Windooze 2
Jæja, nú ætti ég að standa vel að vígi í tölvumálum. Nú er ég að keyra þrjú stýrikerfi í einu á tölvunni minni: MacOS 9, MacOS X og Windows XP... Windósin rúllaði loksins inn í seinni tilraun, en lausnin fólst í því að bíða lengilengi eftir þessum margbölvuðu þrettán mínútum sem að innsetningarforritið hélt fram að væru eftir af innsetningarferlinu.
Windósin keyrir ekkert ofboðslega hratt, en þó hraðar en ég bjóst við... mun ég geta notað hana í ýmiss einfaldari verk eins og að búa til þema fyrir GSMminn minn og nota venjulegt MSN.
Ég svaf nær ekkert síðustu nótt og er ég búinn að rembast við að halda mér vakandi en tóri ekki mínútunni lengur... Góða nótt!