Oh... Magga klukkaði mig! Sad
Nú þarf ég að henda inn 5 staðreyndum um sjálfan mig hingað inn.

1: Ég heiti Alli og ég er litblindur.... -"Hææææææææ, Alliiiiiii!!!!" -Vó! Hvaða fólk er þetta og hvaðan kom það!? o_O

2: Ég er ekki í skóla núna vegna þess að ég veit ekkert hvað ég á af mér að gera. Kemur þetta til með að verða fyrsti skólalausi veturinn minn síðan ég byrjaði á leikskóla.

3: Þegar ég var úti á spáni var ég farinn að hugsa á spænsku... En skildi aldrei orð af því sem ég hugsaði.

4: Mér finnst gott að borða svið.

5: Ég á voðalega bágt með að skrifa 5 staðreyndir um sjálfan mig. :/
|
Tölvunördablogg
Ég skellti mér í Apple búðina vegna þess að tölvan mín var með eitthvað vesin. Þannig voru mál með vexti að ég ætlaði að uppfæra tónlistarforritið mitt í nýjustu útgáfuna, en alltaf þegar ég reyndi þá komu upp villuskilaboð þess efnis að ég yrði fyrst að slökkva á forritinu áður en ég uppfærði það, en sú villa kom alltaf upp hvort sem kveikt var á forritinu eða ekki og hún fór ekki aftur fyrr en slökkt var á tölvunni. Þeir í Apple búðinni brugðu fyrst á það ráð að henda út tónlistarforritinu og reyna aftur... Ekki virkaði það og fór ekki betur en svo að nú, þegar þetta er komið aftur í lag, þarf ég að flokka öll lögin mín 3709 alveg upp á nýtt! Sad

Í leiðinni keypti mér tölvuleik sem að heitir Battlefield eitthvað (ég man aldrei nein ártöl þannig að ég kalla hann bara Battlefield sautjánhundruðogsúrkál). Þetta er svona leikur sem gerist í seinni heimsstyrjöldinni og spilar maður sem hermaður og tekur þátt í öllum helstu orrustunum. Það sem mér finnst skemmtilegast við þennan leik er að maður getur hoppað upp í nánast hvaða farartæki sem er og stýrt því. Allt frá flugvélum niður í kafbáta (það stendur að það séu kafbátar í bæklingnum, en ég hef enn ekki fundið neinn) og oft þarf fleiri en einn til til þess að manna farartækin. Ég stökk náttúrulega strax í netspilunardæmið þar sem margir spila saman og komst samstundis að því að ég þarf á mikilli æfingu að halda ef ég ætla að fara þangað aftur. Þannig að ég tók mig til og kláraði leikinn tvisvar á "easy", einu sinni á "normal" og vantar svo bara eitt borð upp á að klára hann í "hard". Það er svo eitt styrktarleikastig í viðbót sem heitir því óhuggulega nafni "impossible" og er ég ekkert allt of spenntur fyrir því að prófa það. En ég hef á tilfinningunni að allir sem eru að spila þennan leik á netinu geti rústað honum á þessu erfiðleikastigi bókstaflega með augun lokuð.
Það sem angrar mig helst við þennan leik eru hinar og þessar skráðu og óskráðu reglur sem eru settar upp á netinu. Helst er það "No Camping" reglan, en "Camping" þýðir útilega og er tölvuleikjaslangur yfir þá sem að sitja með með leyniskitturiffla á hinum og þessum stöðum og plaffa niður andstæðingana í hrönnum án þess að hreyfa sig mikið. Ekki það að ég sé mikið fyrir að iðka þessa iðju, en þessi leikur er stríðshermir, og í stríði er allt morandi í leyniskittum og mér finnst gaman að þróa með liðsfélögunum plott um hvernig skuli ná leyniskittunum úr fylgsnum sínum. Þessir sömu gaurar og setja þessar relgur og sparka þeim sem brjóta þær leggja síðan skriðdrekum fyrir utan húsin sem maður byrjar í eftir að hafa verið drepinn og skjóta af fallbyssunni inn í þau í gríð og erg þannig að maður er dauður aftur um leið og maður kemst aftur í leikinn. Það finnst mér frekar ætti að vera bannað heldur en útilegurnar.
Einnig hef ég rekist á fleiri undarlegar reglur svo sem að það sé bannað að ráðast á illa útbúnar óvinaherstöðvar með skriðdrekum... Hvað er málið með það!? Á maður að bíða þar til óvinirnir ná sér í skriðdreka og ráðast síðan á herstöðvarnar með sama markmiði og áður? Eða á maður að hoppa út úr skriðdrekanum sínum og ráðast þannig á þær og hætta á að á meðan komi einhver og stelist í skriðdrekann og plaffi mann niður? :S

