Dagur tólf: Stöðvarfjörður - Höfn í Hornafirði
Úúúúúúf!! Ég vaknaði svo slæmur í hálsinum að ég gat bókstaflega ekkert talað. Ég á nú að vera einn af þeim fáu heppnu sem verða næstum aldrei veikir, frábær tímasetning... Ég eyddi morgninum í að spjalla við Frakkana (svona þegar ég gat komið upp orði) á meðan þeir tóku saman og svo lá ég í sólbaði þar til Aggi skreið á fætur. Í gær laumaðist ég upp í lokaðan turn kirkjunnar vanhelgu fyrir forvitnis sakir... Þetta var lokað með tveimur hlerum, þegar ég opnaði fyrsta tók að berast vélarhljóð úr turninum... Ég varð ekkert smá smeikur, enda frekar fríkí, svo manaði ég sjálfan mig upp í að opna efri hlerann... Þarna var allt fullt af tækjum og tólum og alls konar græjum sem þjóna víst þeim tilgangi að halda Stöðfirðingum í góðu GSM sambandi.

Eftir að við vorum báðir komnir í startholurnar ákváðum við að kíkja aðeins til baka og sjá lítið bæjarfélag sem átti að hafa lagst í eyði fyrir löngu. Þetta var fýluferð, það voru einhver fífl búin að skemma bæinn með því að reysa sér splunkunýja sumarbústaði inni á milli húsanna! HVAÐ ER AÐ FÓLKI!? o_O

franskíslverkefnumverndunspítalans
"Fransk-íslenskt verkefni um verndun spítalans 1996" stendur á stóru skilti á húsi þessu... Verkefnið virðist ganga heldur brösulega. :/

papey
Papey við sjóndeildarhringinn ef mér skjátlast ekki.

Við lögðum svo af stað til Hafnar og komum við í Djúpavogi og skelltum okkur á netið þar sem ég gat hent upp síðustu tveim dögum á bloggið o.fl. Það reyndar kostaði 100 kr. að vera á netinu þarna í 10 mín skv stelpunni sem að kom okkur í netsamband... Svo gerði ég upp eftir hálftíma setu, en þá var annar náungi kominn bakvið afgreiðsluborðið.

hótelframtíð
Netkaffihúsið í Djúpavogi.

"hvað varstö lengjeh? - Svona þrjátíöh mínútöhr? Þá, svona fyrir þig get ég reddaðissu á svona þrjúhundruð kall, vinöhr!" Svaka díll hehe.
Annars var lítið að skoða annað á þessari leið nema falleg fjöll og því fórum við svo bara beint strik til Hafnar. Reyndar bar mjög mikið á því á þessum landshluta að fólk æki alveg YFIRNÁTTÚRULEGA HÆGT!! o_O
Það er 90 km hámarkshraði, góður vegur (erfitt að taka framúr samt vegna blindhæða) og fólk ók um á fimmtíu og rásaði til og frá á veginum fyrir framan mann svona til þess að draga úr manni kjarkinn. við lentum í ÞREMUR svona mannöpum á leiðinni frá Djúpavogi til Hafnar. >:-0

Það eru rosalega flott fjöll á þessu landsvæði og ég var sérstaklega hrifinn af einu sem virtist vera að fara að gjósa! o_O

hornfjall
Maður sá skýin myndast og bókstaflega hlaupa yfir fjallið hægra megin. Mjög tilkomumikil sjón!

hallandifjall
The leaning mountain of Ísland.

drangar
Fallegir litir og drangar í þessu fjalli.

En núna fengum við Aggi okkur almennilegt hótelherbergi svona einu sinni, enda öll pokapláss full hér í bæ. Þannig að við sitjum bara og spilum gamla DooM leiki og lepjum bjór í mestu makindum. Happy

-------

Við skelltum okkur svo á krá og kynntumst þar tveimur náungum, annars vegar Hallgrími, eldri maður sem var búinn að fá sér kanski svolítið í glas, en var samt hress og kátur, og hins vegar Loga, 33 ára náungi sem er á leið sinni að ganga frá Reykjavík upp að Kárahnjúkum, þetta er dagur tíu hjá kauða. Við þáðum svo heimboð Hallgríms og héldum til hjá honum þar til við fórum heim að sofa.

hallgrímurlogiarngrímur
Logi og Aggi bera saman bækur sínar, Hallgrímur fylgist spenntur með.

Hér er svo leiðin í dag:
kort12correct
|
Dagur ellefu: Seyðisfjörður - Stöðvarfjörður
Ég finn ennþá lykt af bræddri síld... Sad
Við fórum aftur til Egilsstaða og svo þaðan inn í Mjóafjörð, en þaðan er ég ættaður.

mjóifj
Gamall landgöngubátur frá stríðsárunum. (staddur í Mjóafirði)

Eitt var voða spes á Mjóafirði, fyrir utan það að við sáum engan allan tímann sem við vorum þarna, var það að sjórinn var stútfullur af marglittum. Ef maður horfði út á fjörðinn voru þær óteljandi. Einnig sáum við ofvaxinn krossfisk í höfninni undir bryggjunni, en hann hefur verið svona tæpur hálfur meter í þvermál!

marglittamjóifj
Marglitta í Mjóafjarðarhöfn.

bensínstöðmjóifj
Bensínstöðin á Mjóafirði... Eitthverra hluta vegna var lokað. :/

Svo ókum við inn eftir Mjóafirðinum að skoða þennan foss, en það er alveg ægilegt að standa á brúnni þarna og horfa niður! o_O

mjóifjfoss

Það var farið að rökkva eftir þennan Mjóafjarðarútúrdúr hjá okkur og við héldum því áleiðis til Stöðvarfjarðar. Það var ótrúlega flott að sjá þokuna læðast um í rökkrinu.
spúkí

Þegar við komum lokst til Stöðvarfjarðar beið okkur vanhelg kirkja, en í henni sváfum við ásamt sex frökkum.
vanhelgkirkja
Kirkjan, sem nú er gististaður.

vanhelgakirkja
Inni í kirkjunni vanhelgu.

Sagan er þannig að byggð var ný kirkja á Stöðvarfirði og bauðst þá kona nokkur til þess að kaupa hana. Við því var gengist, kirkjan var afvígð og seld í einkaeign... Samt vilja þeir ekki afvígja Helga Hose.... En ef hann borgar?

Annars fór ég aftur að rölta um bæinn upp úr klukkan eitt um nótt og smellti af nokkrum næturmyndum.

slökkvistöð
Slökkvistöðin á Stöðvarfirði.

húsasund stöðvarfj
Bakvið slökkvistöðina.

gatastöðvarfj
Gatan sem liggur að höfninni.

