May 2005
Stúdent!!

21/05/05 11:57 Beinn
hlekkur
Jæja, eftir stanzlausa skólavist síðan um sex ára
aldurinn hef ég nú loksins náð markmiði mínu;
stúdentsprófi. Ég náði öllum prófunum (þótt
hér sé ekki um að ræða neinar dúx einkunnir kanski)
og halaði mér inn 16 einingum og er nú kominn með
sléttar 140 einingar!
5 í ISL4036 (loksins!!!)
8 í ISL 6636
6 í JAR 1036 (jarðfræði)
6 í LIF 1036 (lífeðlisfræði)
7 í MYL 2024 (Myndlist - Grafík)
En hvað í ósköpunum á maður að gera af sér núna?
Ég er búinn að vera með þetta eina markmið fyrir stafni í um 15 ár og nú þegar því hefur verið náð þá veit ég ekkert í hvorn fótinn ég á að stíga... Svona svipað og ef að herinn yfirgæfi landið og eftir sæti hópur ringlaðra herstöðvarandstæðinga úti í móa með tóm skilti á lofti.
Ég er reyndar með tvennt í huga sem stendur:
1) LHÍ - myndlistarbraut
2) Hvarsemererágætt - ljósmyndaranám
Ég kem ekki til með að hefja annað hvort námið fyrr en að ári liðnu, því eins og áður sagði í fyrri færslu þá er námsþrekið búið í bili. Þannig að ég hef nægan tíma til þess að undirbúa mig og velta fyrir mér hlutunum.
Í kvöld verður vafalítið eitthvað júróvísjóndjamm á mér og á sunnudaginn kemur ISL6636 hópurinn til mín með bús. Planið er að hafa pontu á staðnum og sá sem situr við hana má einungis mæla í bundnu máli. Einnig er bannað að mæla í bundnu máli utan pontunnar. Þetta verður gaman!

|
Íslenskupróf
12/05/05 11:41 Beinn
hlekkur
Teikn vor'á lofti er ég pældi í prófi,
passlega fast Elli glefsað'í mig.
Dýrið sem ég ald'er bíræfinn bófi
að bíta í hönd þess er brauðfæðir sig.
Barátta mín öll til einskis er runnin
ef aumur sér kennarinn ekki á mér.
Námsmannaloginn er löngu útbrunninn,
lakara hefir þó gengið hjá mér.
Krossa ég fingur ef yrði ég ekki
að einbeita mér að líffræðiprófi.
fíflið hann ég mun heftur í hlekki
ef hangi í tölvu og læri í hófi.
Tvístígandi ég pikka í pennann
með párinu sóa ég tímanum hér.
Kveðja verð ég því kvæðabálk þennan
svo kvikindið bít'ekki höndin'af mér.
passlega fast Elli glefsað'í mig.
Dýrið sem ég ald'er bíræfinn bófi
að bíta í hönd þess er brauðfæðir sig.
Barátta mín öll til einskis er runnin
ef aumur sér kennarinn ekki á mér.
Námsmannaloginn er löngu útbrunninn,
lakara hefir þó gengið hjá mér.
Krossa ég fingur ef yrði ég ekki
að einbeita mér að líffræðiprófi.
fíflið hann ég mun heftur í hlekki
ef hangi í tölvu og læri í hófi.
Tvístígandi ég pikka í pennann
með párinu sóa ég tímanum hér.
Kveðja verð ég því kvæðabálk þennan
svo kvikindið bít'ekki höndin'af mér.
Föndriföndri...
11/05/05 18:49 Beinn
hlekkur
Ég ákvað að bregða á leik með skjáborðið mitt,
afraksturinn má sjá hérna.
Þetta óskýra þarna vinstra megin er MSN tenglalistinn minn, en hann er ekki á allra færi og biðst ég forláts á því til þeirra sem til sín taka... Reyndar ekki margir inni klukkan 7 að morgni. :P

