Æjjjh!!! DÚLLUUUUR!! Laugh
Svo sætar iguana eðlur í fréttunum í dag! Laugh
Hægt er að horfa á fréttina hérna. (myndir af þeim aftast í fréttinni)

Annars er það eina að frétta að ég er nú búinn að vinna á hinum stóra bunka af óopnuðum Andrésblöðum sem stóð við rúmmið mitt. Loksins hafði ég tíma! Laugh
Vel á minnst 23. tölublað var brill! :P

Með einu blaðinu fylgdi ættartréð fræga sem Don Rosa gerði. En það gamla sem ég átti eyðilagðist fyrir löngu svo ég er feginn að fá nýtt, en það er búið að breyta flestum nöfnunum frá því síðast! Sad Sad Sad
|
Draumaheimur Alla
Hann er nokkuð merkilegur skal ég segja þér!
Mig dreymir sárasjaldan... Þ.e.a.s. ég man sárasjaldan hvað mig dreymdi þegar ég drullast til að vakna. En það er sagt að okkur dreymi ALLTAF þegar við sofum. Það var reyndar einu sinni sagt að okkur dreymdi ekki í lit heldur, en það var síðan sannað að það væri þvæla. Draumfarir mínar man ég langoftast þegar ég legg mig á daginn. En drauma sem mig dreymir á næturna hef ég aldrei munað nema þá örfáu sem ég hrekk upp af í svitabaði eða þá sem að endurtaka sig í sífellu nótt eftir nótt.
Slíkan draum dreymdi mig eitt sinn í hálft ár á hverri einustu nóttu, og þegar mig dreymir á nóttunni þá er ég fullkomlega meðvitaður um að mig sé að dreyma. Sú vitneskja opnar vissar gáttir og ég get gersamlega brotið í þeim öll náttúrulögmál. Flogið, látið hluti hverfa, labbað í gegn um veggi og aðrar fyrirstöður, kafað klukkustundum saman án alls útbúnaðs, vaknað og endað drauminn og hafið nýjan þegar mér sýnist og ég á reyndar ennþá eftir að prófa að fara út í geim. Þetta hljómar allt saman rosalega gaman, en ekki í þessum síendurtekna draumi. Draumur þessi átti sér stað úti í etthvers konar grófsendinni, appelsínugulri eyðimörk með röku loftslagi. Blákennd þoka lá þétt yfir henni allri og það eina sem var á öllu svæðinu voru eftirfarandi hlutir:

-Ca. þriggja metra djúpt vatn sem var ekki meira en tíu metrar í þvermál þar sem mest var.
-Járnrör og stokkur úr krómuðu járni voru ofan í vatninu.
-Eins konar áhorfendabekkur var öðru megin við vatnið. Hann virtist vera úr gegnheilum marmara.
-Þrír trébitar gnæfðu yfir vatninu andspænis áhorfendapallinum, þeir virkuðu svona eins og eitthver hefði byrjað á því að gera yfirbyggingu yfir vatnið en aldrei komist lengra en þetta.

