Jæja, þá er það sólstöðuhátíðargjafalistinn þetta árið. :P
Ég vil byrja á því að óska öllum lesendum gleðilegra jóla/sólstöðuhátíðar.
Og nú tel ég upp gjafafljóðið. Happy

-AirPort Express frá mömmu. Þennan náunga tengi ég við innstungu og hann svo við netið, prentarann og græjurnar og get ég (og 9 aðrar tölvur) þá tengst netinu þráðlaust, spilað tónlist úr tölvunni í græjurnar þráðlaust og prentað þráðlaust. Laugh
-Teningsöskubakka frá Silju og Dóra.
-Valiant myndina frá Tótu.
-Bækurnar "What's Out There?", "Extreme Nature", "Ships" og tungumálakennsluforritið "Lærið Japönsku" Frá ömmu og afa.
-Fyrstu seríur af Futurama og Family Guy frá Gumma bróðir.
-Tölvuleikinn Gun frá Gróu Dúa og púkunum fyrir vestan. Verst að þetta er PC leikur og ég er með Mac svo ég neyðist til að skipta honum. -Sorrý, en örvæntið ekki, hann er til fyrir GameCube svo ég get vonandi skipt þannig. Happy
-Face/Off og Jean Paul sturtugel frá Stefáni frænda.
-Sin City frá Atla frænda og fjölsk.
-Bolla frá Sigrúnu.
-Zelda bol frá Halli Erni.
-Myndirnar "Attack of the Killer Tomatoes", "Carry On Sergeant" og "The Party" frá Þorgeiri.
-Harley-Davidson peysaFrá Bjarndísi Túrbó. Winking
-Konfektkassa frá Heimilisprýði.

Rétt eins og á síðasta ári, þá finnst mér ég endilega vera að gleyma einhverjum, en það verður bara að hafa það... Vá... er komið heilt ÁR síðan í skrifaði gjafalistann síðast!? o_O
|
Enn einn arkítektinn á saurlistann minn...
Eftirfarandi orð heyrði ég í vöruskemmu Samskipa í dag er ég var þar staddur að sækja vörur:

"Eftir tvo daga sól svo hátt á lofti að enginn tími til að vera þunglyndur lengur... Sad "
-Hann neyðist þá víst til þess að vera hamingjusamur, greyið. :-/

Annars var allt á afturfótunum úti í vinnu í dag. Vinnufélagi minn rak hvíldarstól harkalega aftan í annan stól er hann var að færa hann til með þeim afleiðingum að það kom ljótt gat aftan á stólinn sem ekki er hægt að laga... Þar fór tæpur fimmtíuþúsund kall fyrir lítið. Skömmu seinna fór út Chesterfield sófasett í nýja bryggjuhverfið við Höfðann. Fínasta fínt, 395.000 kr. staðgreitt, en aðkoman!!! o_O
Ég hef alltaf haldið að hús yrðu rýmri með tímanum. Hingað til hafa martraðirnar alltaf verið að fara með stór húsgögn í fornar byggingar, en þetta hús var splunkunýtt og reyndar enn í byggingu að hluta. Þurftum við að dröslast með sófasettið inn um bílskúr sem þakin var alls konar braki, sagarblöðum og öðru byggingatengdu efni. svo kom 35 cm hár "þröskuldur" og vinkilbeygja upp þröngan hringstiga (!). Stólarnir tveir rétt komust upp hringstigann.... En obb... Þá var þriggja sæta sófinn eftir! Ég er snillingur í Tetris, en það var samt sama hvernig við snerum honum, hvort við tækjum lappirnar undan honum eða ekki, hann bara passaði ekki þarna inn. Fór loks svo að við urðum að skilja hann eftir í bílskúrnum þar sem enginn hafði útbúnað til þess að hífa hann upp á svalirnar. ÞETTA Á EKKI AÐ GETA GERST Í NÝJUM BYGGINGUM!!! Hvers konar lífi á fólk að lifa ef nær ógerlegt er að koma húsgögnum inn í íbúðina!? Þar sem um svo dýra mubblu er að ræða, þá vorum við allir að fara á taugum á meðan á þessum raunveruleikatetris stóð. Svo tók við gríðarlegt spennufall sem entist því miður ekki lengi.



