Sniiiiilld!!!
Andskoti væri það skemmtilegt að geta verið með svona skjá!
Fyrir utan það hvað þetta væri dásamlega, yndislega, unaðslega svalt, þá hefði þetta ýmsa möguleika í för með sér:

-Ef makann vantaði athygli þá væri ekki lengur nein þörf á að yfirgefa tölvuna.
-Ef manni leiddist á kaffihúsi, gæti maður tekið upp á því að opna Photoshop og dunda sér við að krassa yfirvaraskegg, horn, bólur o.s.frv. á andlitið á manneskjuni sem sæti andspænis manni.
-Maður mundi ekki missa eins mikið af í skólanum.
-Maður gæti horft á sjónvarpið í GEGN um tölvuskjáinn! Laugh

Vá hlussan! :P


Svo er það þessi líka fjallmyndarlega nýja ferðatölva frá Apple... En hún er svo stútfull af flottu drasli að hún vegur um níu kíló og er örlítið þykk, en hvað gerir maður ekki fyrir tæknina, ha? Winking
|
Ömm...
Jeminn... Sjáiði ljóðið efst á þessari túristasíðu? hehe. :P
|
Dimmisjón!! Laugh
Þetta var allsvakalegt!
Ég byrjaði daginn á morgundrykkju klukkan 8:30 og var stöðugt að þangað til klukkan 16:00 og drakk um 7 bjóra á því tímabili. Var ég klæddur í Pancho, mexíkanahatt og yfirvaraskegg auk þess að vera með forna byssu í fórum mínum, púðurkút og klassískan gítar. Gerði ég mér það að leik að setjast upp að veggjum skólans, draga hattinn niður fyrir augu og plokka spænskt plokk á gítarinn. Vakti þetta mikla lukku. Síðan hélt ég heim á leið að leggja mig fyrir matinn sem var á Pizza 67. Ég svaf í rúma klukkustund og vaknaði skrælþunnur og ónýtur. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að ég var ekkert allt of duglegur að borða. Síðan var setið að drykkju í koníakstofunni til um 21:00, en þá var trítlað yfir á Keltic þar sem Páll Óskar plötusnúðaðist og frír bjór var á boðstólnum. Ekki hef ég tölu á því hvað ég lét mikið ofan í mig af bjór, en sökum þynnku var ég lengi í gang. En ég var ekkert allt of fullur, bara svona léttur á því. Hékk ég á Keltic til svona tvö og var mikið dansað og drukkið, Palli sprengdi tvo hátalara og mörg bjórglös brotnuðu á dansgólfinu.

Eftir Keltic fór ég á pöbbarölt með Nonna og enduðum við á Ellefu þar sem ég þekkti slatta af fólki. Þegar hópurinn ákvað að fara á Dillon skildust leiðir og ég hélt áfram pöbbaröltinu. Hafnaði ég á Nelly's þar sem ég hitti fyrir Möggu vinkonu ásamt fríðu föruneyti. Það vakkti furðu mína að hún var einungis í einum skó, en nýlega hafði hún stigið á títiprjón og þurfti að grafa hann út. Fóturinn var það bólginn að hún komst bara í annan skóinn. Þurfti hún að dansa af einstakri varúð með glerbrot í huga. Við ákváðum að fara á pöbbarölt eftir langa danssyrpu og bar ég Möggu upp og niður Laugarveginn, fyrst upp að Ellefu þar sem við stoppuðum stutt og týndum hópnum, síðan niður að Lækjartorgi þar sem við áttuðum okkur á því að við vorum á leiðinni í vitlausa átt og snerum við og fórum upp að Hverfisbarnum. Þar hitti ég Silju, Dóra, Ásdísi og fleiri. Aftur stoppuðum við Magga stutt við og héldum niður að Hressó. Þegar hér er komið við sögu neitaði Magga að ég bæri sig lengra og því brá ég á það ráð að lána henni annan skóinn minn. Ég var ekki í eins mikilli æfingu í að forðast glerbrotin og hún og steig ég margoft á nokkur slík, en eitthverra hluta vegna slapp ég við öll sár. Það sem verra þótti mér var, þegar við vorum komin inn á Hressó, að stigið var á skólausa fótinn á mér. Þarna voru hnífbeittir pinnahælar á ferð sem héldu uppi ýturvaxinni konu sem dansaði undarlega blöndu af tangói og steppdansi. Nú kom sár... Við hittum Mas (Þorgeir) og Elísu og aftur var mikið dansað þar til orkan kláraðist og haldið var heim á leið.