Ég prófaði ALLT sem mér datt í hug þarna. Fyrstu skiptin sem mig dreymdi þetta skoðaði ég mig aðeins um svæðið og fór síðan og slappaði af í vatninu og vonast til að eitthvað spennandi gerðist. En ólíkt venjulegum draumum þá gat ég hvorki vakið sjálfan mig né farið í gegn um hluti. Í hvert sinn sem mig dreymdi þennan draum tók draumurinn oft svona tvo daga að líða, jafnvel þótt ég svæfi bara í sex klukkustundir.
-Eftir að vera orðinn leiður á því að hanga þarna á þessu undarlega svæði ákvað ég bara að labba út í þokuna og sjá hvort ég finndi ekki eitthvað þorp eða eitthvað annað til þess að berja augum. Ég labbaði alltaf í svona 10 mín og þá var ég kominn aftur þar sem ég byrjaði... reyndi aftur og gætti þess varlega að labba í beinni línu... það sama skeði, aftur á byrjunarreit.
-Því næst ákvað ég að reyna að fljúga beint upp í loft og sjá hvað himingeimurinn bæri í skauti sér... ég flaug beint upp í þokunni og sá ekkert lengi vel, en síðan sá ég mér til mikils hryllings sama svæðið fyrir ofan mig og það sem ég tókst á loft af! Þetta gerðist sama þótt ég flygi beint upp eða á ská.
-Eftir að fjúga um eins og eitthvað gerpi svo klukkustundum skipti varð ég leiður á því líka. Ákvað ég því að fara að djöflast í krómaða járnadraslinu á botni vatnsinns. Endaði ég á því að grafa skurð meðfram annari leiðslunni sem úr/í stokkinn lá. Þetta hélt mér uppteknum heillengi þar til skurðurinn endaði aftur í stokkinum á sama svæði og sá ég, mér til mikils óhugs, að upphaf skurðarins var þarna hinum megin við vatnið.
-Eftir að hafa setist niður og ruggað mér eins og geðsjúklingur í smá stund fann ég stein og byrjaði að höggva niður einn stauranna, þegar eftir að hann féll gerðist ekkert... ég veit reyndar ekkert við hverju ég var að búast, heh. Steinninn vann ekki á áhorfendabekknum. Sad
-Ég prófaði að klifra upp einn staurinn og henda mér fram af til að sjá hvort ég vaknaði ekki í fallinu eins og maður gerir oftast þegar maður fellur úr talsverðri hæð í draumi, en ég lenti bara og það var allt annað en þægilegt. :/
-Á endanum var ég bara farinn að leika mér í sandinum eða rista eitthvað út í einn af tréstaurunum þangað til ég vaknaði, en þá átti ég eftir að fá að dúsa þarna í ca. 180 skipti í viðbót, oft lengur en í einn dag í senn.
Í dag er ég feginn að vera laus úr þessari andlegu prísund og tek svokölluðum martröðum opnum örmum hvenær sem er. Happy

Það eru sem betur fer liðin nokkur ár síðan síðasti svona draumurinn hélt mér föngnum. Í dag dreymir mér engu að síður undarlega miðað við hvernig ég hugsa. Þetta eru svona ævintýradraumar (fantasy), fullir af göldrum, tröllum, álfum, drekum, einhyrningum, djöflum, jötnum og öðrum álíka kynjaverum. En ég er annars verulega lítið hrifinn af þessum ævintýraheimum öllum saman.
Fyrir svona mánuði síðan dreymdi mig að ég væri eitthver allt annar en ég. "Ég" var greinilega staddur í framtíðinni og allt í kring um "mig" var svona eins og það væri gert með góðri tölvugrafík, þar á meðal "ég" sjálfur. Eitthvern vegin komst "ég" að því að kristalverksmiðja í borginni væri gátt til helvítis og áætluðu starfsmenn hennar heimsyfirráð. "Ég" þurfti að kljást við djöfullegar leðurblökur sem spúðu eldi, andsetið fólk og svo ekki sé minnst á djöflana og "hundana" þeirra sem virkuðu eins og eitthvað slímugt sem klippt var úr Alien kvikmynd. Ég vaknaði áður en draumurinn endaði samt. :/
Núna dreymdi mig að ég vaknaði skyndilega upp í Valhöll og væri þar sá fyrsti nýliði sem þangað hafði komið í nokkurhundruð ár. Ég barðist síðan við víkinga og eitthvað skaðræðis kvikindi sem að fengi meistara HR Geiger til þess að hrylla sig. Þetta kvikindi beit mig síðan í hálsinn eftir frekar einhliða bardaga og vaknaði ég með hjartað í buxunum samstundis. :P
-Ég skrifaði þennan draum nákvæmlega niður og ætla mér að gera stóra myndasögu úr honum þegar ég er búinn að laga hann til aðeins. Kem líklega til með að byrta hana á netinu, kanski fæ ég hana gefna út... hver veit? Winking
|
Tvær aðgerðir á einum degi
Já, ég er ein stór taugahrúga eftir daginn í dag. Annars vegar fór Mattalíusinn minn í hálskirtlatöku og hins vegar fór Elli í sína viðgerð í annað sinn. Báðar aðgerðirnar heppnuðust vel, en Matti virðist vera frekar slappur, enda er svona lagað ekkert djók. Ég kíkti í heimsókn til hans áðan og lék í blöðruleik við hann... Það var erfitt að horfa upp á hann svona sjúskaðan. Ef hann hló, þá fylgdi hóstakast og skeifa á eftir. :S
Ég tolldi reyndar ekki lengi í heimsókn þar sem að ég var bæði uppgefinn eftir síðustu tvær andvökunæturnar og þar að auki er ég með spítalafóbíu og var farinn að svitna og finna fyrir ógleði þarna inni. Mér þykir þetta undarlegt fyrirbæri þessi fóbía mín þar sem hún lætur ekki til sín taka þegar ég er sjálfur lagður inn.

