Nýr bíll!

23/10/05 17:19
Já, mikið rétt, ég var að skella mér á nýjan bíl!
En sá bíll er hvorki meira né minna en '94 árgerðin af Cadillac Sedan DeVille, svarblár að lit:
V-8 4,9 l. vélin sér kvikindinu fyrir 200 hestöflum í framhjólin. (hefði viljað hafa hann afturhjóladrifin, en ég er svo sum alveg sáttur við hann svona).
Innréttingin er öll í ekta, vel förnu, dökkbláu leðri og mahogany við.
Mælaborðið er stafrænt að öllu leiti. Sýnir eyðsluna jafnóðum og maður ekur, eða bara meðaleyðslu (frekar scary fídus).
Bíllinn lætur mig líka vita ef ég ek of lengi með stefnuljósið á, lætur vita af öllum bilunum, hversu langt sé þangað til ég eigi að fara með sig í smurningu, hvenær ég þurfi að fylla á alla vökva (rúðupiss, vökva á sjálfskiptingu, olíu, bensín, vatnskassi......).
Fjöðrun bílsins er tölvustýrð þannig að hún er mjúk og þægileg þegar ég er að aka hægt, en stífnar svo sjálfkrafa upp í kröppum beygjum og þegar ég eyk hraðann. Þannig liggur bíllinn mjög vel þegar ég er að aka hratt, en er mjúkur og þýður þegar ég er að rúnta.
Meira að segja spegillinn er tölvustýrður! Það ók jeppi fyrir aftan mig í gær og ljósin fóru að vana óþægilega illa í augun á mér. Þegar ég var að fara að tegja mig í spegilinn til þess að snúa honum undan þá tók ég eftir því að hann var að myrkva sig þar til ljósin hættu að angra mig. Þetta þótti mér svo athyglivert að ég ók næstum því út af! o_O (ég bendi á að þetta er ellefu ára gamall bíll).
Þegar maður setur bílinn í gír, þá læsast allar hurðar sjálfkrafa, og fara svo aftur úr lás þegar ég set í Park. Þetta er eitthvað sem ég gerði alltaf með handafli á gamla bílnum, en kemur sér einstaklega vel á þessum þar sem ég næ ekki yfir í hinar hurðarnar án þess að fara úr beltinu. Sjálfur ók ég alltaf um með læstar hurðar til þess að engin gæti rifið þær upp og sest inn (of mikið Grand Theft Auto fyrir mig, en hefur reyndar borgað sig tvisvar-þrisvar hjá mér), en ástæðan sem gefin er upp í bókini sem fylgdi bílnum var sú að þetta minnkar líkurnar umtalsvert á því að fólk kastist út í hörðum árekstri.
Í lyklunum að svissinum eru örflögur sem svissin nemur og les. Vanti flögurnar eða sé kóðinn rangur, fer bíllinn ekki í gang og ekki er hægt að reyna að gangsetja hann í 3 mín (ekki einu sinni með framhjátengingu sé það á annað borð möguleiki).
Svo er bíllinn með fjarstýrðar samlæsingar, þjófavörn og 11 hátalara hljóðkerfi (!) .
Það er þó slatti sem huga þarf að í þessum bíl:
-Það vantar merkið aftan á bílinn (þetta fancy cadillac merki) sem einnig þjónar þeim tilgangi að hægt sé að opna skottið án þess að hafa kveikt á bílnum (einnig hægt með fjarstýringunni). Merkið er auðveldlega hægt að panta á netinu, pantaði merki á gamla bílinn bara á e-bay, minnsta málið.
-ABS hemlunarkerfið er bilað sökum nema sem er eitthvað að böggast. Nýr nemi er á leiðinni nú þegar.
-Ég fæ bara einn hátalara til þess að fúnkera, og hann fúnkerar VEL! -En gaman þætti mér að heyra í öllum 11 stykkjunum... Þarf að athuga þetta á mánudaginn.
-Tölvustýrða fjöðrunarkerfið þarf að athuga, bíllinn virðist vera ákveðinn í því að hafa hana alltaf á miðlungs mýkt.
-Fjarstýringin af bílnum fylgdi ekki, ég er að vinna í því að redda nýrri.
-Hið fræga Gulllyklapar sem fylgir öllum bílum frá þessum framleiðanda vantar. :S
Nú er það smurning um hvað ég á að gera við gamla bílinn... Bílinn sem ég ætlaði að eiga alla ævi og þykir mjög vænt um.

|