Próf í próftörninni
10/05/05 03:47 Beinn
hlekkur
Ég tók þetta próf upp á djókið til að brjóta upp
hversdagsleika próftarnarinnar sem nú stendur yfir
hjá mér:
Svo er ég búinn að henda inn fleiri South park fólki! (sjá fyrri færslu)
You scored as Materialist. Materialism
stresses the essence of fundamental particles.
Everything that exists is purely physical
matter and there is no special force that holds life together. You believe that anything can be explained by breaking it up into its pieces. i.e. the big picture can be understood by its smaller elements.
What is Your World View? created with QuizFarm.com |
Svo er ég búinn að henda inn fleiri South park fólki! (sjá fyrri færslu)
South Park vinir
09/05/05 03:00 Beinn
hlekkur
Litla lirfan ljóta
05/05/05 17:52 Beinn
hlekkur
Ég var að fá Litlu lirfuna ljótu í póstinum!!
Þvílik gargandi snilld hefur ekki komið fyrir mig lengi! -Reyndar hef ég á tilfinningunni að langflestir hafi fengið hana í pósti, en að ég hafi verið einn af þeim langflestu fær mig til að brosa út að eyrum!
Annars tók ég eftir því, mér til mikils ama og armæðu, að ég þarf að þreyta síðasta prófið mitt að föstudeginum 13. Eins jarðbundinn og ég annars geri mig út fyrir að vera, þá leggst þessi dagsetning einkar illa í mig. :S

Smávegis prófastand.
04/05/05 20:28 Beinn
hlekkur
Já, ég tek einungis fjögur próf í þessari próftörn:
Samræmd stúdentspróf í íslensku og ensku (búinn í
þeim núna), Íslenskupróf, jarðfræðipróf og
lífeðlisfræðipróf. -Já, ég veit að þetta eru fimm
stykki, en samræmdu prófin voru svo létt og leiðinleg
að þau telja bara 0.5 hvort.
Reyndar þurfti ég að taka á honum stóra mínum til þess að missa mig ekki í tvígang í enskuprófinu. Í fyrra skiptið var það í hlustunarhlutanum, en mér var holað niður á borð fyrir framan manneskju sem virtist vera við dauðans dyr vegna kvefpestar og snörlaði agalega í henni allt prófið og þá helst á verstu köflum hlustunarinnar. En ég held ég hafi samt ekki gert neina villu í hlustuninni þrátt fyrir þetta. Seinna skiptið var ég nærri farinn að skellihlæja, en við, sem vorum með farsíma, áttum að slökkva á þeim og leggja þá í hrúgu á kennaraborðið við hlið útvarpstækisins sem brúkað var við hlustunarhluta prófsins. Yfirsetukennarinn var eldri maður og hafði greinilega takmarkaða vitneskju á nútíma tækni og tólum því í miðju prófinu fór einn símanna að hristast og skjálfa ásamt því háværa suði sem oft fylgir. Kennarinn spratt á fætur og hvessti augun á útvarpstækið(!). Hann horfði lengi á það áður en hann ráðgerði að finna stopp hnappinn og styðja á hann. Um leið og hann snerti takkann hætti síminn að hringja og kennarinn hlammaði sér í stól sinn hróðugur á svip.
Næsta próf er Jarðfræði, svo íslenskupróf og síðast lífeðlisfræðipróf. Ég mun að líkindum ekki fagna próflokum með djammi vegna pabbahelgar og líklega mun ég hanga uppi í rúmmi með koddann yfir höfðinu alla eurovisionhelgina, sem hangir nú yfir mér eins og biksvart óveðursský stútfult af ólukku og gelgjuskap.
Síðan er frá því að segja að vegna áeggjan Kristjóns félaga sótti ég um hjá nokkrum vöskum pilltum sem eru að dunda sér við að gera tölvuleik. Eitthvað áttu þeir bágt með að kyngja skrímslateikningunum mínum og var mér hafnað um starfið. Það er þeirra tap og minn tími, sem mun þá væntanlega allur fara í það að stækka NOVA leikinn alræmda, en söguþráðurinn er kominn langt á leið og forritunin er á byrjunarstigi.