Blöööh²
14/04/05 18:49
Það var hætt við hótelferðina vegna slakrar mætingar!
Ég hafði einmitt fengið veður af því að fáir ætluðu að láta sjá sig (um 30-40 manns) og hafði því hugsað mér að það yrði fámennt en góðmennt og léttur stemmari, en það var víst of mikið tap að halda þetta fyrir svona fáa. Sennilega er hægt að kenna veggspjöldunum um þetta ásamt hinu hóteldjamminu sem var fyrr á önninni þar sem allir voru læstir inni í herbergjunum sínum og læti. Fólk hefur líklega talið að þetta djamm væri aðeins fyrir útskriftarnema og þar að auki trúað að þetta yrði svipað og síðasta hóteldjamm. En hér var um 18 ára aldurstakmark að ræða, þannig að enginn hefði verið læstur inni neins staðar.
Við 30-40-50 sem keyptum miða fengum þá að fullu endurgreidda ásamt armböndum sem að garantera eins mikið öl og við getum í okkur látið á meðan DJ-Palli spilar fyrir dansi.
Hulda vinkona ætlaði ekki á þetta ball, þannig að hún gaf mér tvö armbönd og asnaðist til þess að festa annað þeirra á mig, þannig að nú á ég inni tvöfalt það áfengi sem að ég get í mig látið... Ég stórefast um að ég taki það allt saman út og bölva því að ég geti ekki losað armbandið og gefið það einhverjum/einhverri skemmtilegum/skemmtilegri. :/
Ég stökk í Þrumuna og Hókus Pókus áðan og trítlaði þaðan út dimmisjón búningi og spark-í-rass geisladiski ríkari. Diskurinn inniheldur Adam F og DJ Fresh mix af lögum eftir Pendulum, Dillinja, Origin Unknown, Baron, DJ Craze, Distorted Minds og Future Prophecies... Allt meira og minna ýturvaxin nöfn úr heimi trommu og bassa tónlistarinnar!

|