Blessað veðrið...
Gerði mér ferð í dag til þess að ná í Tótu, þegar ég var rétt ókominn í götuna hennar lýsti elding upp himininn.
Einkar falleg sjón, enda sá ég hana alla, en undarlegt þótti mér að hún virtist ekki leitast við að slá niður, heldur lá hún lárétt yfir stóru svæði... Ég hélt að þessi fyrirbæri væru alltaf nær því að vera lóðrétt frekar en lárétt.

Jæja, listasögupróf á morgun og svo íslenskupróf hinn daginn og þá er ég búinn í prófunum þremur! Laugh