Svo trítlaði ég niður á höfn og ég hef aldrei séð neitt þessu líkt sem ég sá þegar ég kíkti ofan í vatnið. Þarna syntu hundruðir þúsunda smárra fiska sallarólega við yfirborðið, allir voða samtaka. Þeir voru svona á áð giska um 6-7 cm hver. Það flotta við þetta var hins vegar stærri fiskarnir sem byrtust skyndilega á handahófskenndum stöðum og gleyptu minni fiskanna, við hverja svona árás flúðu næstaddir fiskar, samtaka! o_O
Ég reyndi að taka myndir af þessu um leið og ég náði andanum aftur, en það reyndist erfitt, því bæði var næstum ómögulegt að ná góðum fókus því ekki sá ég fiskana í gegn um linsuna, og svo var allt kolsvart og erfitt að taka óhreyfða mynd af greyunum. En þetta er það besta sem mér tókst að taka af þeim:

fiskaríhöfn
Fiskarnir í Stöðvarfjarðarhöfn.

Hér er svo leiðin sem farin var í dag:
|
Dagur tíu: Vopnafjörður - Seyðisfjörður
Ég held ég hafi aldrei verið eins þunnur á minni stuttu æfi og þegar ég vaknaði í morgun... Og eitthverra hluta vegna angaði ég af bræddri síld! o_O
Ég komst að því að ég er búinn að rústa splunkunýju bremsudiskunum mínum á því að fara Hellisheiðina (eystri), en þar er 18% halli, bugðóttar beygjur, fárviðri, rigning, þoka, glerhálir vegir og þverhnípt niður af vegkantinum.

brimífjarska
Brim í fjarska (tekið ofan af Hellisheiðinni á niðurleiðWinking

Vitaskuld stóð maður á bremsunni allan tímann og við það ofhitnuðu bremsudiskarnir og bjöguðust, þannig að núna þegar ég bremsa þá breytist bíllinn minn í eitthvers konar kynlífstæki fyrir tröll, titrar allur og hristist. Þetta hefur lítil áhrif á aksturinn önnur en að það er óþægilegt að sitja í bílnum þegar ég bremsa.... en ég fer ekkert að hoppa út úr bílnum á 90 frekar en að þola smá víbring og æsta tröllskessu á hælum vor.

Við lögðum af stað í átt að seyðisfirði, en þar á Aggi frænku sem á nánast allan bæinn, fengum okkur hamborgara (eins og alltaf) á Hamborgarabúllu Tómasar á Egilsstöðum og héldum svo áfram för okkar.

lagarfljótsormurinn
Lagarfljótsormurinn...

Við kíktum á Skriðuklaustur, en það lokaði víst þremur mínútum áður en við runnum í hlað þannig að við snerum við, og því miður höfðum við ekki tíma fyrir Kárahnjúka í þetta sinn. Við fórum svo í Seyðisfjörð og fundum frænku Agga, en hún rekur gistiheimili þar í bæ. Ég er ekki alveg viss hvort ég fari með rétt mál, en hún (eða sonur hennar) eiga öll gistipláss bæjarins, en það eru sennilega um sex byggingar. Og nóg var af fólki.... Allt frakkar.
Við Aggi fengum 56% afslátt og frítt heimabakað brauð. Okkur var útvegað gott herbergi á gamla sjúkrahúsinu (einkar krípí og talið vera iðandi af draugagangi). Þarna var drukkið vel og náðum við loksins að klára Tópasflöskuna sem ég keypti á Akureyri, en við komumst snemma að því að henni var ekki hægt að loka eftir að við tókum fyrsta sopann. Því þurfti ég að hafa hana í andlitinu í glasabakkanum alla ferðina (eins vel og það nú lítur út að aka um landið með ýturvaxna, opna áfengisflösku í glasabakkanum í armpúðanum við hliðina á sér. Svo kíkti Rikki í heimsókn til okkar alla leið úr Reyðarfirði og það var spjallað mikið og það var spjallað lengi.

næturspjall
Spjall án flass...

bjartspjall
Spjall með flassi.

Við rápuðum um húsið og fundum tvær leynidyr... sem því miður voru læstar, en við vorum verulega spenntir fyrir kjallaranum og bjuggumst við því að finna gömul lík, drauga og blóðuga hnífa þarna niðri...

spítalakjallari
Kjallarinn!! o_O

En svo var það bara pinkulítið herbergi og svo læstar hurðar í allar áttir. Sad
Kvöldið enduðum við Aggi á því að glápa á mynd sem ég hafði á flakkaranum mínum, en hún ber titilinn "Banned From Television" og ég hugsa að ég hefði alveg getað lifað fullu lífi mjög sáttur án þess að sjá þetta kvikindi. Þarna voru myndir af alls konar alvöru slysum sem náðst höfðu á mynd... Sum þeirra leiddu til dauða eins eða fleiri manneskja sem fyrir komu. En það er samt eitt gott við svona myndir (ég reyni alltaf að finna góðu hliðina) er sá að maður er kanski einhverju nærri varðandi það hvernig maður ætti að bregðast við lendi maður í sömu aðstæðum og stjörnur myndarinnar.

Svo er svona "Hollývúdd" skilti á Seyðisfirði í fjallshlíðinni sem lýsist upp á nóttunni:
seyðisfjörðurskilti
Seyðisvúdd... Hollýfjörður?

Hér er svo grófgerð mynd af dagleiðinni:
korttíu

...SeyðisfjördHur!! :Þ
|
***Viðauki*** Dagur níukommaeinn: Næturlífið á Vopnafirði
Þannig er mál með vexti að við Aggi fáum okkur venjulega ölsopa og röflum eitthvað í hvor öðrum um hitt og þetta eftir að ég hef lokið við að senda inn mína daglegu bloggfærslu. Núna brá svo við að ég ákvað að skella mér út í sígó í miðju emmessennspjalli við Silju og fann þá skringilega lykt....
Lykt þessi hafði boðið okkur velkomna í bæinn fyrr um daginn en ég hafði ekki orð á því í færslunni hér á undan því ég hélt að þetta væri alltaf svona og vildi ekki móðga heimamenn (þótt lykt þessi væri slagæð bæjarinns). En hin raunverulega orsök lyktarinnar er sú að það sprakk hjúds leiðsla í síldarbræðsluverksmyðju bæjarins, en hún er í gangi allan sólarhringinn.

