Dagur þrjú: Ísafjörður
Jæja, þennan daginn hvíldumst við og skoðuðum bæinn og fólkið.
Ég reyndar þurfti að kaupa nýtt dekk á bílinn og svo virtist sem gaurinn á dekkjaverkstæðinu héldi að ég væri einhver ríkur og frægur náungi, því fyrst bauð hann mér "ódýrustu dekkin sín", 55.000 kr. umgangurinn. En svo þegar annað kom í ljós bauð hann mér önnur dekk sem voru líka ódýrust á 44.000 kr. umgangurinn. Hvort heldur sem var, þá skipti ég bara út þessu eina dekki sem á vantaði og mun svo kaupa mér góðan Goodyear umgang þegar ég kem aftur í bæinn... Goodyear hljómar eitthvern vegin betur en Nangonk. Ég tek það samt fram að hefði ég verið ríkur og frægur hefði ég skellt mér á heilan umgang hjá kauða, en þetta er mikill peningur og ellefu dagar eftir af ferðinni.

Meðal þess sem við skoðuðum í dag er:

Neðstakaupstað
ísóneðstikaupstaður

Nýji frændi, púkinn þeirra Dúa og Gróu
Dúi og nýjifrændi

Bíóið, þótt lokað væri
ísafjarðarbíó

Höfnin, sem jafnframt er uppáhalds staðurinn minn í heiminum.
ísafjarðarhöfn

Gamli spítalinn, sem nú er víst bókasafn (mér hefur alltaf þótt þetta óhuggulega drungaleg bygging).
ÍsóGamlispítali

O.fl.

En nú þarf ég að fara að sofa, því á morgun er löng leið framundan yfir þetta hryllilega morðskarð aftur ásamt fleiri torfærum, en þá er það versta að baki og restin er meira og minna malbikuð er út af kjálkanum er komið.

Peningur sem fór í bensín: núll krónur...

Hér er svo, eins og alltaf, kort af leiðinni sem farin var í dag:
kort3
|