Sem sagt mjööög gaman, frekar sárt en alveg þess virði! :P
Ég get varla beðið eftir útskrifarferðinni! Laugh
|
Blöööh²
Það var hætt við hótelferðina vegna slakrar mætingar! Sad
Ég hafði einmitt fengið veður af því að fáir ætluðu að láta sjá sig (um 30-40 manns) og hafði því hugsað mér að það yrði fámennt en góðmennt og léttur stemmari, en það var víst of mikið tap að halda þetta fyrir svona fáa. Sennilega er hægt að kenna veggspjöldunum um þetta ásamt hinu hóteldjamminu sem var fyrr á önninni þar sem allir voru læstir inni í herbergjunum sínum og læti. Fólk hefur líklega talið að þetta djamm væri aðeins fyrir útskriftarnema og þar að auki trúað að þetta yrði svipað og síðasta hóteldjamm. En hér var um 18 ára aldurstakmark að ræða, þannig að enginn hefði verið læstur inni neins staðar.
Við 30-40-50 sem keyptum miða fengum þá að fullu endurgreidda ásamt armböndum sem að garantera eins mikið öl og við getum í okkur látið á meðan DJ-Palli spilar fyrir dansi.
Hulda vinkona ætlaði ekki á þetta ball, þannig að hún gaf mér tvö armbönd og asnaðist til þess að festa annað þeirra á mig, þannig að nú á ég inni tvöfalt það áfengi sem að ég get í mig látið... Ég stórefast um að ég taki það allt saman út og bölva því að ég geti ekki losað armbandið og gefið það einhverjum/einhverri skemmtilegum/skemmtilegri. :/

Ég stökk í Þrumuna og Hókus Pókus áðan og trítlaði þaðan út dimmisjón búningi og spark-í-rass geisladiski ríkari. Diskurinn inniheldur Adam F og DJ Fresh mix af lögum eftir Pendulum, Dillinja, Origin Unknown, Baron, DJ Craze, Distorted Minds og Future Prophecies... Allt meira og minna ýturvaxin nöfn úr heimi trommu og bassa tónlistarinnar! Laugh
|
Blöööh...
Jói frændi veiktist eitthvað illa og ég þurfti að vinna mestalla helgina, þó skellti ég mér á djammið eftir vinnu. Þannig að föstudagurinn hjá mér var svona:
1) Skóli 8:15-9:55
2) Jarðfræðiferð (þar sem ég týndi nærri lífinu) 10:00-14:00
3) Vinna 14:30-21:00
4) Afmælisveisla hjá Thelmu frænku 22:30-00:00 (ég fann hana síðan ekkert og mátti dúsa einn niðri í bæ þangað til liður nr. 5 hófst.
5) Afmælisveisla breakbeat.is; Goldie spilar á NASA: 00:05-7:304:00 (þegar þarna var komið við sögu var ég alveg búinn á því og sofnaði).

Laugardagurinn:
1) Vinna 14:00-20:00
2) fara heim og gera sig kláran fyrir leikhús - Reyna að skipta um dekk með biluðum tjakk, finna síðan tjakk sem er í lagi og skipta um dekk...
3) Missa af leikhúsi
4) Tom Waits djamm með Dóra og Agga! Laugh
5) AllogSiljudjamm! Laugh

Annars rakst ég á stórskemmtilega míkrógrein í Lifandi vísindum um elsta páfagauk sem vitað er um. Hann er 104 ára og heitir Charlie og á að hafa verið í eigu Winstons Churchill. Fugl þessi bölvar nasistum í gríð og erg, en er þó einkum uppsigað við Hitler.