Næsta sending var svo farin á annan stað (sem betur fer) með borðstofuborð í stærri kantinum og hafði kaupandinn lýst aðstæðum fyrir okkur við kaupin. "Anddyri á stærð við frímerki og úti- og innri dyrnar standast ekki á." Mér leið eins og ég væri orðinn sjö ára strákur í dimmu tjaldi að hlusta á hryllilega draugasögu og tók með mér viðgerðartúss fyrir borðið ef í hart skyldi fara. Varð þessi viðgerðartúss síðan aðaláhyggjuefni mitt þegar við fórum að bera borðið inn í hús því, eins og allar draugasögur, var lýsing kaupandans stórlega ýkt sem betur fer. En pennaskrípið hafði ég í vasanum og held ég að það hafi í þrígang munað hársbreidd að hann springi þar undan þrýstingi borðstofuborðsins. Það hefði ekki orðið skemmtilegt. En ég lifði daginn af, andlega krambúleraður. :P
|
ÚBBS!!! o_O

Úbbosííh! :S


Myndin hér að ofan hefur verið að ganga um veraldarvefinn í ótilgreindan tíma. Á henni er ónefndur menntaskólakennari brosandi út af eyrum með hægri höndina í klofi föngulegs sessunautar á súlustað. Eftir því sem ég best veit hefur umrædd mynd gengið á milli núverandi og fyrrverandi nemenda kennarans um víða veröld. Er þetta einkar óheppilegt fyrir mann í hans stöðu, enda eiga menntaskólakennarar að sýna gott fordæmi.
Samt sem áður er ekkert ólöglegt í gangi þarna. Altjént hef ég ekki heyrt nein lög sem banna sérstökum þjóðfélagshópum að stunda súlustaði öðrum framar. Reyndar eitt atriði sem að gæti verið ólöglegt, en það er snertingin. Ekki er ég viss um hvort þau lög séu bara almenn stefna eða lög en ég hef heyrt að það sé strangt tekið á brotum á þeim reglum sem banna snertingar á sýningargripum. Spurning hvort það hafi orðið eitthver eftirmáli þarna skömmu eftir að smellt var af, en þetta er samt sem áður svartur flekkur í kladda þessa kennara. Ég sendi honum hér með mínar samúðarkveðjur fyrir að vera réttur maður á röngum tíma í vitlausu húsi.

Persónulega er ég lítið fyrir svona staði gefinn, en ég er ekki á móti þeim heldur og finnst að þeir sem stunda þá ættu að fá að hafa sitt einkalíf í friði og því verður mér að spurn: Er almennt leyfilegt að taka ljósmyndir þarna inni?
Fyrir sakir skoðanna minna huldi ég andlitin á myndinni, en þarna eru mun fleiri en bara kennarinn og föruneyti á mynd.

Púkinn í mér verður þó að koma því á framfæri að mér þykir þetta svolítið fyndið, hehe. :P
|
Löðrungaður (meira svona bloggkejðudótaríWinking

æjæjh... :S


Kommentaðu nafninu þínu og..
1.  Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2.  Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3.  Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4.  Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5.  Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6.  Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig 
7.  Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt
Já endilega skelliði nafninu ykkar í commentagluggann ef þið hafið áhuga á að ég segi ykkur svona sniðugt um ykkur sjálf Winking
(þetta verður trikkí.... :S )

Tóta löðrungaði mig... nú verð ég að skrifa eitthvað sem ég myndi gera ef ég fengi að vera tjélling í viku...

Ég myndi
1) Njóta þess að fara niður í bæ og láta karlpeninginn um að borga allt ofan í mig.
2) Ég myndi hözzla e-ja aðra flotta stelpu (vonandi ekki einhvern annan gaur sem er líka að prófa að vera stelpa í viku því það gæti orðið vandræðalegt síðar)...
3) Tjékka hvort ég gæti munað að taka alltaf þetta pilluskrípi, því ekki langar mig að fara á túr og skemmileggja vikuna mína með skapofsa og blóðsúthellingum.
4) Berja hvern þann til óbóta sem myndi slysast til að káfa á mér. That outa teach’em...
5) Hmm... þetta yrði fínt mótiveisjón til þess að skella mér á kickbox æfingu... :P
6) Prófa þetta verslunarvesin... Sjá hvort ég sjái Kringluna og Smáralindina í nýju ljósi.
7) Syngja í sturtu... hvernig rödd ætli ég fái... röddin breytist með, er það ekki? o_O
8) Rukka Sigrúnu um meðlag, múahahaha!!! Winking

Held þetta sé nóg í bili... Og ég ætla bara að löðrunga
Agga, sem kemur líklega ekki til með að gera neitt í málunum og binda þar með enda á þennan bölverk. :P
|
ARG!!