Eftir fyrstu tvær sígópásurnar okkar Agga vorum við hættir að taka eftir þessari lykt þó annað fólk sem átti leið inn á hótelið hefði kúgast, gripið fyrir nefið og röflað. Svo, núna áðan er ég skrapp út í sígó fann ég lyktina skyndilega aftur og ákvað að trítla á stjá með myndavélina mína. Þarna er allt í fullum gangi að nóttu sem degi og hitti ég mann sem ég spurði leyfis um myndatöku í húsnæðinu. Fékk ég góðfúslegt leyfi og kom í ljós að maður þessi héti Svavar og hafði unnið fyrir Bjarndísi frænku mína, en hún hýsti okkur einmitt á Ísafirði sem er svo skemmtilega staðsettur akkúrat hinum megin á klakanum okkar.

lyktin var sterk þarna inni, en vandist fjljótt... en nú getum við Aggi gleymt því að eiga í mannlegum samskiptum í þessum fötum í bili samkvæmt heimakunnum. En ég náði góðum myndum og við lentum á góðu spjalli við strák sem vinnur þarna og heitir Jón Sigurðarson og á og rekur vefinn Vopnafjörður.is <-- smelltu hér til að heimsækja (flottar ljósmyndir af bænum). En við fengum góðfúslegt leyfi til þess að trítla um með myndavélina og smella af af bestu lyst frá þessum herramönnum og hér er hluti afrakstrarins:

vopnasíldarleki
Hér sprakk víst leiðslan og olli lyktinni miklu 2006.

jón og svavar
Jón og Svavar (biður að heilsa Bjarndísi frænku!)

vopnasíldarleiðsl
Hver ætli hafi teiknað planið af þessu apparati? o_O

vopnasíld
Síldarleki (ég finn lyktina þegar ég skrifa þetta)

vopnagull
Vopnafjarðargull.

vopnasíldupp
Og svo kveðjumynd af verksmyðjunni. Happy

Og ég nenni ekki að setja leið næturinnar inn á íslandskort núna þannig að þið verðið að afsaka. Winking
En nú er ég farinn í hátinn.... í síldarbræðstustybbunni sem ekki lengur er úti, heldur inni hjá okkur. o_O
|
Dagur níu: Kópasker - Vopnafjörður
Þvílík gargandi snilld!!! -Það er þráðlaust net á Edduhótelinu sem við erum staddir á! o_O

En alla vega, þegar við vöknuðum á Kópaskeri um tíu leytið var hótelið algerlega tómt. Öll herbergi opin og auð og eigandinn á bak og burt... Svo úti, þoka og rigning og rok... Já, þoka og rok á sama tíma! ... Og allir horfnir! o_O
En eftir að hafa staðið hljóðir í sígóportinu og horft á tómið með rettu í kjaftinum ákváðum við að vera ekkert að spá í þessu og aka af stað. Það var enn verra veður en í gær og verra skyggni svo ekki tók ég mikið af myndum. En þegar við komum í Mývatnssveitina lagaðist veðrið skyndilega þónokkuð (en hitastigið droppaði af sama skapi um 5 gráður frá Kópaskeri). Við skoðuðum Dimmuborgarhraunkirkjuna og það var um það bil allt það sem veðurguðirnir lofuðu okkur að sjá því aftur fór að rigna og blása. (og rétt í þessu datt netið út og ég næ því sennilega ekki að setja þessa færslu inn fyrr en á morgun eða hinn (úh, þetta rímaði!)).


hraun1
Túristar að trítla um Dimmuborgir.

Hraun2
Dimmuborgir...

dimmuborgarkirkjan
Hraunkirkjan í Dimmuborgum.

dimmuborgarkirkjainni
Inni í hraunkirkjunni.

hverasvæði1
Heitur reitur í Mývatnsveit (ath að þessi mynd er í 5% af upprunalegri stærðWinking

Skyndilega dagaði upp fyrir Agga að hann þyrfti að komast í ríkið fyrir kvöldið og fórum við því að rápa um Mývatnssveitina að leita að vínbúð, en fundum ekkert annað en kúluskítsbúrger, sem var ágætur, en þó virkaði hann voða smár í samanburði við franskarnar, sem voru í raun hver um sig svona 1/5 af heilli kartöflu. Eftir matinn var svo brunað því við vildum reyna að komast í ríkið í Vopnafirði sem staddur var í 136 km fjarlægð frá okkur og höfðum við einn og hálfan tíma til stefnu. Þetta taldi ég vera nægan tíma þar til skyndilega tók við malarvegur sem hlykkjaðist um algerlega stefnulaust með ótal blindhæðum og blindbeygjum... svo ekki sé minnst á allar holurnar og sleipu drulluna sem lá yfir þessu öllu saman. Þetta ókum við á morðhraða en stoppuðum þó tvisvar - þrisvar til að taka myndir...

líktogámars
Landsvæðið á leiðinni minnti á myndir frá Mars.

minnisvarðiumdrukknaðasj
Minnisvarði um drukknaða sjómenn á Vopnafirði.

Svo fór að við vorum nærri búnir að drepa okkur margsinnis á þessum vegi til þess að ná tvær mínútur fyrir fimm í ríkið.... Sem reyndist vera lokað... Það var ekki búið að opna ennþá... Svo virðist sem ríkið hérna sé opið frá kl. fimm til sex á virkum dögum og frá fjögur til sex á helgum... En góðu fréttirnar eru að við lifðum þetta af og náðum í ríkið, nú er bara spurningin hvort það sé einhver vopnfirðingur til í að tjútta með okkur á grámollulegu mánudagskveldi. :Þ

aggiverslaíríkinávopnafirði
Hér er Aggi að versla í ríkinu á Vopnafirði.
Eins og sjá má er ríkið hérna voða spes (fyrir utan skringilegan opnunartíma). Hér stendur maður bara við afgreiðsluborð og biður um áfengið sem mann langar í og það er sótt og maður borgar um leið. Voða fansí. :P

Annars er Vopnafjörður alveg yndislega fallegur bær og er vel inni á topp fimm hvað það varðar, jafnvel í þessu soraveðri. Happy

Hér er svo leiðin sem farin var í dag:
kort9
|
Dagur átta: Húsavík - Kópasker (með viðkomu á Raufarhöfn)
Það er drungalegt veður þegar við loks klöngrumst á fætur. Rigning og þoka... Þótt mér þyki þokan að flestu leyti slæm ljósmyndalega séð, þá skreytti hún landið með dásamlegri dulúð. Við kvöddum Önnu og fjölskyldu með þökkum og héldum af stað. Í þokunni úti í íslenskri nátturu þykir mér fá tónlist eins viðeigandi og Boards of Canada og voru þeir því ráðandi í iPodinum í dag. Á milli Húsavíkur og Kópaskers liggur vegur sem Aggi hefur döbbað nafninu Helvíti og ég verð að taka undir með honum, að aka þetta á kaddanum jafnaðist á við að aka eimreið yfir apalhraun.

