Jul 2006
Smá prósi í tilefni þess að ég hef ekkert ort í
lengri tíma...
12/07/06 21:03 Beinn
hlekkur
Jæja, kominn tími á hina mánaðarlegu bloggfærslu
mína...
11/07/06 19:15 Beinn
hlekkur
Ég var að skella inn fleiri ljósmyndum á
ljósmyndasíðuna. Ber verkefnið titilinn "Skýjaborgir 2006" (já, ég
veit það er sdavsdettnínkarvidla í titlinum á
síðunni... laga seinna). Þemað er hinn
mikilfenglegi drungi íslenskrar náttúru og smæð
okkar mannkindanna til samanburðar. Ég fór svo
áðan í Pixla og fékk eina myndina
prentaða stóra (ca. 50x75 cm). Fæ ég hana svo í
hendurnar á næstu dögum og er óþarft að segja að
ég hlakka mikið til.
Hér fyrir neðan er umrædd mynd (sem ber titilinn "Gull"):
Ef þetta kemur vel út, þá mun ég eflaust vera duglegur að stækka myndir í náinni framtíð.
-E.s. Verslunin Pixlar er sú eina sem ég veit um sem að framkallar svarthvítar filmur í dag. Fyrir það eiga þeir hrós skilið.