Busy Busy....
04/06/05 15:42
Allt á milljón hjá mér þessa daganna.
Er að vinna alla virka daga til svona 18-19:00 og svo fer mestur frítíminn í að teikna eða leika mér í nýja Gameboy DSinum mínum.
Þetta er mjög svo brilliant leikfang, grafíkin er svona la-la, aðeins betri en í gömlu PlayStation, en á móti kemur að full hleðsla endist í allt að tíu tíma og neðri skjárinn er snertiskjár! Hann virkar svona eins og tölvumús þegar maður er t.d. að spila 1.p. skotleiki eins og Metroid. (eins og maður stýrir leikjum eins og counter strike og Quake). Allt annað líf að miða þegar maður er kominn með svona.
Svo er þráðlaust internet á honum
svo maður geti spilað við hvern sem er á netinu
(allt að 16 manns í einu) og síðan er svokallað
"local network" á honum sem er þráðlaust og
gerir manni kleift að spila við allt að 16 manns
í einu sem þurfa að vera innan 20-30 metra
radíus frá vélinni. Svo er hljóðnemi á honum og
líklega mun koma út leikur eins og sing star eða
eitthvað álíka sem að notar hann. Eini leikurinn
sem ég hef séð nota hljóðneman hingað til er
Project Rub, en þá getur maður slökkt á kertum
með því að blása á hljóðnemann, hehe.
Eitthvað fleira kemur til með að vera hægt á þessu litla tæki mínu í framtíðinni. Nintendó skrásetti nýlega vörumerki sem að kallast V-Pocket. Enginn veit nákvæmlega hvað það er, en lógóið er mjög líkt DS lógóinu og margir halda því fram að þar sé á ferð stækkun fyrir DS vélina sem að breytir henni í lófatölvu með einu handtaki. Svo eru einhverjir snjallir Japanir að þróa stykki fyrir DS þannig að hægt sé að glápa á imbann í henni.
Matti kann að spila á DSinn!
Miklu einfaldara að spila tölvuspil með snertiskjánnum, hann er ekki orðinn tveggja ára og strax farinn að nördast eins og pabbi gamli, hehe!
Sony er búinn að setja á markað sams konar vél. Hún heitir PSP og er margfalt öflugri en DS vélin. Grafíkin er svona álíka og PlayStation2. Ástæðurnar fyrir því að ég keypti ekki þá vél eru:
Ég var svo spenntur fyrir snertiskjánnum.
DS batteríendingin er MUN betri.
Það er hægt að loka DS svo skjárinn laskist ekki þegar maður er að flakka með hana.
PSP er mun flottari og betri leikjatölva, en hún kostar líka þrefalt meira.
En nóg um leikjatölvur frá mér, ef þú ert ekki sofnaður/sofnuð nú þegar. :P
Annars er að frétta af mér að ég var fenginn til þess að myndskreyta skáldsögu sem mun koma út hér á klakanum og í útlandinu (veit ekki hvar, líklega í USA og Bretlandi o.fl...). Það er búið að renna yfir söguþráðinn með mér og þetta virkar mjög spennandi... Mér skilst að það eigi eftir að gera mynd byggða á þessu líka þannig að það er um að gera að standa sig. Kaupið er í hlutfalli við hvernig bókin selst, og þá erum við að tala um allt frá nokkrum þúsundköllum upp í heilu milljónirnar! -Það væri alls ekki amalegt, en ég ætla ekki að vera að gera mér neinar ofurvonir. Frekar bara að teikna og njóta þess og sjá síðan til hvað gerist.
Aðal áskorunin við þetta verk er teiknistíllinn, en höfundurinn vill svart-hvítar myndir í raunsæjum teiknistíl. Ekki skopmyndir, manga, eða svona Hergé dótarí. Kanski hendi ég eitthverju inn seinna til að monta mig. :P
Svo er búið að vera ágætis djamm á kallinum.
Rewind kvöld Breakbeat.is á miðvikudaginn. Það var rosalegt!
Afmælisveisla Kristínar á Pravda í gær mjöööög skrautlegt. :P
Techno.is kvöld á Gauknum í gær, ég hef ekki skemmt mér svona rosalega vel lengi lengi!
Svo, laugardaginn 11. júní verður Old Skool kvöld Breakbeat.is á Gauknum!!
-Maggi Lego, Frímann Psycho og
Bjössi Brunahani spila fyrir dansi... Þetta
getur ekki klikkað...

|