Ef einhver kannast við þennan leik þá væri gaman að fá leiðbeiningar um hvernig maður á að fljúga þessum bannsettu rellum í leiknum. Ég kann jú að fljúga þessu, en sprengjurnar hjá mér lenda bara þar sem þeim sýnist... er eitthver leið til þess að miða þessu drasli? -Það hlýtur bara að vera, nema netgaurarnir séu bara svona rosalega góðir í að giska. :/
*EDIT*Fann leið til að skipta um sjónarhorn, nú er þetta ekkert mál Winking *EDIT*

Í þessu tölvunördamaraþoni hefur herbergið mitt drappast niður og það hefur sjaldan verið eins mikil óreiða hérna (ekki þessi reglulega óreiða sem er venjulega, heldur óregluleg óreiða). Það er svo skítugt að Elli vill ekki fara út úr búrinu sínu... ÞÁ er kominn tími til að taka til held ég bara. :P

Svo keypti ég mér einnig í leiðinni 1 GB RAM í tölvuna mína. Nú er hún með 1.25 GB RAM í heildina og er mun hraðvirkari á allan hátt fyrir vikið! Laugh

Breakbeat.is, Techno.is og Hiphop.is kvöld á Broadway á laugardaginn eftir 148 klst... Ég þangað! Laugh Laugh Laugh
|
Úff!! Talibana bensínlagið elti mig heim frá Spáni!! o_O
Lag sem var mikið spilað úti á Spáni þótti okkur herbergisfélögunum frekar skondið. Viðlagið var sungið af hópi kvenna og það hljómaði alveg eins og þau væru að segja "Taliban gasoliiiina!!!". Olli þetta miklum vangaveltum um hvort þetta þýddi það sem að þetta hljómaði eins og það þýddi og hvað hefði þá vakið fyrir höfundi lagsins. Var ég alveg búinn að gleyma þessu lagi þar til ég heyrði það allt í einu á Kiss FM fyrr í dag. Þá tóku heilabrotin sig upp aftur og ég unni mér ekki hvíldar fyrr en ég hafði þýtt viðlagið. Komst ég að því að ekki er um að ræða "Taliban gasolina" heldur "dame mas gasolina" eða "gefðu mér bensín".... Varð ég nú að þýða allt lagið til þess að öðlast sáluró á ný og er það gróflega svona:


Hver er þetta?
Da – ddy Yan – kee!
Bættu við mambó svo svkísurnar mínar kveiki á vélunum
Bættu við mambó svo svkísurnar mínar kveiki á vélunum
Bættu við mambó svo svkísurnar mínar kveiki á vélunum

Verði þær tilbúnar til þess að grípa það sem koma skal, Fast!

Elskan, ég veit þú ætlar ekki burt frá mér (Fast!)
Það sem ég fíla er að þú fílar að vera brottnumin (Fast!) [WTF!?]
Hún fer á djammið allar helgar (Fast!)
Gellan mín hættir ekki að tjilla vegna þess að

Hún fílar bensín (gefið mér bensín!)
Hve hún fílar bensín! (gefið mér bensín!) [endurtekið 2x]

Hún kveikir á túrbínunum,
Hún greinir ekki á milli,
Hún missir aldrei af flottri veislu
Hún klæðir sig flott jafnvel til að labba út á næstu götu
Hún lítur svo vel út að jafnvel skuggi hennar passar henni
Hún er morðingi, hún ræður mér
Tjillar í bílum, mótorhjólum og limmóum
Fyllir bensíntankinn hennar með adrenalíni
Þegar hún hlustar á reggaeton í hátalaranum.