Aggijökulsá
Aggi, við Jökulsá á fjöllum.

En við komumst þetta með þolynmæði og hálsríg, tókum smávegis rúnt um Kópasker og afréðum svo að sjá Raufarhöfn líka, svona fyrst hvergi fékkst heitur matur á Kópaskeri þar sem bensínstöðin sem þar er stödd skv. Vegahandbókinni 2006 virðist hafa verið brottnumin af geimverum... Eftir stendur lítill kamar og þvottakústaaðstaða.

Kópasker
Kópasker.

Allispakurrúntamelrakkasléttuna
Ég, spakur á rúntinum.

melrakkaþoka
Melrakkasléttan í þokunni.

Á Raufarhöfn var hægt að komast í heitan mat á Hótel norðurljósum og fengum við okkur búrger sem ég set hér með í annað sæti yfir bestu búrgera landsins (annað sætið prýðir einnig staðurinn Kidda Rót sem er á Hveragerði). Við áttum gott spjall við eiganda hótelsins sem sagði okkur skemmtilega sögu af því hvernig kaleikurinn í kirkjunni hafnaði þar, en upp úr 1930 strandaði bátur skammt undan Raufarhöfn og fóru menn um borð og tóku ýmislegt ófrjálsri hendi. Þar á meðal grip nokkurn sem virtist vera skál sem stóð á þremur byssum. Náunginn sem gripinn tók fékk síðan samviskubit og gaf kirkjunni gripinn og var hann notaður sem kaleikur alla tíð síðan og gegnir því hlutverki enn þann dag í dag. Þetta er svo sum ekki í frásögur færandi nema hvað að áhugamaður nokkur um lógó og merki rekur augun í merkilegt tákn á bikarnum og teiknar það upp og sendir út fyrirspurn um hverjum táknið tilheyrði. Fékk hann til baka svar um að þarna væri kominn í leitirnar verðlaunabikar sem veittur er fyrir keppni í skotfimi selfangara í Noregi... Og Raufhefningar hafa sopið seyðið úr honum síðan þá. Ég veit ekki með þá, en mér hefði liðið hálf asnalega við þessa uppgötvun. :P

raufarhöfn
Skammt frá vitanum á Raufarhöfn.

Svo ókum við um og tókum myndir og vonandi verður betra skyggni á morgun og helst betra veður, því það er hérna staður sem mig langar að skoða, en þangað er 45 mín labb (+45 mín til baka + amk klukkustund í að skoða). Þar er að finna eyðibýli sem situr á rifi og sjórinn ber í það og það mun senn hverfa í hafið. Einnig er þar gamalt skipsflak og fleira sem ég mun fá gæsahúð yfir.

eyðibýli1
Annað tveggja eyðibýla sem við fundum út frá leiðbeiningum mannsins á Hótel norðurljósum.

eyðibýli2
Hér er svo hitt eyðibýlið.

eyðibýli2inni
Og svo inni í því.

Rauðinúpur
Hérna er svo Rauðinúpur.... í þoku. :/

En við erum búnir að hreiðra um okkur á Kópaskeri og verðum þar í nótt. Við héldum reyndar að gistiheimilisrekandinn væri að gantast þegar hann sagði að við þyrftum að panta því það væru amk 6 manneskjur á leiðinni plús við Aggi. Nibb, hér eru 6 manneskjur plús við Aggi, öll herbergi í notgun. o_O

Og svo leiðin sem við fórum í dag... Eitthverra hluta vegna er Kópasker ekki á kortinu mínu. Sad
kort8
|
Dagur sjö: Akureyri - Húsavík
Ókey... þetta svefngönguvandamál er farið úr böndunum... Nú vaknaði ég á stúdentagörðunum! o_O
Það er byrjað að rigna og fólk horfir illilega á mig og spyr mig hvort ég hafi komið með rigninguna með mér að sunnan. En sem betur fer styttir upp svo við Aggi förum á bæjarrölt með myndavélina.

Akureyrarleikhús
Leikhúsið á Akureyri.

Við skelltum okkur á hamborgara á stað sem kallast Bautinn. Þetta var hinn fínasti búrger.
Eins og áður hefur verið sagt, þá er Akureyri mjög sérstakur bær. Hann jaðrar við það að flokkast undir íslenska borg hvað stærð varðar, en fólkið er opið og vinalegt eins og annars staðar á landsbyggðinni. Þetta gerir það að verkum að Akureyri hlýtur titilinn auðveldastaðkynnastnýjufólkiöööhmstaðurinn.
Ég hefði alveg verið til í að vera á Akureyri í svona mánuð í viðbót, en tíminn er okkur ekki hliðhollur og við neyddumst því til þess að kveðja þennan fallega bæ í bili.

Við fórum svo smávegis útúrdúr til þess að kaupa okkur ís í Vín, sem að er, að Agga sögn, Eden norðursins. Og ég er ekki frá því að ég tek undir það... En ég neita að taka undir það að ísinn þarna sé eitthvað betri en annars staðar, þótt ekki hafi mér þótt hann slæmur.

aggasvipur
Loksins náði ég zOmGwTF svipnum hans Agga á mynd! Laugh

Við brunum svo til Húsavíkur og landið skartar sínu allrafegursta, þótt einstaka dropi falli á mann stöku sinnum.

akureyri-húsavík
Fallegur regnbogi á milli Akureyrar og Húsavíkur.

Þegar til Húsavíkur er komið tökum við svo smávegis rúnt og kynnum okkur plássið.... Ég kom hingað þegar ég var lítill, en staðurinn er ekki nálægt því að vera eins og mig minnti að hann væri. Það hefur fækkað lítillega höfðatölunni og hnakkar á litlum, japönskum smábílum ýmisst stara úr sér augun eða öskra eitthvað með fingurinn á lofti þegar maður ekur framhjá þeim. Einnig er þetta eini staðurinn sem ég veit um þar sem rúnturinn er ekki ekinn á undir 80 - 130 km. klst... -Hvar er rúntmenningin? -Hvar er lögreglan? o_O

Húsavíkurhöfn2
Höfnin á Húsavík.