Af Ella er það að frétta að hann slapp loksins undir læknishendur í morgun. Fór ég með hann og átti að skilja hann þarna eftir og sækja hann rétt fyrir lokun. Ég var ekki búinn að staldra við lengi heima við þegar það var hringt í mig af dýralæknastofunni (með sömu hugarangistarafleiðingum og þegar bréfbean hringdi bjöllunni þegar Elli var í síðustu aðgerðinni). Var mér sagt að Elli væri að ganga bersesgang og ómögulegt væri að meðhöndla hann sem stæði. Ég þurfti því að fara aftur til doksa og reyna að róa Ella niður. Það var eiginlega orðið of seint, Elli hafði eygt sprautuna sem honum var ætlað... Einnig hafði hann séð dýralækninn... Þar ofan á hafði hann séð sprautuna í hönd dýralæknisins og nú mátti hann hvorki sjá sprautur né dýralækninn án þess að tapa sér af bræði. Í ofanálag var hundur staddur á stofunni. Hann var sárþjáður greyið og hafði hægt um sig, en Elli var beinstífur af ótta svo það var næstum hægt að halda á honum eins og sleikipinna. Ég sagði þeim að færa hundinn út af stofunni á meðan ég reyndi að róa Ella niður. Það gekk mjöööög hægt, því alltaf þegar læknirinn gekk framhjá að sinna öðrum erindum stífnaði Elli allur upp, því nú hafði hann séð þessa hræðilegu manneskju bæði með hund OG sprautu. Þetta fór fyrst að ganga þegar ég tók upp á því að loka mig inni með honum inni í ljóslausri kompu. Þar róaðist hann fljótt en, eins og áður, trylltist hann við ásjónu doksa. Í komputilraun nr.2 var handklæði brugðið yfir hann og reynt að sprauta hann með deyfilyfinu án þess að hann sæi til, en hann brást harkalega við nálastungunni og aðeins helmingur deyfingarinnar rataði á réttan stað og ég sá varla í úlnliðina á mér fyrir klóri. Komputilraun nr.3 heppnaðist síðan loksinns, en með sömu afleiðingum og í fyrri tilrauninni - Klóriför ofan á klóriför. Hann sofnaði fljótlega eftir það, þó með einstaka rumski og skapofsa, en það leið fljótt hjá. Gumsinu hans var troðið aftur inn og saumað mun betur en í fyrra skiptið svo það ætti að tolla inni í þetta skiptið.
Það sem ég kvíði hins vegar mest fyrir núna er að, vegna þess hve seint ég tók eftir því að allt væri komið út aftur, nú þarf ég að dæla í hann mjúkri olíu á hverjum degi næstu tíu dagana. Þetta fer þannig fram að ég fylli nálarlausa sprautu af olíunni og rek hana því næst upp í, með lof að segja, hans cloaca og dæla öllu þangað inn.... Hef ég á tilfinningunni að lítið muni verða eftir af húð á höndunum á mér eftir tíu daga. En um leið vona ég í guðanna bænum að Elli veikist ekki eftir að hann nær fullri stærð.

"Í guðanna bænum" - Ég hef aldrei velt því fyrir mér áður, en þetta er rammheiðið orðatiltæki, hehe. Winking
|
Ellafregnir og nýr Allatvífari
Af Ella er þetta helst að frétta að hann er sprækur, en hann hefur samt sem áður ekki komist undir læknishendur og hanga þvi öll innyflin ennþá úti. :S
Ég er búinn að endurinnrétta búrið hans með hliðsjón af ástandi hans. Saltvatnslausnarbleytt handklæði á botninum sem er vatnsheldur og ég var búinn að gleyma því... Öll "húsgögnin" hans hafa verið fjarlægð til þess að tryggja að hann tolli þarna niðri og skaði sjálfan sig ekki frekar. Hefði ég fattað þetta fyrr hefði ég ef til vill sparað mér tæpar 30 klukkustundir inni á klósettinu. :/
Hann fer til læknis klukkan 9 í fyrramálið og mun ég láta vita um leið og eitthvað er að frétta eftir það.

