Hringferðin hafin! -Dagur eitt: RVK - Búðardalur (með viðkomu á stykkishólmi ofl. útúrdúrar)
Jæja maður er loksins kominn út úr bílnum eftir látlaust flakk. Sitjum við hér nú á Eddu hóteli í Laugardal um tíu leitið, netlausir og símasambandslausir.
Upprunalega hugmyndin var að leggja af stað upp úr kl. sex um morguninn en það tafðist alltaf um klst. hér og þar þar til við vorum komnir út úr bænum upp úr kl. tvö. Við tókum auðvitað ekki göngin og var það einstök upplifun að aka Hvalfjörðinn, en hann hef ég ekki ekið síðan Botnsskáli var og hét. Þess vegna var það sérstök upplifun að koma þarna og sjá allt í eyði. Það var ALLT á sínum stað, skúrinn bakvið skálann í klessu og sama draslið í honum og var þegar ég var þarna síðast.
-Nú er svo bara að sjá hvernig forritið sem ég keypti mér um daginn (skeytir saman myndum í panorama eða 360°Winking stendur sig. Ég tók mikið af myndum í dag sem munu verða mjög flottar ef þetta forrit virkar, en annars frekar slappar ef þær þurfa að standa stakar.
Næsta stopp var í Bogarnesi, sem er lúmskt flottur bær ef maður gefur sér tíma í að flakka um hann. Fyrir heppni römbuðum við á fornbílasýningu sem var þarna hjá Hyrnunni. Og vel á minnst, síðast þegar ég fór í Borgarnes, þá var Hyrnan ekki inni í bænum, heldur dálítið úti úr honum á "T" gatnamótum.... núna er Hyrnan sokkin inn í bæinn! o_O

Borgarneskirkja
Kirkjan í Borgarnesi.

Svo var stoppað ýmiss staðar og smellt af og tókum við á okkur stóran krók og fórum hluta af Snæfellsnesi (hefðum farið allt nesið hefði ekki verið fyrir stöðugan mótbyr af tröllvöxnum jeppum með tvíbreið hjóhýsi takandi eina og hálfa akgrein og akandi langt yfir hámarkshraða. Hefði ég verið á Fiat lús, þá hefði ég sogast í kjölsogið þeirra og fylgt með aftur í bæinn.... eða í það minnsta að næsta stoppi. Við flúðum til Stykkishólms en komumst snemma að því að þaðan kom hjólhýsastraumurinn sökum "Danskra Daga" þar í bæ. Ég er enn á því að Stykkishólmur sé einn fallegasti bær landsins. Og vel á minnst, hingað til hafa Hamborgarabúlla Tómasar (RVK) og Kiddarót (Hveragerði) deilt fyrsta sætinu um besta búrger sem ég hef smakkað (fyrir utan búrgerana sem amma grillar), en það toppaði staður nokkur á Stykkishólmi: Narfeyrarstofa. Þetta lítur út fyrir að vera fancy kaffihús, en býður upp á þessa líka svakalegu borgara. Ég á eflaust eftir að gera mér sér ferð á stykkishólm seinna bara til þess að kaupa mér búrger þarna! o_O
Eftir Stykkishólm kom upp smávegis babb í bátinn, því það að Snæfellsnesið væri allt malbikað reyndist lygi og nú var annað hvort að aka 56 km á malarvegi eða snúa við og taka 136 km krók á malbiki. Við ákváðum að taka malarveginn og aka hann lúshægt og jafnvel þótt þetta hafi tekið álíka mikið bensín og tíma og hin leiðin hefði tekið, þá sé ég ekki eftir neinu. Þetta er rosaleg náttúrufegurð þarna! Allar eyjarnar, fjöllin og dalirnir og svo einstaka einmana kirkja plús þeir örfáu sem við mættum sýndu fyrirmyndar tillitssemi (sem og við sjálfir) og hægðu verulega á sér áður en við mættumst. Og svo rúsínan í pylsupottinum; Strandaður dallur utan í einni eyjunni... ég gekk heilllengi til að ná góðu skoti, en byrtan var farin áður en ég komst nógu nálægt og hann féll í skugga eyjarinnar. En ég get prentað myndirnar litlar sem ég tók af honum úr fjarlægð með aðdráttarlinsunni.


Hér að ofan ætti að koma mynd sem þú getur smellt á og hreyft svo músina til að snúa þér... kemur óskýr fyrst en hleðst svo inn. Hægt er að fara nær eða fjær með því að brúka plús og mínus hnappana undir myndinni.

aggifikta
Aggi að fikta í þrífætinum mínum.

aggispeglast
Aggi að spegla sig.

Nú vita flestir að ég ek um á dolitlum bensínhák. Við lögðum af stað með gersamlega tóman tank, settum 6.000 kr. á hann (tankurinn fór upp í 52 lítra) og ókum fyrrnefndar torfærur á því og settum svo 3.000 kr. á hann áður en við ókum malarveginn og erum vel settir með tankinn núna... Þetta er umtalsverð eyðsla, en við keyrðum líka meira í dag en við munum keyra hina dagana + torfærurnar.

vesturl1_asth

En, nú er ég búinn að tappa myndunum af vélinni og inn á tölvuna og ætla að fara að skoða afraksturinn og prófa nýja myndasamskeytunarforritið mitt! Laugh
|