Jul 2005
Frír Nokia sími?
26/07/05 19:58 Beinn
hlekkur
Einhver apakötturinn hefur komið af stað enn einu
hoax keðjubréfinu, en í dag er ég líklega búinn að fá
svona tíu eintök af þessari keðju og ég er að missa
vitið. Ég sé ekki betur en að allir sendendurnir séu
bláókunnugt fólk. Altént kannast ég ekki við
netföngin í fljótu bragði. Keðjubréfið er
svohljóðandi (óleiðrétt):
Hej allihop! Har du behov av att byta ut din > mobiltelefon?? Då har du > chansen här!! Nokia testar värdet av "mun till mun" > metoden vid > marknadsföring av deras produkter. Som tack för din > reklam får du en gratis > mobiltelefon. > > Skickar du mailet vidare till 8 personer får du en > Nokia 6210. Skickar du > det vidare till 20 personer får du en Nokia Wap. > > > Glöm ej att skicka en kopia till anna.swelan@nokia.com > > Din gratis telefon blir skickad till dig inom 2 > veckor, Nokia kontaktar dig > via din e-mail adress. > > Mvh > > Anna Swelan
hér kemur íslensk þýðing á þessu :
Hæhæ allir !! Langar þig að fá tækifæri til þess að skipta um farsíma ?? Ef svo er þá er þetta tækifærið!! Nokia er að testa hvaða verðgildi “mun til mun” leiðin hefur fyrir markaðssettningu á vörum þeirra. Sem þakklæti fyrir þitt framlag við að auglýsa þá færð þú ókeypis síma !
Ef að þú sendir e-mailið til 8 manns færðu Nokia 6210. En ef þú senir það til 20 mans færð þú Nokia Wap
Ath ekki gleima að sena líka eitt eintak til anna.swelan@nokia.com
Ókeypis síman þinn færðu sendan innan tveggja vikna, nokia hefur svo einnig famband við þig í gegnum e-mailið þitt
Kveðja
Anna Swelan
Fanny Jonsdottir
Starvägen 104
245 62 Hjärup
Fanny.jonsdottir@lut.mah.se
Eller
Viborg.gardar@telia.com
Fólk sem les þetta trúir þessu og sendir þetta áfram til 20 manns... Ég er ekki alveg að kaupa þetta og þar að auki langar mig ekkert til þess að pynta vini mína með svona löguðu, nóg er af ruslpóstinum fyrir.
Ef svo er að þetta sé allt saman satt og rétt sem í keðjubréfinu stendur, þá er ég samt sem áður ekkert spenntur fyrir þessum Nokia 6210 síma... Ef ég man rétt þá er þetta módel fjögura ára gamalt (2001), engir litir, engir pólýtónar eða önnur nútíma þægindi og þar að auki er hann risastór. Hérna er mynd af símanum sem um er að ræða. Þetta er úreldur sími og einskis virði.
Svo er boðið upp á eitthvað sem kallast "Nokia WAP" ef maður ákveður að bæta við sig 12 fórnarlömbum, en þetta Nokia WAP dæmi er, eftir því sem ég best veit, símahugbúnaður sem er úreldur og hægt að sækja ókeypis á WAPpinu nú þegar.
Mín kenning er sú að þetta keðjubréf hafi farið af stað þegar þessi sími var splúnku nýr. Það hafi byrjað í Svíþjóð og flakkað um manna á milli í öll þessi ár og sé nú komið á klakann - Trúgjörnum Íslendingum til yndisauka, Fanny Jonsdottir til ama.
Þið sem eruð að bauna þessu í allar áttir í von um að fá þennan steingerving sendan til ykkar frá Svíþjóð, gerið mér greiða og sendið þetta eitthvað annað í staðinn svo þið hafnið ekki í ruslpóstssíunni minni.
Þakka lesturinn.
-Alliat.

Hann á ammli í daaaag - hann á ammli í daaaaag!!!
20/07/05 00:56 Beinn
hlekkur
Jæja, þá er kjellinn bara skriðinn upp í 22.