Hún fílar bensín! (gefið mér bensín!)
Hve hún fílar bensín (gefið mér bensín!) [endurtekið 2x]

(Yo!) Hér er ég einn af þeim bestu
Taktu því rólega
Á dansgólfinu kalla þeir okkur “morðingjana”
Þú lætur hvern sem er verða ástfangin
Þegar þú dansar við taktin trommanna
Þetta er tileinkað svkísum af öllum litum
Fyrir þær eldri, fyrir þær yngri
Fyrir þær sem eru “meiri refir” [fjótari] en veiðimennirnir
Fyrir konur sem slökkva ekki á vélunum sínum

Það bíður eitthvað eftir þér og mér
Þú skuldar mér eitthvað og þú veist það
Með mér týnist hún
Hún gefur engum reikninga [endurtekið 2x]

Bættu við mambó svo skvísurnar mínar kveiki á vélunum
Bættu við mambó svo skvísurnar mínar kveiki á vélunum
Bættu við mambó svo skvísurnar mínar kveiki á vélunum
Verði þær tilbúnar til þess að grípa það sem koma skal, Fast!

Elskan, ég veit þú ætlar ekki burt frá mér (Fast!)
Það sem ég fíla er að þú fílar að vera brottnumin (Fast!) [uh?]
Hún fer á djammið allar helgar (Fast!)
Gellan mín hættir ekki að tjilla vegna þess að

Hún fílar bensín (gefið mér bensín!)
Hve hún fílar bensín! (gefið mér bensín!) [endurtekið 2x]



Hér er svo upprunalegi textinn fyrir þá sem að vilja rengja þessa þýðingu (kann ekkert í þessu hrognamáli):


Da - ddy Yan- kee !
zumbale mambo pa’ que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa’ que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa’ que mi gata prenda los motores,

Que se preparen que lo que biene es pa que le den, Duro!

Mamita yo se que tu no te me va quitar(duro!)
Lo que me gusta es que tu te dejas llevar (duro!!)
todo los weekenes ella sale a vacilar (duro!!)
mi gata no para de janguiar porque

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina) 2x

Ella prende las turbinas,
No discrimina,
No se pierde ni un party de marquesina,
Se acicala hasta pa’ la esquina,
Luce tan bien que hasta la sombra le combina,
asecina, me domina
janguea en carros, motoras y limosina,
Llena su tanque de adrenalina,
Cuando escucha el reggaeton en la cocina.

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina!) 2x

(yo!)Aqui yo soy de los mejores
No te me ajores
En la pista nos llaman "Los Matadores"
Tu haces que cualquiera se enamore
Cuando bailas al ritmo de los tambores
esto va pa’las gatas de to’colores
Para la mayores, pa’ la menores
Para las que son mas zorras que los cazadores
Pa’ la mujeres que no apagan su motores

Tenemo’ tu y yo algo pendiente,
Tu me debes algo y lo sabes,
Conmigo ella se pierde,
No le rinde cuentas a nadie 2x

zumbale mambo pa’ que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa’ que mi gata prenda los motores,
zumbale mambo pa’ que mi gata prenda los motores,
Que se preparen que lo que viene es pa que le den, Duro!

Mamita yo se que tu no teme va a quitar (Duro!)
Lo que me gusta es que tu te dejas llevar (Duro!)
todos los weekenes ella sale a vacilar (Duro!)
mi gata no para de janguear porque

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina!!) 2x


Er ekki að spyrja að því að eftir að hafa þýtt þetta furðuverk tónlistarinnar er ég enn engu nær því hvað það var sem vakti fyrir höfundinum. Ég vona innilega að þessi reggaeton tónlistarstefna festi ekki rætur hér á landi þar sem trommutakturinn í henni er undantekningarlaust ALLTAF eins í ÖLLUM lögum. Þetta er svona taktur sem stelpur geta hrannast á dansgólfið og dillað sér með kynæsandi magadanstöktum, en strákar líta bara út eins og fávitar á dansgólfinu nema það sé gella utan í þeim til þess að dreyfa athyglinni frá því að þeir eru eiginlega ekkert að dansa.

Mér er nokkuð sama hvernig tónlistarstefna mun prýða skemmtistaðina okkar hérna á klakanum svo lengi sem bæði kynin geta dillað sér við lög úr henni án þess að líta út eins og fávitar og án þess að þurfa að fara í dansnám í hvert sinn sem breytt er um tónlistarstefnu.
|