Megabeip ekki megableik lengur...
Ég dundaði mér aðeins meira við hana í vinnunni í dag og ég held að ég sé bara orðinn nokkuð sáttur. Laugh
Stellingin á henni böggar mig reyndar aðeins, en til þess að laga hana, þarf ég nánast að teikna megnið af henni frá grunni og skyggja upp á nýtt og ég er ekki að nenna því. Frekar bara að segja að vegna þess að hún er hálfmennsk og hálfvélræn (sbr. Megaman) þá fari hún létt með að snúa svona upp á sig án óþæginda. :P
Það sem ég gerði var: Lagaði skuggana, eins og ég ætlaði að gera, setti glampa og breytti litnum. Happy



Dadddaaaah!!! Laugh
Reyndar fannst mér hún koma best út í bláum, en sá litur er frátekin af Megaman sjálfum... Annars er minnsta málið að breyta litnum í PhotoShop ef mér snýst hugur.
|
Megabeip! Winking
Já, ég lofaði víst að skrifa um helgina eitthvað.
Ég skrapp á Pendulum á Nösu á föstudaginn og gersamlega dansaði frá mér allt vit þar til staðurinn lokaði. Þetta var rrrrrrrrrrrrrrrooosalegt!!! Eina sem ég er ósáttur við varðandi þetta djamm er að El Hornet byrjaði seint að spila og hætti snemma. Ég var kominn heim um kvöldmatarleytið á laugardaginn og skrapp í sturtu, skipti um föt og fékk mér að narta áður en ég hélt aftur niður á Nösu á árslistakvöld PartyZone. Það djammið sveiflaðist frá því að vera næstum slappt og allt að því að ég skemmti mér næstum meira en á Pendulum kvöldið áður. -Fór allt eftir lagavalinu, en sem betur fer var annað gólf á efri hæðinni sem ég gat alltaf flúið á ef mér þótti tónlistin niðri slæm. Svo tók DJ-Grétar allsvakalega syrpu af yndislega súrri danstónlist og aftur dansaði ég frá mér allt vit fram til lokunar. Að þessu sinni afþakkaði ég nokkur eftirpartý og fór bara rakleiðis heim, enda held ég að þetta hafi bara verið orðið ansi gott. Laugh

Þú, lesandi góður ert ef til vill búin/nn að vera að velta fyrir þér titli þessarar færslu á meðan lestrinum stóð, en hér er ástæðan. Njóttu vel. Winking



Megabeip! Laugh
Eða í raun kvenkyns MegaMan.
Reyndar finnst mér hún vera meira svona Megadúlla heldur en Megabeip hehe.
Ég á eftir að dunda aðeins við skyggingarnar meira, en ég fékk krampa í hendina þegar ég var að klára og varð að hætta. :P
|
Pendulum!!!! Laugh
Ójá!
Þann 20. næstkomandi, á Árslistakvöldi breakbeat.is, á NÖSU mun engin annar en Paul Harding (A.K.A. El Hornet) úr Ástralska DJ-tríóinu Pendulum stíga á svið (lengst til vinstri á mynd)! Laugh



Grúppan var stofnuð 2002 í Ástralíu, en fluttist tilBretlands (eins og sjá má á myndbandinu) 2003. Myndband við lagið Slam

Tónlist þeirra flokkast undir techstep drum 'n bass stefnuna og einkennir flest lögin harðir taktar með lágum suðandi bassalínum ásamt trönsuðu elementi.

Ég setti tímabundið inn lagið Voygager með þeim hérna inn á færsluna svo fólk geti hlustað á fleiri tóndæmi, en frægastir eru þeir fyrir lagið Vault.
|