Rafurmagn!? o_O
Ég hef verið óvenjulega hlaðinn rafmagni í allan dag.
Ástæðan er mér algerlega ókunn, en ég tók fyrst eftir þessu í vinnunni. Ekkert hefur verið gert við teppið, ég var í sömu skóm og venjulega og hef oft mætt í þessum fötum áður til vinnu.

Var þetta einkar óþægilegt og jafnvel farið að verða óþolandi þegar leið á daginn.
Tók fyrst eftir þessu þegar ég var að rétta viðskiptavini bunka af gerviefnisáklæði (sumir kalla þetta microfiber). Þetta leiðir rafmagn einstaklega vel og um leið og hönd hennar snerti prufurnar sem ég var að rétta henni kom blossi og fengum við bæði raflost sem leiddi til þess að samtímis slepptum við prufubunkanum sem féll á gólfið. Bæði beygðum við okkur til þess að ná í bunkann og það sama skeði aftur! o_O
En nú þorði hvorugt okkar að snerta bunkann aftur og, ég sver það, ég fann brunalykt!
Ég safnaði í mig þori, tók bunkann upp og lagði hann á nærstatt sófaborð og fór að sækja viðarprufur handa konunni... Sama gerðist, nema nú sleppti ég ekki, enda hálf-viðbúinn í þetta skiptið.

Restinni af vinnudeginum eyddi ég í að fá raflost úr hurðarhúnum, skrúfum, handriðum og öðrum málmhlutum ásamt því að reyna að fá hárið á mér til að tolla niðri.

Held samt að þetta sé liðið hjá núna, ætla að gá........... Nibb... Sad

Er bara feginn að verða ekki fyrir eldingu eða eitthvað álíka.
|
Draslið sem dettur stundum út úr mér....
Er oft eitthvað á þessa leið:

blasfemme: do a google image search for Ah Leon
blasfemme: EVERYTHING he makes is out of clay, but it all looks exactly like the object
Alliat: ok, i googled for Ah Leon and found Ah Leon... not sure what i was expecting really heh
blasfemme: but once you realise that it's made out of clay, it adds a certain element of mystery to it.
Alliat: ah, you can imprint the clay with the real object to get the texture
caRd: hhmmm...
caRd: why would you do that ...though ..
blasfemme: not if the object is tofu
caRd: like.. make stuff out of clay ...
caRd: to look like wood ..
blasfemme: because it's interesting
caRd: yeaah i know. but ...just make it out of wood O.o
Alliat: lol
blasfemme: why?
blasfemme: whats wrong with clay?
caRd: it just seems ...weird
caRd: sorry
caRd: but it looks like wood... why not just use wood.. and it wont take as long.
Alliat: why make the replicas at wax museums out of wax... why not make them out of human?


(tekið af doodlechat)
|
Myndasögur og Smásögur komnar inn á Óhappabloggið
Ef allt fór að óskum ætti þetta allt saman að vera orðið aðgengilegt hér á hægri hönd.
Með hlekkina að þessum síðum undir nefinu til frambúðar vona ég að ég komi til með að verða duglegri við að bæta í báðar síðurnar fyrir vikið. Happy
|
Ástæða þess að mig langar að vera ninja á grímuballinu á föstudaginn...
(þýddur úrdráttur af þessari heimasíðu)

Ninjur geta drepið hvern sem þær vilja! Ninjur eru ALLTAF afhausandi fólk og hika hvergi þegar að því kemur. Þessir gaurar eru svo brjálaðir og æðislegir að þeir eru alltaf trylltir. Ég heyrði einu sinni af ninju sem var að éta á veitingastað. Og þegar einhver náungi missti skeið þá trylltist ninjan og drap alla í bænum. Vinur minn, Maggi, sagði að hann hefði séð ninju buffa einhvern strák bara vegna þess að hann opnaði glugga.

OG ÞETTA ER ÞAÐ SEM ÉG KALLA ALVÖRU KRAFTA!!!!!!!!!!!!!

Ninjur eru svooooooo svalar að mig langar til þess að kúka á mig. Ég elska ninjur með öllum mínum líkama (já, líka lillanum mínum).


Og smávegis um "seppuku":

Seppuku er hin forna list að depa sjálfan sig ef maður verður svo fáránlega pirraður og finnur engan annan til þess að drepa. Ninjur nota alls konar drasl til þess að drepa sig - byssur, reypi, hnífa, leisergeisla, spjót o.s.frv. - Og hika aldrei. Þessir gaurar drepa sig við öll tilefni og oft án nokkurar ástæðu: Þess vegna eru svo fáar ninjur eftir í dag.

ninjacatkick
Hooooyaaah!!!!! o_O



En því miður fæst ekki almennilegur ninjabúningur á Íslandi svo ég verð að finna út eitthvað annað snyðugt. :/
|
Mér fannst ég verða að hressa mig við...
...Svo ég ákvað að taka með mér myndavélina út í vinnu og upphugsa þar eitthvað ráðabrugg til þess að létta á skapinu í mér.

Eftir að hafa dritað stefnulaust út í loftið í dágóðan tíma kom tækifærið. Atli frændi bað mig um að færa bílinn sinn. Eftir að hafa fært bílinn kom ég til baka í dálitlu flýti og skartaði svona stressblandinum skelfingarsvip (sem var í raun bara til þess að draga athygli Atla frá myndavélinni sem ég beindi að honum). Svo sagði ég Atla að ég hefði læst lyklana inni í bílnum hans og tók svo mynd af svipnum sem hann setti upp:

Atlilyklar
Athugið að hann er í raun þarna að horfa framan í mig, en sjónarhornið er upp á við þar sem ég hélt myndavélinni svo neðarlega. Ah, og auðvitað læsti ég lyklana ekki í alvörunni inni í bílnum hans.

Annars fékk þessi mynd mig líka til að brosa:
svandísogelli2
Þarna sést Svandís með myndavél í annari og eitt stykki dauðskelkaðan Ella í hinni. Elli er nefnilega dauðhræddur við myndavélar greyið og þessi stelling sem hann er í þarna er alveg priceless, hehe. Annars fínasta mynd af Svandísi líka. Happy
|
Heimurinn....
Hann gerist ekki mikið óréttlátari en þetta.Guðrún
Sad Sad Sad
|