Hvers vegna?
Hví var mér fagra manið fengið?
Ranga leið ég hef mér valið.
Hversu langt hef ég nú gengið?
Allt of langt, ég hef það talið.

Hví var mér fagra manið fengið?
Hún fékk aldrei nóg af mér.
Nú horfið er mér fagra engið,
Sem hún bar í skauti sér.

Hví var mér fagra manið fengið?
Til þess eins að glata á ný?
Hvað mun segja, gamla gengið?
Tæpt árs samband fyrir bý.

Hví var mér fagra manið fengið?
Ástæðuna veit ég ei.
Rofið er nú trausta tengið,
sem batt við hana ástarfley.

Því var mér fagra manið fengið,
að ég sigldi mínu knarri.
Skaðlaust er mér háa hengið,
því hamingjan er aldrei fjarri.



|
Harry Hitler
Ég var að komast að því að Harry bretaprins hafi klæðst sem nasisti á grímuballi nokkru. Þessa uppákomu titla ég mestu snilld ársins fram til þessa!
Undarlegt þykir mér þó að Beta bretadrolla hafi fundið sig knúna til þess að afsaka hann sökum þessa. Einnig þykir mér undarlegt skilningsleysi bresku þjóðarinnar sem krefst opinberrar afsökunarbeðni frá prinsinum. Hefði hann klætt sig sem Satan, sem er talinn af þeim sem kristnir eru, uppspretta alls ills (þ.á.m. Hitlers) í gervallri veröld vorri þá er ég viss um að engin hefði gert eina einustu athugasemd við búninginn.

Harry prins í Hitler búning
hakakrossi sveiflar.
Bretlandsdrollu býður snúning
Beta smettið geiflar.




|
Latínusull
Ég var að komast að því að ég mun neyðast til þess að syngja Gaudann við útskrift mína ásamt restinni af þeim sem eru að sleppa. Þetta þykir mér einkar óhugguleg tilhugsun þar sem ég hef þrjár ástæður til þess að hrylla mig er ég heyri hann.

1) Gádinn er Latína og hana þoli ég ekki. Einstaklega fallegt tungumál og praktískt að læra það, en ég er þannig úr garði gerður að tungumál þetta er einfaldlega of erfitt fyrir mig og það fer í taugarnar á mér.

2) Gádinn er MR söngurinn, a.m.k. er kennd alvöru Latína þar. Hér í FB er ekki kennt svo mikið sem gervilatína. Ég er ekki lengur í MR, hvað þá að útskrifast þaðan... Þess vegna þykir mér söngurinn ekki við hæfi. Svona svipað og ef að einhver myndi skella á laginu "Beat it" með Michael Jackson við jarðarför.

3) Gádanum var nauðgað í sjónvarpinu á síðasta ári. Það var hann Þorsteinn Guðmundsson ásamt KB banka sem voru þar að verki með auglýsingaherferðina "Namus est lifstillum" sem þykir ekki beint góð latína hjá þeim sem til hennar þekkja. (Þeir sem að misstu af umræddri auglýsingaherferð geta smellt hér og síðan smellt á hlekkinn "Þorsteinn í auglýsingum").

Gádinn hefur veginn verið,
víst er talinn liðinn þáttur.
Utinam Þorsteinn eygi kverið
og uppgötvi að mennt er máttur.




|
Hausverkur dauðans
Huge var minn hausverkur
hug minn hvaldi
bannsettur bölverkur
beitti mig valdi.

(Þannig ég var þvingaður til þess að halda heim úr skólanum og sleppa íslenskum fræðum.)

Dreyr ég sá í hverjum hjartslætti,
hélt ég eigi lifa mætti.
Ók því heim sem óður maður,
þvertók fyrir alls kyns þvaður.
Sundur tók mín sál að klofna
sem og sjón mín fór að dofna.
fann mig allt heimsins auma slen,
uns ég rambaði á íbúfen.
Tókst mér þá loks að sofna.



|
Göt göt göt
Göt, göt, göt -Snemma'ð morgni.
Göt, göt, göt -Seint að kveldi.
Götin spanna hér dag og nótt.
Götin er' einsog hitasótt.

Stundataflan mín er agalega götótt. Fæ ég nú að dúsa í minnst tveggja klukkustunda götum alla virka daga nema föstudaga. til að mynda fór ég í langfyrsta mögulega tímann í dag klukkan 08:15-09:35... Því næst fór ég í allrasíðasta mögulega tímann í dag klukkan 16:15-17:45. Á undan síðasta tímanum átti reyndar að vera tvöfaldur tími, en hann féll niður sökum forfalla.