Yfirvofandi reykingarbann er að fara með mig á taugum. Eins og flestum er kunnugt er líklegt að reykingar á öllum vinnustöðum verði bannaðar árið 2007. Mér finnst allt í lagi að reykingar verði bannaðar á veitingastöðum, hótelum, í verslunum o.fl. en EKKI á kaffihúsum, krám/pöbbum og skemmtistöðum! Fólk sem sækir um vinnu á slíkum stöðum veit að þar kemur til með að verða strompað. Nú þegar eru nokkur kaffihús alveg reyklaus, er það ekki nóg!? Ef þið viljið reyklaus kaffihús og skemmtistaði KOMIÐ ÞEIM Á LAGGIRNAR SJÁLF og snarhættiði að þykjast hugsa fyrir okkur, apakettirnir ykkar!
-Ég vitna í Dennis Lerary: Kaffi var líklega fundið upp af manni sem var að leita að leið til þess að geta verið lengur á fótum og reykt meira.

Þeir sem ekki vilja vera á skemmtistöðum þar sem reykt er ættu ekki að fara inn á skemmtistaði þar sem reykt er, hósta og kveinka sér.
-Einfaldara getur þetta nú ekki orðið.

Tæp 25% þjóðarinnar reykja að staðaldri og á að giska helmingur þeirra Íslendinga er stunda næturlífið reykja, þó ekki nema bara í glasi. Djammið verður ónýtt fyrir öllu þessu fólki, -Hvað vakir fyrir ykkur!? Misstuð þið ástvin í hendur krabbameins og kennið sjálfum ykkur um? Þetta er bara firra! Ég reyki og mun ekki koma til með að kenna neinum öðrum um en sjálfum mér þegar ég fæ krabbamein. -Hvers vegna? Vegna þess að ég er sjálfstæður Íslendingur og hugsa fyrir sjálfan mig! Hugsið þið fyrir ykkur sjálf og látið aðra í friði.
Nú hugsar einhver eflaust: "Allt í lagi, gefum okkur það að helmingur þeirra sem stunda næturlífið reyki, þótt ekki sé nema bara í glasi. Er þá djammið ekki ónýtt fyrir helmingi þjóðarinnar hvort sem er og óhollara í þokkabót?" -Óhollara vissulega, en það er ekki stór hluti þessa fólks sem að lætur reykinn angra sig. Í langMESTA lagi 20%. Af öllum þeim reyklausu manneskjum sem ég þekki eru tvær sem að láta reykinn fara í taugarnar á sér á djamminu, önnur þeirra er með reykingarasma og hin er með ofnæmi fyrir reyknum. Hversu stór hluti þjóðarinnar þjáist af slíku? 5%? 10%?

Og svo næsta skref: Banna reykingar á almanna færi. Neyða alla íslenska reykingamenn til þess að reykja inni hjá sér eða fara í eitthvað skúmaskot þar til ekki er lengur hægt að komast þangað fyrir stubbum. Einnig vil ég benda á það að ef ég er í glasi á röltinu í bænum með rettu í kjaftinum og það kemur lögregluþjónn og ætlar að voga sér að sekta mig þá mun ég hiklaust grípa til ofbeldis. Ég veit vel að ofbeldi mun bara gera illt verra, en mér mun líða mun betur ef ég læt þá hafa fyrir peningunum mínum. Ef kvenlögregluþjónn reynir að sekta mig við sömu aðstæður mun ég leggja á flótta því ég lem ekki kvenfólk.
Þetta eru lög sem ég mun aldrei krjúpa fyrir!

|
Kýldur

Oh... Aggi kýldi mig... nú verð ég að svara þessu gargani. :/

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. Halda listasýningu.

2. Sofa hjá Sylvíu Nótt (í karakter)

3. Klára háskólanám (í hverju?)

4. Læra Japönsku

5. Læra Rútínu svo ég geti lesið bloggið hans Agga.

6. Fara til Tokyo.

7. Fara til London.


Sjö hlutir sem ég get:
1. Teiknað með blýanti og penna.

2. Málað.

3. Gert skúlptúra.

4. Tekið fínar ljósmyndir.

5. Ort leirburð.

6. Ritað smásögur.

7. Teiknað í tölvu.


Sjö hlutir sem ég get ekki:
1. Hlustað á meðan ég er að gera eitthvað annað.

2. Munað fána ýmissa landa.

3. Munað hvar lönd eru á korti.

4. Munað afmælisdaga (hef gleymt mínum eigin nokkrum sinnum).

5. Sleikt á mér olnbogann.

6. Slitið mig frá tölvunni í meira en sólarhring.

7. Farið snemma að sofa og sofið til morguns (vakna alltaf 2-3 eða eitthvað eins og núna).


Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1. Flottur magi.

2. Falleg augu.

3. Flott bros.

4. Athyglisverður persónuleiki.

5. Fallegur hlátur.

6. Hegðunarmynstur sem er ekki fráhrindandi (t.d. að hverfa ekki í nokkra daga eftir djammið eða eitthvaðWinking.

7. Góður húmor.


Sjö frægir kvenmenn sem heilla mig:
1. Kirsten Dunst.