Á föstudaginn:
Dimmisjón!!!!! Laugh
1) Mæta í skólann og trufla kennslu með ólátum og ölæði.
2) Hoppa upp í rútu og brúmmast upp á hótel þar sem hægt verður að fá sér sundsprett eða bublast í heitu pottunum fram eftir nóttu. Herbergispartý, Páll óskar þeytir skífum og svo eitthvað band sem spilar. Þetta verður vonandi rosalegt! Laugh

Mottó færslunnar: Aldrei að gerast kærulaus á brún hengiflugs...
|
Breakbeat og jazz!!!!!!
Betri held ég að hlutirnir gerist ekki... Reyndar var jazzinn í súrari kantinum hjá þeim félögum í M & M. Þetta voru mun líflegri tónleikar en hjá Hummus, sem ég fór síðast á, en hér var ekkert nýtt á ferð. Þeir voru bara með súrar hversdagslegar ballöður. Allir meðlimir grúppunnar voru reyndar mjög færir og spiluðu mjög vel þessa lyftutónist en mér var nóg boðið í bili, enda ekki staddur í neinni lyftu og ætlaði mér ekkert að koma nálægt neinni sklíkri þetta kvöldið. -Ég var einfaldlega ekki í neinu lyftustuði.
Ég ákvað að flýgja Hótel Borg og skella mér yfir á Breakbeat kvöldið að tjútta. Það kom snemma í ljós að ég var alls ekki klæddur upp fyrir hamaganginn sem því fylgir að dansa við svona tónlist, en ég lét mig hafa það að hífa upp buxurnar á 30 sek. fresti. Þetta plan gekk ágætlega eftir þangað til að ég varð of upptekinn við að dansa og gleimdi að taka tímann á buxnahífingunum og þær runnu niður á hné á miðju dansgólfinu. Ég fraus í hálfkláruðu dansspori. greip buxurnar sem voru á hraðri niðurleið og þá kom stórt flass!! Vinsamlegast segið sendið mér myndina ef þið finnið hana á netinu, mér þætti gaman að sjá svipinn sem ég setti upp ef hann kom fram á myndinni. :P
Aðra kynjaveru en mig var að finna á dansgólfinu, en það var ýturvaxinn náungi sem að dansaði 90% hægar en allir aðrir. Hann flakkaði um dansgólfið með skjalatösku í hendinni og dansaði við hina og þessa, þ.á.m. mig. Hann skartaði reiðiblandinum geðshræringarsvip sem sagði: "AF HVERJU DANSIÐI SVONA HRATT!?!?" allan tímann og hélt ávalt stöðugu augnsambandi við "dansfélagana" hvort sem þeim líkaði betur eða verr.
Þegar tjúttinu lauk hélt ég út og varð ljóst að það var allt komið á kaf í svalandi snjó... Alltaf gaman af þessu veðri... Sumardagurinn fyrsti eftir tvær vikur, ha? Winking

Á morgun: Jarðfræðiferð, afmælispartý og síðan annað afmælispartý; GOLDIE!!!!! Laugh Laugh Laugh
Hinn: Tom Waits whiskydjamm!! Laugh

Ég finn mig knúinn til þess að taka undir það að ég snerti ekki eiturlyf þótt ég hlusti á svona tónlist. Þeir sem að halda slíku fram eru fordómafullir og eiga bara heima.... ömm... heima hjá sér!! :P

-Það skera sig ekki allir mansonistar.
-Það er hægt að hlusta á Bob Marley án þess að reykja stuð.
-Það eru ekki allir svartir menn negrar...