Þessi síðasti tími sem ég fór í var svokallaður MNN áfangi og er hann eingöngu fyrir þá sem að eru að útskrifast á þessari önn. Fannst mér þess vegna undarlegt að vera nú fyrst spurður hvort ég hefði einhverjar uppástungur til batnaðar varðandi skólann, námið og annað þessu tengt. Eftir að hafa jafnað mig á því áfalli sem þessi tímasetning olli mér stakk ég upp á forriti til þess að geta breytt stunatöflunni sinni á netinu byrjuðu uppástungurnar að fjúka að skólameistaranum. Vinalegar uppástungur breyttust síðan snemma í ákaft nöldur og virtist sem hinn nýsjálfkjörni formaður útskriftarnefndar ætlaði sér annað hvort að afla sér skjótrar hylli árgangsins með harkalegum ávítunum á bankaauglýsinguna í skólanum eða stofna til hópslagsmála í hátíðarsalnum. Tók hann fram að ef þessi auglýsing bæri árangur myndu nemendur taka að flosna upp úr skóla sökum skulda vegna alls konar lána sem þeir hefðu tekið hjá bankanum... Mér fannst þessi athugasemd því sem næst móðgandi, við erum ekki einhver Sims™ kvikindi hérna, við höfum sjálfstæðan vilja og ein auglýsing breytir nákvæmlega engu. En ég hélt kjafti og fór að spila Megaman 2™ á meðan mestu ósköpin gengu yfir. Eftir að hafa setið undir þessu nöldri í rúma klukkustund fengum við að fara heim og ég er ekki frá því að það var eins og hörðustu nöldurseggirnir hefðu grennst við þetta maraþon. Ég fór uppgefinn heim og sofnaði samstundis í öllum fötunum uppi í rúmmi.



|
Milli með stóran....
Mér var að berast tölvupóstur frá The Desk of Price Award Dept krasloten International NV RIJKWIJK, Nederlands þess efnis að ég hafi verið einn af fimm heppnu vinningshöfum sem hrepptu eina millijón bandaríkjadollara í í-meil happadrættinu þeirra... Ef ég legði nú saman allan þann pening sem ég hef "unnið" á þennan hátt þá ætti ég núna rúmar 800 millijónir bandaríkjadollara. Það sem er undarlegt við þessa gaura er að í reitnum sem venjulega inniheldur mitt netfang, er ókunnt netfang ásamt því að þeir fara ekki fram á annað en happatölurnar mínar og símanúmer. Eflaust spyrja þeir að bankanúmeri símleiðis, ég vara alla hér með við svona tölvupósti, það kann ekki góðri lukku að stýra að svara þeim.
Einnig hef ég lagt saman alla typpastækkunarruslpóstana mína og fengið það út að hefði ég gripið öll þau tilboð þess efnis státaði ég nú af 7,67 metra bjúga með rétti á endurgreiðslu.



|
Versta og besta
Ég ákvað að leggja höfuðið í bleyti og velja verstu og bestu ýmislegt fyrir 2004.

Besta Bíómyndin (svo margar tegundir, þannig að ég nefni nokkrar):
-Shrek 2
-I, Robot (tæknibrellur!!!)
-Secret Window
-Spiderman 2
-Harold and Kumar go to WhiteCastle
-Einnig er ég nokkuð viss um að The Incredibles myndi rata hingað ef ég væri búinn að sjá hana.

Flottasta bíógellan: Kirsten Dunst

Besta lagið: Úff... fyrir utan það hvað ég fann mikið af skemmtilegum lögum þetta árið, þá veit ég ekki hvenær helmingur þeirra var saminn, þannig að ég læt nægja að nefna nokkur þeirra bestu sem ég fann 2004:
-Russian Dance með Tom Waits (Alternative) Drykkjulag dauðans!
-Invid [Future Cut Second Coming Remix] með Dieselboy (hardstep)
-Tough at the Top með EZ Rollers (jazzstep) líklega besta lagið!!!
-The Rhode Tune með Flytronix (jazzstep)
-Doctor Jazz með George Lewis (jazz) Örruglega síðan 1960
-Sofa Rockers (Sofa Surfers) með Kruder & Dorfmeister (Acid Jazz)

-Ug með Mr. Scruff (Acid Techno?) notað í fyrsta Weebl & Bob þættinum.
-Cominagetcha með Propellerheads (Big Beat)
-Champion sound (Total science remix) með Q Sound (Drum 'n Bass)


Versta lagið: Dragostea din Tei með O-Zone -Þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um enda versta af því versta þetta árið... "freees du bleees ala jobba jobba jei!!"

Versta bíómyndin: Catwoman. "Purrrrrrrrrrrfect.... Meoooow." Mynd um baráttu kattarkonunnar gegn snyrtifyrirtæki sem plottar heimsyfirráð getur ekki verið góð... -Og það var hún heldur ekki.

Og loksins er hægt að kommenta! Laugh



|
Gleðilegt nýtt ár!
Jibbíí! Nýtt ár gengið í garð! Laugh
Aðeins hálft ár í stúdentinn minn. Happy

Hérna eru svo kominn valin hluti ljósmyndanna sem ég tók í fyrra (2004) og ekki má gleyma stúdíómyndunum af Silju. Gjöriði svo vel! Laugh

Fyrrverandi nemandi FB fékk þau virtu verðlaun Europian Awards of Creative Excellence eða Eurobest fyrir gerð þessa auglýsingu. Er þetta í fyrsta sinn sem að íslendingur hlýtur þessi verðlaun og átti hann þau mjög vel skilin að mínu mati. Alls tóku 1086 auglýsingar þátt í keppninni. -Til hammó með þetta íslendingar!
|