Myst IV: Revelation
07/11/05 19:26
Ákvað að hætta að spara þennan tölvuleik og klára
"síðustu" þrautina í honum, en ég er búinn að eiga
þennan leik í yfir tvo mánuði og var kominn á þraut
þessa skömmu eftir að ég keypti hann.
Aðra eins grafík hef ég ekki séð í tölvuleik áður, enda þarf 7,4 GB laus á harða disknum til þess að spila hann á fullum hraða.
Ég læt myndirnar tala, en athugið að í leiknum eru þær í fullri skjástærð og í fáránlega hárri upplausn. Þar að auki getur maður snúið sér frjálst til allra átta (180° hring og svo alveg upp og alveg niður) ásamt því að allt umhverfið hreyfist.
Hérna flögra um furðulegar skepnur sem virðast vera
eitthvers konar samblanda af sel og stórum fugli.
Ég horfði mjög lengi á þá og fylgdist með þeim
flögra um, þeir virtust aldrei gera það sama
tvisvar. Skýin á himninum hreyfast miðlungshratt og
ef vel er að gáð þá vaggar skipsflakið örlítið í
öldunum.
Hérna bærast runnarnir um í kvöldgolunni, skýin
rétt lalla um himininn og ljósið flöktir lítið eitt
og skuggarnir með. Ef maður snýr sér til vinstri og
niður þá sér maður vatn bærast og tunglskinið
speglast í gárunum. Einstaka sinnum má sjá
eldflugur dansa við ljósastaurana og þegar það er
dagur getur maður horft á fugla fljúga um í amk. 15
mín áður en þeir gera það sama tvisvar (nennti ekki
að horfa lengur en í 15 mín þannig að það gæti
liðið mun lengri tími).
Hérna er ung stúlka sem kemur mikið við sögu í
leiknum að sýna manni eitthvað merkilegt. Það er
minnsta málið að snúa sér einfaldlega undan á
meðan hún talar og skoða eitthvað annað. Oftast
starði ég niður á fæturna til þess að athuga
hvort ég rækist á galla í þrívíddinni (hvort hún
virkaði eins og hún stæði virkilega á jörðinni)
án árangurs.
Hér bærast trén í vindinum og skýin líða um
himininn breytandi birtunni í sífellu... Ég var
með stanslausa gæsahúð á meðan ég spilaði þennan
leik. :P

|