Return of the Danabrok
Hún hellti sér yfir mig aftur í íslensku...
Ég var nýsestur niður og voru ÖLL orðaskiptin á þessa leið (allir hvísluðu nema Danabrókin):

Sessunautur: Úff hvað er mikið til prófs, ég veit ekki hvort ég meika að læra þetta allt saman.
Ég: Hehe, sama hér, við setjum þá bara saman á næsta ári.
Danabrók: AÐALSTEINN!!!!! Þegiðu bara!

Hún hefur eitthvað alvarlegt á móti mér... Ég veit ekki hvað eða hvers vegna, en ég held að það liggi nokkuð ljóst fyrir.
Ég bíð bara eftir því að ég eigi eftir að segja eitthvað við kennaran og Danabrókin reyni að þagga niður í okkur báðum... En það mun ekki gerast því að hún reynir BARA að þagga niður í mér, ekki viðmælandanum... Rugl...