Dagur fjögur: Ísafjörður - Sauðárkrókur
24/08/06 17:55
Jæja, áætlunin var að fara til Siglufjarðar, en við
vorum alveg búnir á því eftir alla keyrsluna, enda
verulega löng leið. Morðskarðið (Hestakleif) var bara
ekkert svo hrikalegt í þetta skiptið, og nú veit ég
ekki hvort það hafi verið út af því að við brunuðum
það ekki á hámarkshraða svo dekkið yrði ekki flatt,
eða einfaldlega vegna þess að önnur leiðin sé
auðfarnari en hin... eða bæði.
Sæluhúsið á Hestakleif
Inni í sæluhúsinu á Hestakleif
Þessi sdavsdettnínk er til fyrirmyndar:
Svo fundum við allsvakalega tignarlegt eyðibýli á leiðinni:
Í einum firðinum sem við ókum sáum við svo haförn! Viltan alvöru lifandi haförn... og pirraðan máf að elta hann af ókunnum ástæðum. Ég hefði tekið mynd, en þeir flugu inn í dal og upp fyrir fjall svo ég missti af þeim.
Svo skoðuðum við Hrútafjörðinn, þar er kominn nýr skáli (Brú
sem okkur leist ekkert á og fórum
á Staðarskála og ekkert múður... Við skoðuðum
Borðeyri, sem er mjög lítil og sæt þyrping í
Hrútafirðinum og svo kíkti ég á Akurbrekku þar
sem ég var í sveit þegar ég var yngri og svo var
rétt kíkt á Reyki þar sem ég fór í skólaferðalag
með árgangnum mínum í gaggó.
Hús á Borðeyri.
Slökkvibíllinn á Borðeyri. :Þ
Við stoppuðum örlítið á Blönduósi og ég ákvað að fara upp á brúna yfir Blöndu til að taka myndir... Svo ók trukkur yfir brúna og ég hélt að ég væri að fara að deyja. Brúin titraði ægilega og á tímabili virtist sem hún ætlaði í sundur! o_O
Ég hugsa að ef tveir þungir sendibílar fara samtímis inn á brúna, þá eigi þeir báðir eftir að hafna í Blöndu og brúin með.
Mynd tekin ofan af morðbrúnni.
Svo var brunað beint á Sauðárkrók enda birtan farin. Þar var svo slegið upp tjaldi og hafist handa við að vinna á bjórbyrgðirnar okkar. Sauðárkrókur hlýtur hér með titilinn fallegustu stelpur á landinu miðað við höfðatölu (og staðurinn er lúmskt stór). Gallinn við þennan titil er hins vegar sá að strákarnir leggja allt í sölurnar til þess að komast yfir stúlkur þessar... Því hlýtur Sauðárkrókur einnig hinn vafasama titil Hnakkabær Íslands. Fólkið var hins vegar einstaklega vinalegt... Hann er hár, gestrisinn á Sauðárkróki. Eftir að tjaldinu var slegið upp fórum við á myndatökuflipp og slöfruðum í okkur öli og hittum tvo svía, þau Sabina og Andreas. Eftir alla fyrirhöfnina að tjalda, enduðum við á því að gista á Fosshóteli með þeim.
Aggi í gírnum.
Þessi mynd er stórlega ýkt að öllu leyti. :P
Hér er Sabina komin alla leið frá Svíþjóð til þess eins að skríða inn í tjald til okkar. o_O
Við settum 3000 kr. á bílinn á Ísafirði og svo 8000 kr. í Staðarskála í Hrútafirðinum... Ég hef aldrei fyllt bílinn áður, kom í ljós að þetta er 80 lítra tankur og ég kemst 700 km (þjóðvegur 1 er 1400 km) á fullum tanki ef ég held mig á malbikuðum vegum og rúnta lítið.
Hér er leiðin sem við fórum í dag (úff! o_O)

|