Annars gerðust Sigrún og Óskar svo óvinaleg að benda mér á þennan tvífara minn hérna. Fyrir þá sem að geta ekki skoðað svona myndbönd af einhverjum ástæðum geta smellt hérna í staðinn og séð kyrrmynd í staðinn.
Þvert á geð mitt neyðist ég til þess að hleypa þessum unga kjúklingaverksmyðjumanni (Kjúkklingaverskmyðja!?) inn í Allalúkkalæk™ klúbbinn þar sem hann uppfyllir eina inntökuskilyrðið: Að vera líkur mér á einn eða annan hátt. Þar sem hvoki Sigrún né Óskar hafa heyrt mig syngja (fáir hafa heyrt mig syngja) gera þau sér líklega í hugarlund að ég hljómi eitthvað svipað nýja Allalúkkalæk™ klúbbmeðlimnum, en það er alls ekki rétt og vil ég hafa það á hreinu. :P
|
Úff úff úff úff...
Já, það er helst að frétta að þetta opnaðist allt saman aftur hjá Ella kallinum og þar sem allir dýralæknar sem ég veit um eru úti á landi stend ég nú frammi fyrir annari langri nótt inni á klósetti. HVERS VEGNA Í HOPPANDI HELVÍTI GAT ÞETTA EKKI SKEÐ Á PABBAHELGI ÞEGAR ÉG ÞYRFTI HVORT SEM ER AÐ HANGA HEIMA!?!?!?!? -Og hvers vegna þurfti þetta að gerast AFTUR!?!?!? Aumingja Elli! :S -Það hlýtur að vera sárt að hafa innyflin hangandi úti. Sad

Annars fór ég á Nick Warren og skemmti mér alveg konunglega, en tónlistin hans er meiri svona hözzltónlist frekar en danstónlist þannig að ég tolldi ekki lengi þarna inni.
Svo fór ég á víkingahátíðina í gær og þaðan í bæinn. Hátíðin var snilld og ég keypti mér nýjan ekta þórshamar úr silfri, en sá gamli týndist þegar ég var í Selinu og ákvað að fá mér sundsprett í nálægri á með vini mínum og tveimur stelpum... Stelpurnar stálu fötunum okkar áður en við fórum upp úr, en ofan á minni fatahrúgu hvíldi hamarinn. Ég leitaði hans ákaft eftir að við höfðum náð stelpunum og sagt þeim til syndanna, en fann hann aldrei. :/
-En nú er ég kominn með nýjan! Laugh

Jæja, ég þarf að tjékka á Ella... Vona að allt fari vel... Enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum svona lagað oftar en einu sinni, hvorki menn né dýr. :S
|
Jibbííííj!! Laugh
Elli er kominn aftur heim sprækur eins og lækur, hress eins og fress og kátur eins og slátur...
Efnafræðin hjá mér bar árangur, meirihluti líffæranna héldust ósködduð og saumaði doksi fyrir þannig að sagan endurtæki sig ekki. Þeir fáu vefir sem að dóu á meðan á þessu stóð koma til með að falla út á næstu dögum og Elli verður búinn að ná fullum bata mjög fljótlega! Laugh
-Þúsund þakkir til allra þeirra sem að krossuðu alla fingur og tær með mér! Laugh

Annars er það að frétta að þegar Elli var búinn að vera svona tvær og hálfa - þrjár klukkustundir hjá lækninum hringdi dyrabjallan hjá mér... Ég staulaðist dasaður til dyra og tók upp dyrasímann.
"Aðalsteinn?" -Þetta var rödd yfirdýralæknunnar og kaldur hrollur fór um mig. Nú hélt ég að þarna væri hún komin með Ellahræ og vondar fréttir..
"Ég er með sendingu til þín og ég kem henni ekki í póstkassann, geturðu komið niður?" Eitthvað fannst mér þetta nú vera óvarlega orðað hjá henni blessaðri og trítlaði niður undirbúinn undir það versta. Þá kom í ljós við mikin létti að þetta var bara bréfberan, en röddin hennar er alveg eins og hjá yfirdýralæknunni. Hún var að koma með nýja lúkkið á nýja GameBoyinn minn, en þetta lúkk er víst frá því virta vörumerki "Dior".
Núna lítur GameBoy DSinn minn svona út og þykir einkar vígalegur þótt ég segi sjálfur frá. Sá galli er reyndar á gjöf Njarðar að nú lokast vélin ekki almennilega, en það sést varla. Nú er bara spurning hvort maður taki sig ekki til á næstunni og pimpi upp GameCube vélina líka? :P

