Myst IV: Revelation
Ákvað að hætta að spara þennan tölvuleik og klára "síðustu" þrautina í honum, en ég er búinn að eiga þennan leik í yfir tvo mánuði og var kominn á þraut þessa skömmu eftir að ég keypti hann.

Aðra eins grafík hef ég ekki séð í tölvuleik áður, enda þarf 7,4 GB laus á harða disknum til þess að spila hann á fullum hraða.
Ég læt myndirnar tala, en athugið að í leiknum eru þær í fullri skjástærð og í fáránlega hárri upplausn. Þar að auki getur maður snúið sér frjálst til allra átta (180° hring og svo alveg upp og alveg niður) ásamt því að allt umhverfið hreyfist.


Hérna flögra um furðulegar skepnur sem virðast vera eitthvers konar samblanda af sel og stórum fugli. Ég horfði mjög lengi á þá og fylgdist með þeim flögra um, þeir virtust aldrei gera það sama tvisvar. Skýin á himninum hreyfast miðlungshratt og ef vel er að gáð þá vaggar skipsflakið örlítið í öldunum.



Hérna bærast runnarnir um í kvöldgolunni, skýin rétt lalla um himininn og ljósið flöktir lítið eitt og skuggarnir með. Ef maður snýr sér til vinstri og niður þá sér maður vatn bærast og tunglskinið speglast í gárunum. Einstaka sinnum má sjá eldflugur dansa við ljósastaurana og þegar það er dagur getur maður horft á fugla fljúga um í amk. 15 mín áður en þeir gera það sama tvisvar (nennti ekki að horfa lengur en í 15 mín þannig að það gæti liðið mun lengri tími).


Hérna er ung stúlka sem kemur mikið við sögu í leiknum að sýna manni eitthvað merkilegt. Það er minnsta málið að snúa sér einfaldlega undan á meðan hún talar og skoða eitthvað annað. Oftast starði ég niður á fæturna til þess að athuga hvort ég rækist á galla í þrívíddinni (hvort hún virkaði eins og hún stæði virkilega á jörðinni) án árangurs.



Hér bærast trén í vindinum og skýin líða um himininn breytandi birtunni í sífellu... Ég var með stanslausa gæsahúð á meðan ég spilaði þennan leik. :P
|