Hér á Húsavík eigum við hauk í horni hvað gistingu varðar, hún heitir Anna Soffía og á gæludýraspjallsíðuna Dýraspjall.com. Okkur er tekið opnum örmum er við rennum í hlað... Svo er aftur horft illilega á mig og spurt hvort ég hafi komið með rigninguna með mér að sunnan... :/

Anna státar af allmyndarlegri fylkingu ýmissa gæludýra, og má þar nefna til dæmis: alls konar flotta fiska, salamöndru, þrjár froskategundir, dverghamstra, ástargauk, hund, tvær tegundir af dúfum, lítinn hákarl o.fl.

önnubíbí
Ástargaukurinn.

dúfa
Ein dúfnanna.

Svo var setið og spjallað drykklanga stund áður en við Aggi héldum aftur út að skoða meira.

Húsavíkurhöfn
Höfnin í myrkrinu.

Ég hafði tekið eftir því að það yrði haldið hér ball í kvöld og ákvað að skella mér og fá mér einn bjór og skoða menninguna hér í bæ. Aggi fékkst því miður ekki til að koma með fyrir sitt litla líf. Þótt ég hafi stoppað stutt, þá sé ég ekki eftir því að hafa kíkt á þetta. Tónlistin var reyndar verulega fjarri því að vera mér að skapi, en stemningin var forvitnileg. Staðurinn heitir Gamli Baukur og er greinilega gamalgróinn, og einnig eini skemmtistaðurinn hér í bæ. Þetta leiðir til þess að hér eru allir áhangendur Bakkusar saman komnir um helgar. Rónar, hnakkar, drykkjumenn ungir og gamlir tjúttandi hlið við hlið með bros á vör... Og svo hanga þeir sem ekki fá inn sökum æsku fyrir utan.

gamli-baukur
Gamli - Baukur

Einu tók ég eftir og þótti verulega spes... Þegar tónlist er spiluð af geisladiskum þarna inni kemur stutt pása á eftir hverju lagi fyrir sig og fólk klappar fyrir laginu áður en það næsta byrjar. Stelpurnar hér eru líka mjög fagrar þrátt fyrir þessa lágu höfðatölu. En ég ætla að segja þetta gott í bili og fara í háttinn.

húsavíkurdjamm
Inni á Gamla-Bauk.

Hér er svo leiðin sem við ókum í dag:
kort7
|
Dagur sex: Akureyri
Ég gekk í svefni í nótt... Vaknaði í sófanum í stofunni, en man glöggt eftir því að hafa sofnað á dýnu inni í herbergi. :-/
Við hófum daginn á því að rúnta um bæinn og taka nokkrar myndir og skoða í búðir. Við settumst síðan fyrir utan kaffihús á aðalgötunni og tilfinningin um að ég væri staddur erlendis var enn sterkari en í gær. Það er búið að vera æðislegt veður í dag, 18° hiti, sól og blankalogn.

Akureyri-miðbær
Mér finnst þetta líta út eins og í útlandinu. o_O

Við röltum um bæinn og ég tók nokkrar myndir. Það þægilegasta við Akureyri er að hérna glápa ekki allir hnakkarnir á mann eins og þeir haldi að maður sé frá Mars þegar maður ekur framhjá þeim... En þó var nokkuð um gláp.
Djammið hérna er mjög hresst og alls ekki mikið frábrugðið djamminu heima á mölinni, nema hér er þetta örlítið einlægara þar sem flestir þekkjast eða hafa í það minsta séð flesta aðra áður. Því miður beilaði Dagmar á okkur því hún var að spara sig fyrir Akureyrarmökunina sem verður á morgun, en þá er víst afmæli bæjarins.
Við Aggi fórum á pöbbarölt og litum inn á helstu skemmtistaðina: Sjallann, Amor og Kaffi Akureyri... Sjálfur var ég mest hrifinn af Sjallanum, en Aggi leið ekki slíkan hnakkaskap og héldum við því mest megnis til á Amor þetta kveldið.
Helsti gallinn hér er sá að hér lokar allt klukkan fjögur og ef maður spyr heimamenn hvort eitthvað sé opið til klukkan sex þá rekur sá/sú hin sami/a upp stór augu og spyr á móti hvort maður sé eitthvað verri að vilja tjútta svona lengi. o_O



akureyri1
Smá panorama af Akureyri.

ásta
Ásta, gestgjafinn okkar. Happy

Hér er svo leiðin sem farin var í dag:
kort6
|
Dagur fimm: Sauðárkrókur - Akureyri
Það var nokkuð mikið sjokk að vakna skyndilega í eitthverju herbergi þegar maður man glöggt eftir því að hafa tjaldað kvöldið áður... En svo ryfjaðist kvöldið hratt upp og við Aggi drifum okkur út að ganga frá tjaldinu og finna okkur eitthvað í matinn. Við fengum okkur æti á Kaffi Króki, en þar var ekkert þráðlaust net svo ekki gat ég sett inn bloggið þar.
Við tókum smávegis rúnt um Sauðárkrók og tókum myndir og lögðum svo af stað til Akureyrar. Við fengum smávegis rigningu á leiðinni og stoppuðum því ekkert verulega oft. En þó urðum við að stoppa við Hraundranga og príla upp að honum, taka myndir og leggja okkur í hlíðinni. Eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert hingað til er að hlaupa eins hratt og ég get niður bratta fjallshlíð. Maður fer svona 15 - 20 metra í hverju spori og er á svona sjötíu - áttatíu kílómetra hraða... Hlaupandi! En það er hryllilega erfitt að stoppa. :/
Hraundrangi er flottasta fjallið sem ég hef séð hingað til í ferðinni, en við eigum rúman helming eftir af ferðinni svo ég ætla ekki að segja mikið.

aggiþunnur
Aggi kominn á ról á Sauðárkróki.

sauðárkróksstytta
Minnisvarði um hross (hehe) á Sauðárkróki.

hraundrangi
Hraundrangi.

regn í fjarska
Regn í fjarska.

Á leiðinni til Akureyrar hringdi ég í Dagmar og hún spurði mig hvort við yrðum í bænum á laugardaginn og mæta á Akureyrarvökuna... -"Akureyrarmökun!?" o_O
Ég tek það fram að símasambandið var slæmt og læt það duga sem afsökun fyrir misheyrn minni.

