvað átti að vera í eyðunum, en eftir lesningu textans var ég engu nær og ákvað að freista gæfunnar og skella eitthverju ártali þarna inn upp á djókið, þó svo að ég sleppti restinni af spurningunni. Og viti menn! Ég giskaði á rétt ártal (1948) á eitthverju sem ég vissi ekkert hvað var! -Einn komma núll fyrir eitt stykki duglegan Alliat.
Í ljósmyndun í gær bauðst ég til að skutla Bú, kærustu Kristjóns félaga míns, heim á meðan við biðum eftir að filman sem við vorum að framkalla (stúdíóverkefnið með Silju!!) væri búin að liggja nógu lengi í bleyti... Hefði ég vitað hvað beið mín hefði ég nú frekar borgað undir hana leigubíl. Um leið og við vorum komin úr göngufæri frá skólanum fór bíllinn að hökkta og drap loks á sér. Ég lagði út í kant og beið smá og reyndi aftur... Við komumst svona 50 metra áður en sagan endurtók sig... Nú kviknaði alls ekki á bílnum aftur fyrr en við vorum búin að bíða í dágóða stund... Lögðum af stað, en það sama gerðist aftur og þurftum við aftur að bíða... Svona fórum við alla leiðina frá FB og upp í afskekt heimkynni Búar á Vatnsenda. Bíllinn náði ekki að hitna neitt á leiðinni og var ellefu stiga frost. Ferðin hafði tekið um þrjú korter og vorum við öll að krókna ásamt því að við Kristjón vorum orðnir allt of seinir í tímann aftur. En um leið og Bú var farin inn til sín gekk bíllinn fínt og bakaleiðin var nánast vandræðalaus... -Einni manneskju of mikið í bílnum? -Hvílir bölvun á Bú?
Hvað sem það var sem að angraði bílinn minn svo mjög vil ég ekki reyna að komast að... A.m.k. ekki fyrr en hitamælirinn sýnir +15 stig, lágmark.

Framkvaemdir
19/11/04 13:34 |
Permalink
Já, þetta lítur ósköp hrátt út og er algerlega úr
stíl við aðalsíðuna. Þarf bara tíma til þess að fikta
meira við þetta forrit....
Reyndar er þetta svolítið í stíl við nýju síðuna sem ég er að vinna í. En hún kemur til með að vera eingöngu á ensku þangað til ég get leyst úr íslenskustafavandamálinu mínu. Tilgangurinn með nýju síðunni er fyrst og fremst sá að vera með fagmannlegri síðu sem er laus við allt mitt raus og inniheldur bara listadótarí. Gamla síðan mun þó vera hér áfram óbreytt og bloggið mun lifa áfram. Hin síðan er meira svona upp á puntið.

Prufa thetta dotari...
19/11/04 13:17 |
Permalink
Ég er orðinn svo latur við að blogga að það hálfa
væri negatíft! En það er ástæða fyrir bloggleysinu:
Til þess að allt kæmi rétt út þurfti ég að skrifa
allt sem mér lá á hjarta inn í Word ásamt HTML kóðum.
Svo þurfti ég að opna annað forrit sem heitir
WebDesign og gera copy úr Word og paste yfir í
WebDesign. Þannig fékk ég íslensku stafina. Svo var
að vista klabbið og opna annað forrit sem að heitir
Fetch og hlaða nýju bloggfærslunni inn. Svo myndi ég
opna vafrara forrit, eins og Explorer eða Safari og
skoða hvort allt hafi komið rétt út, ef ekki, þurfti
ég að ganga í gegn um allt ofantalið aftur.
Nú, hins vegar, er ég búinn að festa kaup á forriti sem að sér um þetta allt saman fyrir mig og ætti ég að geta bloggað meira nú þegar athöfnin tekur ekki nema 2-5 mínútur í stað hálftímans sem áður var og ættu lesendur nú að vera brátt lausir við tveggja-blaðsíða bloggfærslurnar frá mér.