Tveir niðri, einn til fara...
Two down, one to go...

Listasöguprófið var erfitt, en ég lærði vel og gæti jafnvel átt möguleika á því að ná! Laugh

Þá er bara Íslenskuprófið eftir hjá mér, en ég var eitthvað lasinn þarna þegar ég átti að taka það fyrst.
Ég fór núna fyrst með læknisvottorðið á skrifstofuna. Ég veit að ég var seinn með vottorðið, en það sem ritarinn sagði við mig fékk hjartað í mér til þess að stoppa: "Nei, þú ert allt of seinn að skila vottorðinu, verður bara að vera stundvísari með svona lagað á næstu önn.".
Vitaskuld hélt ég að hún væri að gefa það í skyn að ég væri of seinn að skila vottorðinu og mætti ekki taka sjúkraprófið og þyrfti að taka þetta allt saman aftur á næstu önn. Þegar betur var að gáð, þá hélt hún að ég væri að fara að skila vottorði fyrir eitthvern kennsludaginn sem ég hafði verið fjarverandi. Mikill léttir það, skal ég segja ykkur!

Jæja, íslenska, hér æ komm!!