Fuglar!!! o_O
Ég varð fyrir skipulagðri árás fugla í dag.
Ég ákvað að það væri kominn tími á að fara að þrífa bílinn... Skellti mér með hann í þvottastöð og ók þaðan brosandi hringinn á skínandi hreinum bíl. Fimm mínútum seinna - *SPLATT!!* - Ég sá gerandann hvergi, en þetta hlýtur að hafa verið örn eða eitthvað af álíka stærð sem að jós þessari ókræsilegu slummu yfir hálfa framrúðuna á bílnum og aftur eftir öllu þakinu! o_O
Ég afréð að fá mér pylsu á Bæjarins Beztu™ áður en ég færi út í vinnu að þrífa framrúðuna. Keypti ég mér tvær pylsur og hélt á einni í hvorri hönd. Þegar ég var að taka bita nr. 2 af fyrri pylsunni fann ég hina pylsuna skyndilega þyngjast! Ég leit til að athuga málið og viti menn... ÞARNA SAT STARRI OFAN Á PYLSUNNI MINNI OG KROPPAÐI Í PYLSUBRAUÐIÐ!!! o_O
Af gamalli starrareynslu ákvað ég að leyfa honum bara að eiga pylsuna í stað þess að reka hann burt og éta hana sjálfur.
Þegar út í vinnu var komið trítlaði ég hugsi á svip inn eftir lagernum að ná í pappír til þess að þrífa bílinn með. Tók í hurðarhúninn á hurðinni innst í ganginum og hurðin fauk upp með miklum látum og ég með! ("%$% trekkur!!!) Við fórum þó ekki langt því fyrir hurðinni var vörutjakkur hlaðinn tveimur brettum sem batt skjótan endi á ferðalagið. Ég lét smávegis höfuðhögg ekki stöðva mig í ætlunarverki mínu og náði í pappír.
Með kúlu á hausnum og dofinn þumalfingur tók ég að strjúka pappírnum yfir dritaða framrúðuna. En dritið fór hvergi, það var frosið fast við framrúðuna og í stað þess að þrífa framrúðuna makaði ég hana út í kunnuglegum rauðum vökva (!). Ég leit í pappírinn, svo á dofna þumalfingurinn... báðir löðrandi í blóði! Svo virðist sem þumalfingurinn og þumalnöglin hafi skipt liði á flóttanum undan hurðinni ægilegu þarna skömmu áður. :S
Ég náði í plástur og náði síðan að skafa mesta dritið af bílnum með gluggasköfunni.
|
Nýr bíll! Laugh Laugh Laugh
Já, mikið rétt, ég var að skella mér á nýjan bíl! Laugh
En sá bíll er hvorki meira né minna en '94 árgerðin af Cadillac Sedan DeVille, svarblár að lit:



V-8 4,9 l. vélin sér kvikindinu fyrir 200 hestöflum í framhjólin. (hefði viljað hafa hann afturhjóladrifin, en ég er svo sum alveg sáttur við hann svona).
Innréttingin er öll í ekta, vel förnu, dökkbláu leðri og mahogany við.
Mælaborðið er stafrænt að öllu leiti. Sýnir eyðsluna jafnóðum og maður ekur, eða bara meðaleyðslu (frekar scary fídus).
Bíllinn lætur mig líka vita ef ég ek of lengi með stefnuljósið á, lætur vita af öllum bilunum, hversu langt sé þangað til ég eigi að fara með sig í smurningu, hvenær ég þurfi að fylla á alla vökva (rúðupiss, vökva á sjálfskiptingu, olíu, bensín, vatnskassi......).
Fjöðrun bílsins er tölvustýrð þannig að hún er mjúk og þægileg þegar ég er að aka hægt, en stífnar svo sjálfkrafa upp í kröppum beygjum og þegar ég eyk hraðann. Þannig liggur bíllinn mjög vel þegar ég er að aka hratt, en er mjúkur og þýður þegar ég er að rúnta. Laugh
Meira að segja spegillinn er tölvustýrður! Það ók jeppi fyrir aftan mig í gær og ljósin fóru að vana óþægilega illa í augun á mér. Þegar ég var að fara að tegja mig í spegilinn til þess að snúa honum undan þá tók ég eftir því að hann var að myrkva sig þar til ljósin hættu að angra mig. Þetta þótti mér svo athyglivert að ég ók næstum því út af! o_O (ég bendi á að þetta er ellefu ára gamall bíll).
Þegar maður setur bílinn í gír, þá læsast allar hurðar sjálfkrafa, og fara svo aftur úr lás þegar ég set í Park. Þetta er eitthvað sem ég gerði alltaf með handafli á gamla bílnum, en kemur sér einstaklega vel á þessum þar sem ég næ ekki yfir í hinar hurðarnar án þess að fara úr beltinu. Sjálfur ók ég alltaf um með læstar hurðar til þess að engin gæti rifið þær upp og sest inn (of mikið Grand Theft Auto fyrir mig, en hefur reyndar borgað sig tvisvar-þrisvar hjá mér), en ástæðan sem gefin er upp í bókini sem fylgdi bílnum var sú að þetta minnkar líkurnar umtalsvert á því að fólk kastist út í hörðum árekstri.
Í lyklunum að svissinum eru örflögur sem svissin nemur og les. Vanti flögurnar eða sé kóðinn rangur, fer bíllinn ekki í gang og ekki er hægt að reyna að gangsetja hann í 3 mín (ekki einu sinni með framhjátengingu sé það á annað borð möguleiki).
Svo er bíllinn með fjarstýrðar samlæsingar, þjófavörn og 11 hátalara hljóðkerfi (!) .

Það er þó slatti sem huga þarf að í þessum bíl:
-Það vantar merkið aftan á bílinn (þetta fancy cadillac merki) sem einnig þjónar þeim tilgangi að hægt sé að opna skottið án þess að hafa kveikt á bílnum (einnig hægt með fjarstýringunni). Merkið er auðveldlega hægt að panta á netinu, pantaði merki á gamla bílinn bara á e-bay, minnsta málið.
-ABS hemlunarkerfið er bilað sökum nema sem er eitthvað að böggast. Nýr nemi er á leiðinni nú þegar. Happy
-Ég fæ bara einn hátalara til þess að fúnkera, og hann fúnkerar VEL! -En gaman þætti mér að heyra í öllum 11 stykkjunum... Þarf að athuga þetta á mánudaginn.
-Tölvustýrða fjöðrunarkerfið þarf að athuga, bíllinn virðist vera ákveðinn í því að hafa hana alltaf á miðlungs mýkt.
-Fjarstýringin af bílnum fylgdi ekki, ég er að vinna í því að redda nýrri.
-Hið fræga Gulllyklapar sem fylgir öllum bílum frá þessum framleiðanda vantar. :S

Nú er það smurning um hvað ég á að gera við gamla bílinn... Bílinn sem ég ætlaði að eiga alla ævi og þykir mjög vænt um. Sad
|
WTF!? o_O
Mér var bent á grein á mbl.is þess efnis að kona hafi verið dæmd í fangelsi fyrir að setja kött í þvottavél, stilla á suðu og svo í gang. Kötturinn barðist hetjulega í 10 mínútur áður en hann lét lífið, fyrir framan börn konunnar, sem voru 5 og 15 ára. -Ástæða verknaðarins ku vera sú að kötturinn hafði klórað konuna.

Þótt mér þyki þessi atburður vitaskuld hrottalegur, þá hryllir mig meðfylgjandi mynd mun meira... Undir henni stendur "Dæmigerður heimilisköttur". Ég fæ bara ekki betur séð en þarna sé á ferð dæmigerður heimilisköttur með einn fótinn fastan og mölvaðan í bjarnargildru!!! o_O.

Annars er meira blogg á leiðinni bráðum.
.... Breakbeatkvöld Airwaves á morgun! Laugh Laugh Laugh
|