Q.E.D.
|
Sjibbííííííj!!!
Ég var að vakna rétt í þessu! Sólarhringurinn er kominn á réttan kjöl á ný! Laugh Laugh Laugh
Annars gekk mér bara ágætlega í prófinu í gær. Ég veit um tvær villur, en ég verð bara að bíða þess að fá prófið í hausinn aftur.
Sem minnir mig á það að ég hlakka ekkert sérstaklega til að fá steinagreiningarprófið í hausinn aftur... :S
Næsta próf: Lífeðlisfræði... Hvers vegna var ég að taka allar þessar raungreinar? -Ég er á listasviði... o_O

Dimmisjón í næstu viku, það verður skrautlegt.
-Tíminn flýgur hratt ekki satt?
|
*GEISP!!*
Sólarhringurinn enn á hvolfi hjá mér... ég vaknaði núna rétt upp úr miðnætti... Ætli ég nýti ekki tímann til þess að læra fyrir jarðfræðipróf nr.2. -Nú hef ég spil uppi í erminni, ég veit nefnilega nákvæmlega hvað er til prófs, sem getur varla skaðað neinn. Laugh

Annars notaði ég kvöldvökur mínar til þess að krassa, fikta í þessari síðu og svo Kláraði ég Metal Gear Solid: The Twin Snakes á stuttum tíma á GeimKjúbinum mínum, en ég hafði spilað hann áður í bernsku PleySteisjón 1 tölvunnar. Þetta er fantagóður leikur, en frekar fljótunninn og með allt of léttum endaköllum ef maður spilar leikinn eins og ég: Standa bara á opnu svæði og drita á vondakallinn og hunsa þegar hann meiðir mann, eða einfaldlega rétt færa sig til hliðar þegar hann gerir eitthvað af sér.

Ég er aftur kominn á fulla ferð á Doodlebug og forvitnir geta skoðað krassið mitt þar með því að smella hérna. Það sem ég er svo hrifinn af við þessa teiknisíðu er að þarna er bara einn litur: svatur, eitt áhald: penni, ein línuþykkt: mjó og ekkert undo eða strokleður. Síðan er líka takmarkað "blek", þannig að maður verður annað hvort að teikna mjög rösklega og/eða vanda vel hvar maður setur línurnar.

Svo er ég búinn að finna lag sem að fer meira í mig en Dragonstea din tei (mér er skítsama hvernig það er stafsett!). Ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir, en það er svona strumpahip-hop lag. Einhver bad-ass rappari böstar rímur hægri-vinstri og inn á milli kemur strumpur og singur: "loooonelyyyyyyyyyyyyy, I am so looooonelyyyyyyyyyyy, blahblahblahblaaaaaahblaaaaah..." o.s.frv. Það er ekki líft inni á skemmtistöðunum fyrir þessu andskotans helvíti. Ég meina, það er altént hægt að dilla sér víð dragonblah din blei, en þetta lag er svo rólegt og leiðinlegt að dansgólfin gersamlega tæmast fyrir utan kanski svona eitt tvö pör sem dansa vals eða vangadans. Ég botna ekkert í plötusnúðunum að láta þennan hausverk á fóninn. Sad
|
Heimatilbúin orðatiltæki og afbakaðir málshættir:
Fall er drambi næst í teygjustökki. - Mjög einhæfur málsháttur. Fólk er yfirleitt frekar montið eftir teygjustökk og talar varla um annað í X-langan tíma.

Lík eru liðin. - Hann er tvíræður þessi. Lík eru bæði liðin (dauð þ.e.a.s.) og liðin (dauð þ.e.a.s.) eru lík. Sbr. beinagrindur eru oft mjög áþekkjanlegar.

Sjaldan fellur steinninn langt frá kveifinni. - Annar sem má víst skilja á tvo vegu, en þó hafði ég þessa merkingu í huga: Kveifin (dugleysinginn) er ekkert allt of sterk og getur því ekki kastað steininum langt. Önnur merking leit dagsinns ljós er kennarinn minn las hann: Kveifin eyðir deginum í að óttast það að eitthvað slæmt muni henda hana og þess vegna hendir hana eitthvað slæmt.

Eins sorp er annars matur. - Bara afbökun á málshættinum "eins dauði er annars brauð." Nema hér er þetta mun einhæfara.

Köld eru stjórnarráð. - Segir sig sjálft. Oft er þjóðin bara tölfræði í augum þeirra.