En núna ér ég sama sem ekkert búinn að sofa síðustu 50 klukkustundirnar og er að spá í að koma mér í ró núna.
|
Fengitími
Já þá er hann Elli kallinn kominn á fyrsta fengitímann sinn. Litli Ellastrákurinn minn vex svo hratt! *sniff* :')
Nú er krílið mitt ekkert nema testósterón og gredda. Og var það einmitt uppspretta einnar annarlegustu anvökunætur minnar. Þannig eru nefnilega mál með vexti að þessi dýr sýna sig fyrir kvendýrunum (og reka burt önnur karldýr af svæðinu sínu) með því að reisa sig upp og veifa gaurnum á sér framan í þær/þá ( ! ). Ennfremur eiga þeir það til að heilsa upp á kvenkyns eigendur sína með því að reisa sig upp, flagga gaurnum og brunda síðan hressilega í allar áttir með tilheyrandi tilþrifum og óhljóðum ( !! ). Þetta eru miklar kynjaverur og djöfull er ég nú feginn að vera strákur núna! :P

En upphaf andvökunæturinnar minnar átti sér stað er Elli sá spegilmynd sína í glerinu á búrinu sínu og nú skyldi sko verja svæðið sitt af hörku! Hann tekur sig því til, reisir sig upp og ætlar að flagga hressilega á "hina" eðluna, en þetta var helst til of hressilegt og með gaurnum fylgdu ýmiss innri líffæri!
Þarna var kominn hluti ristilsins o.fl. nærliggjandi hangandi aftan úr greyinu. Og hann gat ekki dregið þetta aftur inn! Þar sem ég komst ekki að hjá dýralækni fyrr en um 10 daginn eftir þurfti ég að reyna að gera eitthvað í þessu sjálfur í millitíðinni svo ekki hlytist skaði af.
Fyrsta sem ég gerði var að skella honum í bað og athuga hvort það dugði ekki. Jú, eitthvað smá fór þetta inn, en kom svo fljótlega aftur út. Og sýndi hann nú fyrst fram á að hann væri orðinn stór strákur og væri fær um að klifra sjálfur upp úr baðkerinu, á versta tíma... einmitt þegar ég þurfti að halda honum sem lengst þarna ofan í. Því næst tók ég upp á því að setja nýtt vatn í baðkarið og nánast metta það með sykri, en hann mýkir og eykur líkurnar á því að hann nái aftur að rúlla gumsinu inn. Ekki gekk það.
Næsta ráð var vaselínið góða, smyrja gumsið og reyna að pota því inn án þess að beita miklu afli, ef þessi líffæri skemmast þá deyr hann fjótlega ef hann kemst ekki undir læknishendur. Uppskera þessa erfiðis var hvorki meira né minna en allmyndarlegur kúkur í lófanum á mér. Ég virti hann sem snöggvast fyrir mér, þreif á mér hendurnar og lagði höfuðið í bleyti um hvað nú skyldi taka til bragðs.
Ef líffærin myndu þorna mundi vefurinn deyja og setja Ella greyið í lífshættu. Ég varð því að halda þeim rökum þangað til að hann kæmist undir læknishendur, en ekki of rökum því þá þrútna líffærin út og þá get ég líka gleymt því að þau fari aftur inn.
Þetta kallaði á efnafræði... Nú þurfti ég að blanda saltvatn í hárnákvæmum hlutföllum þannig, í einfölduðu máli, að saltið hindraði líffærin í að taka í sig of mikið vatn og vantið hindraði saltið í að þurrka upp líffærin.
Þessari blöndu varð ég síðan eitthvern vegin að halda upp að líffærunum í þá 9 tíma sem eftir voru þangað til að dýralæknir séði sér fært að taka við honum. Þetta gerði ég með því að skella þessi í baðkarið góða og sitja inni á klósetti í níu klukkustundir og passa að Elli færi ekki upp úr eða drykki af vatninu. Ég segi það með sanni að þetta var ein lengsta andvökunótt sem ég hef upplifað. Hékk ég inni á klósettinu eins og illa gerður hlutur með fartölvu í níu klukkustundir, en það hófst. Var Elli meira en lítið piraður þegar hann vaknaði síðan um morguninn skítkaldur og áttaviltur.
Svo var brunað til dýralæknisins. Stelpan í móttökunni hálfdansaði hring eftir hring í kring um mig:
"Rosalega ertu flottuuuur!! Vá hvað þú er ofboðslega sæætur!! Geðveikt fallegur!!"
Fékk mig til þess að gleyma um stund að ég var með Ella á öxlinni. :P
Inni á stofunni var hundur sem að gelti ákaft... ég hef aldrei séð Ella jafnskelkaðan og uppblásinn.
Sem stendur er Elli greyið í tveggja tíma aðgerð þar sem gumsinu verður troðið aftur inn og saumað fast svo þetta endurtaki sig ekki, eða, ef efnafræðin mín misheppnaðist, gumsið verður fjarlægt sem er öllu stærri og hættulegri aðgerð og er óvíst hvort að ég fái hann í hendurnar aftur á lífi. :'(
Ég krossa alla fingur og tær og vona hið besta... Hvernig sem þetta fer á ég eftir að þurfa á áfallahjálp að halda... :S :S :S
|
Ég hlýt að vera þroskaheftur...
Ég fékk bara 5.5 í samræmda stúdentsprófinu í íslensku. Reyndar var ég frekar duglegur að teikna á prófið og ef til vill hefur það dregið mig niður, en ég efast um að prófdómarar gefi mínus fyrir slíkt. -BARA 13 STIG FYRIR RITUN!?!? Kanski maður ætti bara að hætta að skrifa? Heh. :P