Hér á Akureyri þekkir Aggi sig vel, enda ættaður héðan. Við gistum hjá Ástu ömmu hans.
Sjálfur hef ég komið hingað þegar ég var um átta ára, en þá ókum við nánast beint í gegn um bæinn, enda förinni heitið beint til Húsavíkur.
Við hittum Dagmar og hún sýndi okkur bæinn sinn, en mér finnst ég ekki vera á Íslandi þegar ég er hérna. Þegar ég gekk um aðalgötuna fannst mér ég vera í Danmörku eða eitthvað, það er svona erlendur stemmari hérna.... tjah, og svo það að allt fólk sem maður mætir á leiðinni er að babbla eitthvað random tungumál og sjaldan Íslensku. Þetta er svolítið eins og ef Laugarvegurinn væri tekinn og settur í Kópavoginn. Þetta er bær andstæðna... Við enduðum daginn á því að lepja öl á skemmtistaðnum Amor... og viti menn, staðurinn lítur út eins og Hverfisbarinn, en hefur stemninguna af Celtic...
Eftir lokun grófum við upp gítarinn úr bílnum, settumst á vegkant og sungum nokkur vel valin lög áður en við skelltum okkur í háttinn.

Peningur sem fór í bensín í dag: Núll krónur... og tankurinn er ennþá fullur.

Og meðan ég man, ég er búinn að setja inn nokkrar myndir við bloggfærsluna um fyrsta daginn sem við lögðum af stað.

Að auki má skoða ca. 180° mynd af Hólmavíkurhöfn með því að smella HÉRNA.

Hér er svo leiðin sem var farin í dag:
kort5
|
Dagur fjögur: Ísafjörður - Sauðárkrókur
Jæja, áætlunin var að fara til Siglufjarðar, en við vorum alveg búnir á því eftir alla keyrsluna, enda verulega löng leið. Morðskarðið (Hestakleif) var bara ekkert svo hrikalegt í þetta skiptið, og nú veit ég ekki hvort það hafi verið út af því að við brunuðum það ekki á hámarkshraða svo dekkið yrði ekki flatt, eða einfaldlega vegna þess að önnur leiðin sé auðfarnari en hin... eða bæði.

hestakleif1
Sæluhúsið á Hestakleif

hestakleif2
Inni í sæluhúsinu á Hestakleif

Þessi sdavsdettnínk er til fyrirmyndar:
landeYgendur

Svo fundum við allsvakalega tignarlegt eyðibýli á leiðinni:
vesteyðibýli

Í einum firðinum sem við ókum sáum við svo haförn! Viltan alvöru lifandi haförn... og pirraðan máf að elta hann af ókunnum ástæðum. Ég hefði tekið mynd, en þeir flugu inn í dal og upp fyrir fjall svo ég missti af þeim. Sad

Svo skoðuðum við Hrútafjörðinn, þar er kominn nýr skáli (BrúWinking sem okkur leist ekkert á og fórum á Staðarskála og ekkert múður... Við skoðuðum Borðeyri, sem er mjög lítil og sæt þyrping í Hrútafirðinum og svo kíkti ég á Akurbrekku þar sem ég var í sveit þegar ég var yngri og svo var rétt kíkt á Reyki þar sem ég fór í skólaferðalag með árgangnum mínum í gaggó.

borðeyri
Hús á Borðeyri.

slokkvibill
Slökkvibíllinn á Borðeyri. :Þ

Við stoppuðum örlítið á Blönduósi og ég ákvað að fara upp á brúna yfir Blöndu til að taka myndir... Svo ók trukkur yfir brúna og ég hélt að ég væri að fara að deyja. Brúin titraði ægilega og á tímabili virtist sem hún ætlaði í sundur! o_O
Ég hugsa að ef tveir þungir sendibílar fara samtímis inn á brúna, þá eigi þeir báðir eftir að hafna í Blöndu og brúin með.
blonduos
Mynd tekin ofan af morðbrúnni.

Svo var brunað beint á Sauðárkrók enda birtan farin. Þar var svo slegið upp tjaldi og hafist handa við að vinna á bjórbyrgðirnar okkar. Sauðárkrókur hlýtur hér með titilinn fallegustu stelpur á landinu miðað við höfðatölu (og staðurinn er lúmskt stór). Gallinn við þennan titil er hins vegar sá að strákarnir leggja allt í sölurnar til þess að komast yfir stúlkur þessar... Því hlýtur Sauðárkrókur einnig hinn vafasama titil Hnakkabær Íslands. Fólkið var hins vegar einstaklega vinalegt... Hann er hár, gestrisinn á Sauðárkróki. Eftir að tjaldinu var slegið upp fórum við á myndatökuflipp og slöfruðum í okkur öli og hittum tvo svía, þau Sabina og Andreas. Eftir alla fyrirhöfnina að tjalda, enduðum við á því að gista á Fosshóteli með þeim.

aggisauðfuglur
Aggi í gírnum.

allisauðfuglur
Þessi mynd er stórlega ýkt að öllu leyti. :P

sabina
Hér er Sabina komin alla leið frá Svíþjóð til þess eins að skríða inn í tjald til okkar. o_O

Við settum 3000 kr. á bílinn á Ísafirði og svo 8000 kr. í Staðarskála í Hrútafirðinum... Ég hef aldrei fyllt bílinn áður, kom í ljós að þetta er 80 lítra tankur og ég kemst 700 km (þjóðvegur 1 er 1400 km) á fullum tanki ef ég held mig á malbikuðum vegum og rúnta lítið.

Hér er leiðin sem við fórum í dag (úff! o_O)
kort4,1
|
Dagur þrjú: Ísafjörður
Jæja, þennan daginn hvíldumst við og skoðuðum bæinn og fólkið.
Ég reyndar þurfti að kaupa nýtt dekk á bílinn og svo virtist sem gaurinn á dekkjaverkstæðinu héldi að ég væri einhver ríkur og frægur náungi, því fyrst bauð hann mér "ódýrustu dekkin sín", 55.000 kr. umgangurinn. En svo þegar annað kom í ljós bauð hann mér önnur dekk sem voru líka ódýrust á 44.000 kr. umgangurinn. Hvort heldur sem var, þá skipti ég bara út þessu eina dekki sem á vantaði og mun svo kaupa mér góðan Goodyear umgang þegar ég kem aftur í bæinn... Goodyear hljómar eitthvern vegin betur en Nangonk. Ég tek það samt fram að hefði ég verið ríkur og frægur hefði ég skellt mér á heilan umgang hjá kauða, en þetta er mikill peningur og ellefu dagar eftir af ferðinni.

Meðal þess sem við skoðuðum í dag er:

Neðstakaupstað
ísóneðstikaupstaður

Nýji frændi, púkinn þeirra Dúa og Gróu
Dúi og nýjifrændi

Bíóið, þótt lokað væri
ísafjarðarbíó

Höfnin, sem jafnframt er uppáhalds staðurinn minn í heiminum.
ísafjarðarhöfn

Gamli spítalinn, sem nú er víst bókasafn (mér hefur alltaf þótt þetta óhuggulega drungaleg bygging).
ÍsóGamlispítali

O.fl.

