Og svo er tollurinn að böggast í MÉR!? o_O
opiumstol


Ég rakst á þennan kassa á lagernum úti í vinnu í dag...
"Opium" (stórt og feitletrað!) og svo frá Kína í þokkabót! o_O
Ég stóðst ekki mátið og grandskoðaði innihaldið... Það var dökkhnotulitaður stóll klæddur bycast leðri... og ekki var hann úr ópíumi gerður, en grunsamlegri kassa hefi ég aldrei augum litið, dömur mínar og herrar.

Annars er ég loksins kominn með tölvuna mína í hendurnar aftur! Laugh
Öll gögnin eru enn á henni, en maðurinn á verkstæðinu tilkynnti mér að ég gæti átt von á því að þetta tæki sig upp á ný og ráðlagði mér að kaupa harðan disk og láta setja hann í fyrir samtals tæpar 30.000 kr. Benti ég honum á að tölvan væri einungins eins og hálfs árs og því ætti ábyrgðin enn að vera í gildi: "Nei, ábyrgðin gildir einungis í eitt ár þar sem vélin er skráð á fyrirtæki." (!)

Svo skellti ég mér á Resident Evil: DS fyrir Nintendo DS tölvuna (nýja GameBoy) mína í gær. Þetta er æði! Svo hægt að spila á netinu líka! Laugh
|