aldursárið! Orðinn hundgamall bara:
" Aaaah!! Ég er að detta!! -Hvar er stafurinn minn!? o_O "
Ég er búinn að vera að fá afmæliskveðjur á hverjum degi síðan 1. júlí á teiknisíðu nokkurri sem ég stunda mikið. Þannig eru mál með vexti að afmælisdæmið bilaði og ég hef sem sagt núna átt afmæli á hverjum degi í 22 daga þarna. En engar gjafir frá þessu fólki ennþá amk. hehe. :P
Mamma og Gummi bróðir leggja af stað til Spánar á eftir og ég sit því einn að höllinni í tvær vikur, en sjálfur fer ég síðan út til Spánar eftir tvær vikur og kem líklega til með að mæta þeim í flugstöðinni þegar þau koma til baka. Þar sem FB koxaði á útskriftarferðinni ákvað ég að húkka mér far með MS-ingum til Costa Del Sol í staðinn. Dvel ég þar í herbergi með Agga og félögum í tvær vikur í sólinni... Ég er reyndar farinn að kvíða svolítið fyrir þar sem ég er alveg að bráðna í góða veðrinu hérna heima á klakanum. :S
Síðan þegar ég er búinn að fá að grillast þarna úti í eina viku kemur Magga með vinkonum sínum til að krydda spánarferðina mína... Gott að eiga svona vinkonur sem eru tilbúnir til þess að ferðast um heiminn til þess að hitta mann. :P
Líkur eru á því að ég fá "nýja" Cadillacinn minn í dag eða á næstu dögum. -Ekki móðgast stelpur, þetta er frábær árgerð bæði í bílum og fólki!
Ég er að spá í að setja smá græjur í hann. Ekkert áberandi neitt... og ekkert sem að spillir innréttingunni. Bara upp á að fá góða tónlist til að fulkomna rúntinn.
Svo ákvað ég í fyrradag að kaupa mér nýjan leik í Nintendo DS leikjatölvuna mína (nýi gameboyinn). Svona til þess að kíkja á af og til næstu dagana... Leikurinn heitir Another Code: Two Memories og ég festist samstundis í honum og hætti ekki fyrr en ég var búinn að klára hann allan samdægurs. Þótt hann hafi ekki enst mér nógu vel er ég bara nokkuð sáttur við hann... þetta er svona þrautaleikur í anda MYST, fullur af skemmtilegum fídusum. Til dæmis stóð ég í leiknum andspænis rammgerðri járnhurð með glugga á. Undir glugganum var talnalás og þurfti ég að slá þar inn 20 stafa lykilorð sem ég hafði ekki hugmynd um hvað væri. Ég pikkaði eitthvað í þetta og það kom villa... Það giskar ekki nokkur maður á svona kóða. Ég var ekki sáttur við að festast þarna og dæsti "ohhh djö..." -Þegar ég dæsti þá kom MÓÐA Á GLERIÐ á huriðinni í leiknum og þar voru tölustafirnir skrifaðir í móðuna!! Ég átti sem sagt að anda á leikjatölvuna til þess að það kæmi móða svo ég sæi hver kóðinn væri! Þvílíka gargandi snilld hef ég ekki séð fyrr né síðar!!
Daginn eftir fór ég síðan og keypti annan leik sem á víst að endast betur: Tom Clancy's Splinter Cell: Chaos Theory. Ég á enn eftir að prófa mig almennilega áfram í honum, en só far só gúdd.

Aight Aight Aight Aight Aight Aight Aight Aight Aight
Aight Aight Aight Aight Aight
06/07/05 18:55 Beinn
hlekkur
Allt í gúddí að frétta héðan úr Kópavoginum, Matti að
hressast og Elli líka allur að koma til. Reyndar er
Elli ennþá að flagga stresslitunum sínum, en þeir
hljóta að fara bráðum. Gæti verið að hann sé bara
pirraður því ég tók allt draslið úr búrinu hans til
að hindra hann í að príla of mikið og rífa sauminn.
Svo er ég að fara að kaupa mér "nýjan" bíl!
Tveggja dyra Cadillac Eldorado ("Hinn Gyllti") 1984 Limited Edition. Bíllinn er skjannahvítur og rosalega vel með farinn. Hann er allur bólstraður að innan með eðal, rauðu hnappabólstruðu leðri eins og í svona sófasettum. Hvergi er ryð að finna í eintakinu og er ég búinn að skríða um bílinn allan eins og snákur í leit að blettum án árangurs.
Á helginni mun ég skunda ásamt fríðu föruneyti til Þingvalla í enn eitt drykkjutjaldferðalagið. Er það mín áætlan að láta mexíkanahlaup upp á hæsta fjallið í augsýn og hesaþjófnað eiga sig að þessu sinni. Frekar mun ég freysta þess að kæla áfengið mitt í Þingvallavatni heldur en í snjó lengst uppi í fjarlægu fjalli.
Svo er Breakbeat grillveisla í kveld eftir smá stund! Boðið verður bæði upp á pylsur og pulsur. Sjálfur ætla ég að skella mér á pylsu þar sem það er bæði málfræðilega réttara, fallegra og þar að auki bragðast þær mun betur.
Eftir grillið verður skundað á Pravda þar sem spilað verður fyrir dansi til 1:00... Ætli ég verði ekki að fara að drífa mig, þetta byrjar eins og áður sagði eftir smá stund.