En nú þarf ég að fara að sofa, því á morgun er löng leið framundan yfir þetta hryllilega morðskarð aftur ásamt fleiri torfærum, en þá er það versta að baki og restin er meira og minna malbikuð er út af kjálkanum er komið.

Peningur sem fór í bensín: núll krónur...

Hér er svo, eins og alltaf, kort af leiðinni sem farin var í dag:
kort3
|
Dagur tvö: Búðardalur - Ísafjörður
Úff! Þetta var allsvakalegur dagur og ég hef komist að því að Vestfjarðakjálkinn er "hringferð" út af fyrir sig.
Í gærkveldi eftir að síðasta færsla var skrifuð fórum við Aggi upp í fjall með nokkra bjóra, tónlist og reyk (því ekki mátti reykja á hótelinu sem í raun er skóli og gistum við í stofu 8). Svo var kveðist á í fjallinu fram á svarta nóttina. Þetta varð til þess að við vorum ekki komnir fram úr fyrr en upp úr hádegi og lögðum af stað skömmu síðar. Mann hálfkveið því að skrá sig út af hótelinu þar sem að gaurinn í móttökuni (a.k.a. "Bindisgaurinn") glotti alltaf perralega til okkar og virtist vera búinn að ákveða að við værum samkynhneigðir elskhugar. Ég hef ekkert á móti samkynheigðum, en samt þykir mér óþægilegt að vera álitinn slíkur því sú er raunin ekki.

Svo var lagt af stað út á kjálkann, en þegar við vorum komnir að heiðinni sem við ætluðum yfir spratt skyndilega upp ægilegt skilti: "VARÚÐ: Óbrúaðar ár". Ónei, ekki legg ég í það á mínum bíl, afréðum við því að fara lengri og almennari leið. En ekki leið á löngu þar til það hvellsprakk á vinstra framhjólinu hjá okkur! Það dagaði skyndilega uppi fyrir mér að öll dekkin undir bílnum eru komin á tíma og sennilegt að frekari torfærur gætu leitt til þess að annað dekk springi. Að auki er varadekkið í bílnum mínum átta númerum of lítið (eins og tíðkast hjá mörgum bílaframleiðendum, en á móti kemur að þau eru úr gegnheilu gúmmíi og springa því aldrei og það er viss huggun í þvíWinking og því, þar sem bíllinn er framhjóladrifinn þurfti að taka heilt afturdekk og setja framan á bílinn og setja svo varadekkið undir að aftan og þá kom einkar hjálpsamur og viðkunnanlegur maður frá vegagerðinni okkur til hjálpar með hollráð og aukatjakk. Án hans hjálpar hefði getað farið verulega illa. Maðurinn hjálpsami heitir Sæmundur Kristjánsson og færum við honum enn og aftur okkar bestu þakkir fyrir hjálpina. Í fátinu klikkaði ég hins vegar á því að smella mynd af kauða, þannig að ég byrti bara mynd af Alec Baldvin í staðinn, en það er smá svipur með þeim.

249042~Alec-Baldwin-Posters


Nú þurftum við að fara dágóðan spöl úr leið til þess að láta laga dekkið. Var það gert á Hólmavík, en náunginn sem lagaði dekkið sagði að viðgerðin myndi svona rétt rúmlega fleyta okkur til Ísafjarðar, en þar þyrftum við að kaupa nýtt dekk. Því miður rétt misstum við af galdrasýningunni þar í bæ, en ég náði nokkrum fallegum myndum.
Frá Hólmavík til Ísafjarðar eru 223 km, þetta hljómar ekkert svo hörmulega ef maður horfir framhjá því að þegar ég var á leið aftur í bílinn eftir að hafa skroppið út að taka myndir tók ég eftir því að það var farið að leka hratt úr dekkinu og var það orðið frekar lint. Nú var að duga eða drepast, bókstaflega... Upp 45° brattan, 500 metra háan, sleipan, hlykkjóttan, fimm km langan fjallaveg með dekk sem lekur lofti og er orðið lint. Ef eitthvað færi úrskeiðis hefði bíllinn oltið niður alla fimmhundruð metrana og út í sjó. Aggi greyið sat við gluggann og horfði niður á meðan hann kreysti ýmisst sjálfan sig eða Vegahandbókina (sem nú er löskuð með varanlegu þumalfingurfari). Við komumst þetta þó sem betur fer heilir á höldnu og rétt náðum til Súðavíkur, suddalega tæpir á bæði bensíni og lofti. Það fóru 8.500 kr. á bílinn í dag, en nú er tankurinn vel fullur. Erum við nú búnir að eyða samtals 17.500 kr. í eldsneyti það sem af er ferðarinnar og því yfir hálfnaðir með upphaflegu bensínkostnaðaráætlunina, en svo virðist sem bíllinn eyði 7 lítrum á hundraðið á malbiki, en 32 á hundraðið í mölinni.
aaah2 copy

aaah1


Þegar á Ísafjörð var komið gerði ég skelfilega uppgötvun: Fagginn (bílaferjan) er hættur að ganga þar sem vegirnir eru orðnir svo "góðir" og því neyðumst við til þess að fara "Banaheiði" aftur á miðvikudaginn, þá þó reynslunni ríkari og getum tekið öllu með ró þar sem væntanlega verður ekkert dekkið lekandi lofti á methraða.
En á morgun höldum við kyrru fyrir hér á Ísafirði og heilsum upp á nýja púkan hans Dúa frænda og skoðum okkur um. Á miðvikudaginn verður förinni svo haldið áfram og verður næsta stopp Siglufjörður.

En leiðin í dag var svona:

vestfirdir
|
Hringferðin hafin! -Dagur eitt: RVK - Búðardalur (með viðkomu á stykkishólmi ofl. útúrdúrar)
Jæja maður er loksins kominn út úr bílnum eftir látlaust flakk. Sitjum við hér nú á Eddu hóteli í Laugardal um tíu leitið, netlausir og símasambandslausir.
Upprunalega hugmyndin var að leggja af stað upp úr kl. sex um morguninn en það tafðist alltaf um klst. hér og þar þar til við vorum komnir út úr bænum upp úr kl. tvö. Við tókum auðvitað ekki göngin og var það einstök upplifun að aka Hvalfjörðinn, en hann hef ég ekki ekið síðan Botnsskáli var og hét. Þess vegna var það sérstök upplifun að koma þarna og sjá allt í eyði. Það var ALLT á sínum stað, skúrinn bakvið skálann í klessu og sama draslið í honum og var þegar ég var þarna síðast.
-Nú er svo bara að sjá hvernig forritið sem ég keypti mér um daginn (skeytir saman myndum í panorama eða 360°Winking stendur sig. Ég tók mikið af myndum í dag sem munu verða mjög flottar ef þetta forrit virkar, en annars frekar slappar ef þær þurfa að standa stakar.
Næsta stopp var í Bogarnesi, sem er lúmskt flottur bær ef maður gefur sér tíma í að flakka um hann. Fyrir heppni römbuðum við á fornbílasýningu sem var þarna hjá Hyrnunni. Og vel á minnst, síðast þegar ég fór í Borgarnes, þá var Hyrnan ekki inni í bænum, heldur dálítið úti úr honum á "T" gatnamótum.... núna er Hyrnan sokkin inn í bæinn! o_O

Borgarneskirkja
Kirkjan í Borgarnesi.