Enskuprófið var líka útkrotað og fékk ég 8.0 í því, þannig að annað hvort tala ég betri ensku en íslensku eða ég hef verið með yngri prófdómara í enskuprófinu.

Eftir prófin tvö hafði ég á tilfinningunni að mér hefði gengið mjög svipað í þessum prófum, ef ekki verr í enskunni vegna kvefuðu manneskjunnar fyrir aftan mig. Ég botna hvorki upp né niður í þessu. :/
En ég ætla að hætta að velta mér upp úr þessu, það er ekki eins og ég sé á leiðinni í neina "alvöru" menntun eftir stúdentsprófið.

Maður stritar baki brotnu í tæp sextán ár í stanslausu námi... og hvað fær maður? -Húfu! Og mikið rétt, þetta er engin venjuleg húfa... Setji maður hana upp á sólríkum morgni horfa allir á mann eins og maður sé alger fáviti að setja hana upp án setts tilefnis. Þá vil ég frekar fá gamla sixpensarann minn aftur, hann var bæði flottari, þægilegri og ég gat verið með hann við öll tilefni og ótilefni. Mér líður svona svipað og ef ég réði mig núna til fyrirtækis í vinnu og mundi síðan vinna þar þangað til ég kæmist á eftirlaun og fengi blýant sem ekki er hægt að ydda í kveðjugjöf frá fyrirtækinu...

Annars er lítið að frétta af mér. Ég keypti mér nýjasta Resident Evil leikinn (nr. 4). Ég virðist hafa betri taugar í að spila þennan heldur en fyrri leikina. Prufukeyrði ég leikin með Ella á öxlinni og virtist hann vera að fylgjast grannt með öllu sem gekk á og fann ég vel fyrir því er ég gekk inn i hrörlegt hús þar sem skítugur bóndi gekk til móts við mig. Þegar hann var kominn fjandi nálægt dró hann skyndilega upp skaðræðis hníf og öskraði ónáttúrulega! Ég hélt að Elli greyið yrði ekki sekúndunni eldri. Litla krílinu brá ákaft svo ég setti hann út í glugga og var hann því afar feginn.