2. Catherina Zeta Jones.

3. Drew Barrimore.

4. Angelina Jolie.

5.
Arg man ekki fleiri frægafólksnöfn í bili :S.

6. Nibb... ennþá tómur.

7. pluhbluhblahbleh.


Sjö orð eða setningar sem ég segi oftast:
1. Ha?

2. Já.

3. Nei.

4. http://www.this.is/alliat/blogg

5. "Köffeh!?" eða "kaffús?"

6. Sko.

7. Góðan daginn.

HVERS VEGNA EKKI FIMM HLUTIR!?!? Það eru alltaf fimm hlutir, ekki sjö!! o_O
Gerði mér verulega erfitt fyrir. :/
Ah og ég ætla að kýla:
Snefu
Möggu
Möggu
Spritta
og
Björn Bjarnason.

|
Punch-Drunk Love og listasýning
Var að enda við að glápa á myndina Punch-Drunk Love með Adam Sandler. Þetta er svo skrýtin mynd að það er fyndið. Alveg í blábyrjun myndarinnar trítlar Sandler út á götu og lítur í kring um sig. Allt autt, hvergi neinn á ferli þar til það sést glitta í ljós tveggja bíla í fjarska. Hann horfir á þá keyra og skyndilega er eins og fremri bíllin aki yfir jarðsprengju (!), skýst upp í loftið og veltur á ægilegum hraða framhjá Sandler og út úr myndinni. Svo kemur nærmynd af Sandler að gretta sig og segja "úúffh..". Bíllinn sem ók á eftir bílnum sem sprak og valt staðnæmist fyrir framan Sandler og hendir út litlu orgeli og ekur burtu... Þetta jarðsprengjuincident kemur myndinni ekkert við, það er ekki einu sinni gáð hvort nokkur hafi slasast. Sandler tekur bara orgelið og hleypur aftur inn til sín.

Þessi bílveltusena var svo tilgangslaus og óvænt að ég er búinn að vera skellihlægjandi upphátt hérna þótt aleinn sé.
Myndin sjálf er voðalega eyðileg eitthvern veginn, á svona dulrænan og flottan hátt. Það er eitthvað við framsetninguna á henni sem minnir mig á myndina Lost in Translation með Bill Murray. Svona voða undarlegar og hráar myndir sem svona rúlla bara flatar í gegn og áður en maður veit af eru þær búnar, en samt eitthvern veginn finnst mér þær góðar.
-Já, ég er skrýtin skrúfa....

Annars skellti ég mér á opnun listasýningar Lóu (Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir) og Hulla (Hugleikur Dagsson) áðan. En hún er haldin í tónlistarversluninni Smekkleysu (í kjallara húsnæðis Bónusar á Laugarveginum).

Ég tók þrjá hringi þarna inni og fannst gaman að. Þá fannst mér helst standa upp úr veggur þakin litlum smáteikningum eftir Hugleik (hann bætti svo við einni og einni teikningu við vegginn annað veifiðWinking og svo tannaskúlptúrarnir hennar Lóu. Reyndar voru nokkrir snyðugir fuglaskúlptúrar eftir Lóu þarna sem ég tók ekki eftir fyrr en á öðrum hring, en þeir voru óheppilega staðsettir í gluggasillu vel yfir augnhæð sýningargesta.


Gamanaðissu Happy


Á meðan ég var þarna keypti ég mér svo tvo diska:

"The Campfire Headphase" með Boards of Canada og svo "La Maison de mon Reve" með Cocorosie.
Campfire Headphase diskurinn olli mér örlitlum vonbrygðum þrátt fyrir að vera rosalega flottur í heild sinni. Finnst Boards of Canada vera farnir of mikið inn á yfirráðasvæði Air. Mæli frekar með disknum "Music has the Right to Children" eða "Geogaddi" fyrir þá sem vilja kynna sér Boards of Canada.
La Maison de mon Reve diskurinn er hrein snilld. Þegar ég var að kaupa diskinn brutust upp kappræður milli afgreiðslumannsins og eins fastakúnans um hvort stelpurnar tvær í grúppunni væru frá BNA eða Canada. Hugsa að ég hefði alveg geta trítlað burt með diskinn á meðan á þessu stóð. :P Held að niðurstaðan hafi verið að þær séu fæddar í Canada en búi í BNA. Þetta er svona sykursæt "mood-setting" tónlist sem ég hef hingað til alltaf tengt við Ísland. Alls ekki ósvipað Emelíönu Torini og Múm. Pottþétt eitthvað sem Silja diggar feitt. Winking
|