Skolavesin...
19/11/04 13:44
Var ég nú að ljúka við fjórða prófið í þessari viku.
Ég fékk 8,0 og var fagið listasaga, en ég tók einnig
þriðja prófið í dag og var það í Íslensku... Þar fékk
ég 1,0 (sem var í raun ekki fjarri meðaltali). Í raun
hefði þetta átt að vera 0,5, en fyrir eitthverja
ótrúlega heppni tókst mér að giska á eitthvað ártal
algerlega úr samhengi. Spurningin var svona:
Árið _____ kom út ljóðflokkurinn ________ eftir _________. Skáldið hafði...
Framhald spurningarinnar var langur texti sem átti að láta mann fatta hvað átti að vera í eyðunum, en eftir lesningu textans var ég engu nær og ákvað að freista gæfunnar og skella eitthverju ártali þarna inn upp á djókið, þó svo að ég sleppti restinni af spurningunni. Og viti menn! Ég giskaði á rétt ártal (1948) á eitthverju sem ég vissi ekkert hvað var! -Einn komma núll fyrir eitt stykki duglegan Alliat.
Í ljósmyndun í gær bauðst ég til að skutla Bú, kærustu Kristjóns félaga míns, heim á meðan við biðum eftir að filman sem við vorum að framkalla (stúdíóverkefnið með Silju!!) væri búin að liggja nógu lengi í bleyti... Hefði ég vitað hvað beið mín hefði ég nú frekar borgað undir hana leigubíl. Um leið og við vorum komin úr göngufæri frá skólanum fór bíllinn að hökkta og drap loks á sér. Ég lagði út í kant og beið smá og reyndi aftur... Við komumst svona 50 metra áður en sagan endurtók sig... Nú kviknaði alls ekki á bílnum aftur fyrr en við vorum búin að bíða í dágóða stund... Lögðum af stað, en það sama gerðist aftur og þurftum við aftur að bíða... Svona fórum við alla leiðina frá FB og upp í afskekt heimkynni Búar á Vatnsenda. Bíllinn náði ekki að hitna neitt á leiðinni og var ellefu stiga frost. Ferðin hafði tekið um þrjú korter og vorum við öll að krókna ásamt því að við Kristjón vorum orðnir allt of seinir í tímann aftur. En um leið og Bú var farin inn til sín gekk bíllinn fínt og bakaleiðin var nánast vandræðalaus... -Einni manneskju of mikið í bílnum? -Hvílir bölvun á Bú?
Hvað sem það var sem að angraði bílinn minn svo mjög vil ég ekki reyna að komast að... A.m.k. ekki fyrr en hitamælirinn sýnir +15 stig, lágmark.