Skemmtilegt nýyrði hrökk upp úr mér á MSN í gær: "Ödipusarbólfélagi" Merkingin ætti að skýra sig sjálf. :P
|
Busy Busy....
Allt á milljón hjá mér þessa daganna.
Er að vinna alla virka daga til svona 18-19:00 og svo fer mestur frítíminn í að teikna eða leika mér í nýja Gameboy DSinum mínum. Laugh
Þetta er mjög svo brilliant leikfang, grafíkin er svona la-la, aðeins betri en í gömlu PlayStation, en á móti kemur að full hleðsla endist í allt að tíu tíma og neðri skjárinn er snertiskjár! Hann virkar svona eins og tölvumús þegar maður er t.d. að spila 1.p. skotleiki eins og Metroid. (eins og maður stýrir leikjum eins og counter strike og Quake). Allt annað líf að miða þegar maður er kominn með svona. Happy Svo er þráðlaust internet á honum svo maður geti spilað við hvern sem er á netinu (allt að 16 manns í einu) og síðan er svokallað "local network" á honum sem er þráðlaust og gerir manni kleift að spila við allt að 16 manns í einu sem þurfa að vera innan 20-30 metra radíus frá vélinni. Svo er hljóðnemi á honum og líklega mun koma út leikur eins og sing star eða eitthvað álíka sem að notar hann. Eini leikurinn sem ég hef séð nota hljóðneman hingað til er Project Rub, en þá getur maður slökkt á kertum með því að blása á hljóðnemann, hehe. Happy
Eitthvað fleira kemur til með að vera hægt á þessu litla tæki mínu í framtíðinni. Nintendó skrásetti nýlega vörumerki sem að kallast V-Pocket. Enginn veit nákvæmlega hvað það er, en lógóið er mjög líkt DS lógóinu og margir halda því fram að þar sé á ferð stækkun fyrir DS vélina sem að breytir henni í lófatölvu með einu handtaki. Svo eru einhverjir snjallir Japanir að þróa stykki fyrir DS þannig að hægt sé að glápa á imbann í henni. Laugh

Matti kann að spila á DSinn! Laugh
Miklu einfaldara að spila tölvuspil með snertiskjánnum, hann er ekki orðinn tveggja ára og strax farinn að nördast eins og pabbi gamli, hehe! Winking

Sony er búinn að setja á markað sams konar vél. Hún heitir PSP og er margfalt öflugri en DS vélin. Grafíkin er svona álíka og PlayStation2. Ástæðurnar fyrir því að ég keypti ekki þá vél eru:

Ég var svo spenntur fyrir snertiskjánnum.
DS batteríendingin er MUN betri.
Það er hægt að loka DS svo skjárinn laskist ekki þegar maður er að flakka með hana.
PSP er mun flottari og betri leikjatölva, en hún kostar líka þrefalt meira.

En nóg um leikjatölvur frá mér, ef þú ert ekki sofnaður/sofnuð nú þegar. :P

Annars er að frétta af mér að ég var fenginn til þess að myndskreyta skáldsögu sem mun koma út hér á klakanum og í útlandinu (veit ekki hvar, líklega í USA og Bretlandi o.fl...). Það er búið að renna yfir söguþráðinn með mér og þetta virkar mjög spennandi... Mér skilst að það eigi eftir að gera mynd byggða á þessu líka þannig að það er um að gera að standa sig. Kaupið er í hlutfalli við hvernig bókin selst, og þá erum við að tala um allt frá nokkrum þúsundköllum upp í heilu milljónirnar! -Það væri alls ekki amalegt, en ég ætla ekki að vera að gera mér neinar ofurvonir. Frekar bara að teikna og njóta þess og sjá síðan til hvað gerist. Happy
Aðal áskorunin við þetta verk er teiknistíllinn, en höfundurinn vill svart-hvítar myndir í raunsæjum teiknistíl. Ekki skopmyndir, manga, eða svona Hergé dótarí. Kanski hendi ég eitthverju inn seinna til að monta mig. :P

Svo er búið að vera ágætis djamm á kallinum.
Rewind kvöld Breakbeat.is á miðvikudaginn. Það var rosalegt! Laugh
Afmælisveisla Kristínar á Pravda í gær mjöööög skrautlegt. :P
Techno.is kvöld á Gauknum í gær, ég hef ekki skemmt mér svona rosalega vel lengi lengi! Laugh Laugh Laugh

Svo, laugardaginn 11. júní verður Old Skool kvöld Breakbeat.is á Gauknum!! Laugh -Maggi Lego, Frímann Psycho og Bjössi Brunahani spila fyrir dansi... Þetta getur ekki klikkað...
|