Sjaldan er ein báran flöt. - Já, ef bára er flöt... er hún þá bára?

Þeir róast sem fiska. - Altént róast ég við það að fiska.

Kalt er grey í harðindum. - Þessi segir sig sjálfur.

Fræ verður furutré - Jafnvel agnarsmátt fræ getur á endanum orðið að tröllvöxnu furutré við réttar aðstæður. Þetta á einnig við um fólk... Djúpt, ekki satt?

Að setja hass í friðarpípuna. - Að þvinga e-rn til samvinnu með bellibrögðum.

Að fægja skjöld e-rs. - Sbr. að halda skildi sínum hreinum, nema þarna er það gert fyrir hönd e-rs annars. "Palli er duglegur að fægja skildi minnihlutahópa" - Það má sem sagt varla minnast á orðin "svartur" eða "hommi" án þess að aumingja Palli taki kipp.

Að róta upp stríðsöxinni. - Andstæðan við að grafa stríðsöxina, þ.e. að egna gamlan óvin upp á móti sér á ný.

Ég vil síðan brúka tækifærið til þess að bægja á brott slúðri og sögusögnum sem að
Tóta hefur víst verið að heyra úr öllum áttum undanfarið þess efnis að ég sé bara kominn á bólakaf í saurlífi og neyslu eiturlyfja. Þetta á ekki við nein rök að styðjast og ég bið fólk eindregið um að gæta tungu sinnar þegar að málum sem þessum er komið!
|
Bylting í hugbúnaðargeiranum!
Rakst á þetta einstaklega skemmtilega og tilgangslausa forrit og datt í hug að deila uppgötvun minni með lesendum þessa bloggs: Smella hér!
Annars er pabbahelgi hjá mér núna, þannig að ég sit stilltur heima með Mattalíusi og bægi frá mér öllum djammboðum og fresta freistingum fram á næstu helgi.
Fyrir þá Mattaaðdáendur sem ekki hafa séð ævintýri hans á stafrænu vídjói er hægt að smella hér og brosa yfir uppátækjum hans (takið sérstaklega eftir því, svona rétt eftir miðju myndarinnar, þegar hann er næstum dottinn framúr... Hljóðið sem kemur er priceless! -Ath. að ég er samt sem áður mjög feginn að hann datt ekki, engin börn slösuðust við gerð þessarar ræmu).
|
Prófið...
Djö... Ég hafði ekki hugmynd um að við ættum að krassa sneiðmynd í prófinu og rita sögu landsvæðissins. Krassið gekk svona heldur brösulega en hófst að lokum. Myndunarsaga landsvæðissins var hins vegar á þann veg að ef hún stæðist væru trúleysingjar mun fleiri en ella.

Annars áttum við að greina steina sem okkur voru fengnir. Það gekk ágætlega þar til að mér var réttur steinn sem að var svo eðlilegur að það var óeðlilegt. Ég skrifaði að þetta væri steinn, hann væri svartur á litinn og mjög harður... -Varla hægt að fá vitlaust fyrir það? Winking
|
Nýtt lúkk og læti
Svona, er búinn að fikta aðeins við þetta núna... frekar líkt gamla samt. Happy
Með þessu nýja lúkki fylgir sá möguleiki að það er gerlegt að vera með kommentakerfi! Laugh
Sólarhringurinn er alveg gersamlega á hvolfi hjá mér núna... Ég sef allan daginn og vaki allar nætur, kemur sér einkar illa því þá er ég of syfjaður til þess að drullast á æfingar, sný þessu á réttan kjöl á helginni bara.
Fyrsta daginn í skólanum eftir páskafrí rak ég augun í svolítið merkilegt er ég leit á kennarafjarvistatöfluna í anddyrinu: "Jesús"
Skiljanlega hefur hann ekki séð sér fært að mæta eftir eitthvers konar hremmingar í páskafríinu.
Jæja, verklegt próf í jarðfræði... ætla að halda áfram að læra... plagíóklas, ágít, pýróxen, geislasteinn, silfurberg, kalifeldspat.........
|