Svo var stoppað ýmiss staðar og smellt af og tókum við á okkur stóran krók og fórum hluta af Snæfellsnesi (hefðum farið allt nesið hefði ekki verið fyrir stöðugan mótbyr af tröllvöxnum jeppum með tvíbreið hjóhýsi takandi eina og hálfa akgrein og akandi langt yfir hámarkshraða. Hefði ég verið á Fiat lús, þá hefði ég sogast í kjölsogið þeirra og fylgt með aftur í bæinn.... eða í það minnsta að næsta stoppi. Við flúðum til Stykkishólms en komumst snemma að því að þaðan kom hjólhýsastraumurinn sökum "Danskra Daga" þar í bæ. Ég er enn á því að Stykkishólmur sé einn fallegasti bær landsins. Og vel á minnst, hingað til hafa Hamborgarabúlla Tómasar (RVK) og Kiddarót (Hveragerði) deilt fyrsta sætinu um besta búrger sem ég hef smakkað (fyrir utan búrgerana sem amma grillar), en það toppaði staður nokkur á Stykkishólmi: Narfeyrarstofa. Þetta lítur út fyrir að vera fancy kaffihús, en býður upp á þessa líka svakalegu borgara. Ég á eflaust eftir að gera mér sér ferð á stykkishólm seinna bara til þess að kaupa mér búrger þarna! o_O
Eftir Stykkishólm kom upp smávegis babb í bátinn, því það að Snæfellsnesið væri allt malbikað reyndist lygi og nú var annað hvort að aka 56 km á malarvegi eða snúa við og taka 136 km krók á malbiki. Við ákváðum að taka malarveginn og aka hann lúshægt og jafnvel þótt þetta hafi tekið álíka mikið bensín og tíma og hin leiðin hefði tekið, þá sé ég ekki eftir neinu. Þetta er rosaleg náttúrufegurð þarna! Allar eyjarnar, fjöllin og dalirnir og svo einstaka einmana kirkja plús þeir örfáu sem við mættum sýndu fyrirmyndar tillitssemi (sem og við sjálfir) og hægðu verulega á sér áður en við mættumst. Og svo rúsínan í pylsupottinum; Strandaður dallur utan í einni eyjunni... ég gekk heilllengi til að ná góðu skoti, en byrtan var farin áður en ég komst nógu nálægt og hann féll í skugga eyjarinnar. En ég get prentað myndirnar litlar sem ég tók af honum úr fjarlægð með aðdráttarlinsunni.


Hér að ofan ætti að koma mynd sem þú getur smellt á og hreyft svo músina til að snúa þér... kemur óskýr fyrst en hleðst svo inn. Hægt er að fara nær eða fjær með því að brúka plús og mínus hnappana undir myndinni.

aggifikta
Aggi að fikta í þrífætinum mínum.

aggispeglast
Aggi að spegla sig.

Nú vita flestir að ég ek um á dolitlum bensínhák. Við lögðum af stað með gersamlega tóman tank, settum 6.000 kr. á hann (tankurinn fór upp í 52 lítra) og ókum fyrrnefndar torfærur á því og settum svo 3.000 kr. á hann áður en við ókum malarveginn og erum vel settir með tankinn núna... Þetta er umtalsverð eyðsla, en við keyrðum líka meira í dag en við munum keyra hina dagana + torfærurnar.

vesturl1_asth

En, nú er ég búinn að tappa myndunum af vélinni og inn á tölvuna og ætla að fara að skoða afraksturinn og prófa nýja myndasamskeytunarforritið mitt! Laugh
|
Nóg komið af bulli í bili
Ég ætla að deila með ykkur rólegu lagi sem ég gerði fyrir nokkru síðan er ég hafði lokið við að horfa á nokkrar klippur af sjávar iguana eðlu kafa. Taktinn gerði ég með hreyfingar eðlunar í vatninu í huga, en HÉR má sjá stutta klippu af eðlu kafa (c.a. 500 kb).

Galapagos_marine_iguana_swimming_underwater


Svo er hægt að hlusta á lagið sjálft HÉRNA.

Annars er það að frétta að ég legg af stað í hringferð um landið með Agga félaga á sunnudaginn og tökum við okkur tvær vikur. Gist verður á gistihúsum, hjá ættingjum, í bílnum og í tjaldi eftir því sem við á hverju sinni.
Mun ég taka með mér myndavélina góðu og svo auðvitað fartölvuna mína og 600 GB harða diskinn minn svo ég geti tappað af vélinni jafn óðum (annars fyllist kortið bara á ísafirði og allur hringurinn eftir! o_O ). Ég var að komast yfir skemmtilegt forrit í gær sem gerir mér kleift að taka nokkrar myndir í allar áttir og skella þeim svo saman í eina stóra sem liggur þá í landscape eða í 360° hring. Mun ég vafalaust nota mér þetta óspart í ferðinni.

Það sem ég þarf að taka með mér í ferðina:
-Myndavél og fylgihlutir (hleðslutæki!!!)
-Fartölva og flakkarar (jamm, tek báða hörðu diskana) + hleðsl og fylgidót
-Bíll og fullur tankur
-Tjald
-Farsíma + hleðsl.
-Nintendo DS + hleðsl
-Glás af fötum
-Eitt stykki aggi + hleðsl og fylgihlutir.
-Harðfisk! (maður fer ekki út á land án þess að vera með vænan bita af harðfisk í kjaftinum!)

Er ég að gleima eitthverju?
|
Fyrst fólk er víst að fíla ljóðlistina hjá mér...
Þá ákvað ég að yrkja svokallað "Atómljóð":

BÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚúúúúúúúúúúúúúúúúmmmmmmmmmm!!!!!!!!!!!!!!!! o_O"
|