Jibbííííj!! Laugh
Elli er kominn aftur heim sprækur eins og lækur, hress eins og fress og kátur eins og slátur...
Efnafræðin hjá mér bar árangur, meirihluti líffæranna héldust ósködduð og saumaði doksi fyrir þannig að sagan endurtæki sig ekki. Þeir fáu vefir sem að dóu á meðan á þessu stóð koma til með að falla út á næstu dögum og Elli verður búinn að ná fullum bata mjög fljótlega! Laugh
-Þúsund þakkir til allra þeirra sem að krossuðu alla fingur og tær með mér! Laugh

Annars er það að frétta að þegar Elli var búinn að vera svona tvær og hálfa - þrjár klukkustundir hjá lækninum hringdi dyrabjallan hjá mér... Ég staulaðist dasaður til dyra og tók upp dyrasímann.
"Aðalsteinn?" -Þetta var rödd yfirdýralæknunnar og kaldur hrollur fór um mig. Nú hélt ég að þarna væri hún komin með Ellahræ og vondar fréttir..
"Ég er með sendingu til þín og ég kem henni ekki í póstkassann, geturðu komið niður?" Eitthvað fannst mér þetta nú vera óvarlega orðað hjá henni blessaðri og trítlaði niður undirbúinn undir það versta. Þá kom í ljós við mikin létti að þetta var bara bréfberan, en röddin hennar er alveg eins og hjá yfirdýralæknunni. Hún var að koma með nýja lúkkið á nýja GameBoyinn minn, en þetta lúkk er víst frá því virta vörumerki "Dior".
Núna lítur GameBoy DSinn minn svona út og þykir einkar vígalegur þótt ég segi sjálfur frá. Sá galli er reyndar á gjöf Njarðar að nú lokast vélin ekki almennilega, en það sést varla. Nú er bara spurning hvort maður taki sig ekki til á næstunni og pimpi upp GameCube vélina líka? :P

En núna ér ég sama sem ekkert búinn að sofa síðustu 50 klukkustundirnar og er að spá í að koma mér í ró núna.
|