Stúdent!!

21/05/05 11:57
Jæja, eftir stanzlausa skólavist síðan um sex ára
aldurinn hef ég nú loksins náð markmiði mínu;
stúdentsprófi. Ég náði öllum prófunum (þótt
hér sé ekki um að ræða neinar dúx einkunnir kanski)
og halaði mér inn 16 einingum og er nú kominn með
sléttar 140 einingar!
5 í ISL4036 (loksins!!!)
8 í ISL 6636
6 í JAR 1036 (jarðfræði)
6 í LIF 1036 (lífeðlisfræði)
7 í MYL 2024 (Myndlist - Grafík)
En hvað í ósköpunum á maður að gera af sér núna?
Ég er búinn að vera með þetta eina markmið fyrir stafni í um 15 ár og nú þegar því hefur verið náð þá veit ég ekkert í hvorn fótinn ég á að stíga... Svona svipað og ef að herinn yfirgæfi landið og eftir sæti hópur ringlaðra herstöðvarandstæðinga úti í móa með tóm skilti á lofti.
Ég er reyndar með tvennt í huga sem stendur:
1) LHÍ - myndlistarbraut
2) Hvarsemererágætt - ljósmyndaranám
Ég kem ekki til með að hefja annað hvort námið fyrr en að ári liðnu, því eins og áður sagði í fyrri færslu þá er námsþrekið búið í bili. Þannig að ég hef nægan tíma til þess að undirbúa mig og velta fyrir mér hlutunum.
Í kvöld verður vafalítið eitthvað júróvísjóndjamm á mér og á sunnudaginn kemur ISL6636 hópurinn til mín með bús. Planið er að hafa pontu á staðnum og sá sem situr við hana má einungis mæla í bundnu máli. Einnig er bannað að mæla í bundnu máli utan pontunnar. Þetta verður gaman!

|