Dagur tvö: Búðardalur - Ísafjörður
Úff! Þetta var allsvakalegur dagur og ég hef komist að því að Vestfjarðakjálkinn er "hringferð" út af fyrir sig.
Í gærkveldi eftir að síðasta færsla var skrifuð fórum við Aggi upp í fjall með nokkra bjóra, tónlist og reyk (því ekki mátti reykja á hótelinu sem í raun er skóli og gistum við í stofu 8). Svo var kveðist á í fjallinu fram á svarta nóttina. Þetta varð til þess að við vorum ekki komnir fram úr fyrr en upp úr hádegi og lögðum af stað skömmu síðar. Mann hálfkveið því að skrá sig út af hótelinu þar sem að gaurinn í móttökuni (a.k.a. "Bindisgaurinn") glotti alltaf perralega til okkar og virtist vera búinn að ákveða að við værum samkynhneigðir elskhugar. Ég hef ekkert á móti samkynheigðum, en samt þykir mér óþægilegt að vera álitinn slíkur því sú er raunin ekki.

Svo var lagt af stað út á kjálkann, en þegar við vorum komnir að heiðinni sem við ætluðum yfir spratt skyndilega upp ægilegt skilti: "VARÚÐ: Óbrúaðar ár". Ónei, ekki legg ég í það á mínum bíl, afréðum við því að fara lengri og almennari leið. En ekki leið á löngu þar til það hvellsprakk á vinstra framhjólinu hjá okkur! Það dagaði skyndilega uppi fyrir mér að öll dekkin undir bílnum eru komin á tíma og sennilegt að frekari torfærur gætu leitt til þess að annað dekk springi. Að auki er varadekkið í bílnum mínum átta númerum of lítið (eins og tíðkast hjá mörgum bílaframleiðendum, en á móti kemur að þau eru úr gegnheilu gúmmíi og springa því aldrei og það er viss huggun í þvíWinking og því, þar sem bíllinn er framhjóladrifinn þurfti að taka heilt afturdekk og setja framan á bílinn og setja svo varadekkið undir að aftan og þá kom einkar hjálpsamur og viðkunnanlegur maður frá vegagerðinni okkur til hjálpar með hollráð og aukatjakk. Án hans hjálpar hefði getað farið verulega illa. Maðurinn hjálpsami heitir Sæmundur Kristjánsson og færum við honum enn og aftur okkar bestu þakkir fyrir hjálpina. Í fátinu klikkaði ég hins vegar á því að smella mynd af kauða, þannig að ég byrti bara mynd af Alec Baldvin í staðinn, en það er smá svipur með þeim.

249042~Alec-Baldwin-Posters


Nú þurftum við að fara dágóðan spöl úr leið til þess að láta laga dekkið. Var það gert á Hólmavík, en náunginn sem lagaði dekkið sagði að viðgerðin myndi svona rétt rúmlega fleyta okkur til Ísafjarðar, en þar þyrftum við að kaupa nýtt dekk. Því miður rétt misstum við af galdrasýningunni þar í bæ, en ég náði nokkrum fallegum myndum.
Frá Hólmavík til Ísafjarðar eru 223 km, þetta hljómar ekkert svo hörmulega ef maður horfir framhjá því að þegar ég var á leið aftur í bílinn eftir að hafa skroppið út að taka myndir tók ég eftir því að það var farið að leka hratt úr dekkinu og var það orðið frekar lint. Nú var að duga eða drepast, bókstaflega... Upp 45° brattan, 500 metra háan, sleipan, hlykkjóttan, fimm km langan fjallaveg með dekk sem lekur lofti og er orðið lint. Ef eitthvað færi úrskeiðis hefði bíllinn oltið niður alla fimmhundruð metrana og út í sjó. Aggi greyið sat við gluggann og horfði niður á meðan hann kreysti ýmisst sjálfan sig eða Vegahandbókina (sem nú er löskuð með varanlegu þumalfingurfari). Við komumst þetta þó sem betur fer heilir á höldnu og rétt náðum til Súðavíkur, suddalega tæpir á bæði bensíni og lofti. Það fóru 8.500 kr. á bílinn í dag, en nú er tankurinn vel fullur. Erum við nú búnir að eyða samtals 17.500 kr. í eldsneyti það sem af er ferðarinnar og því yfir hálfnaðir með upphaflegu bensínkostnaðaráætlunina, en svo virðist sem bíllinn eyði 7 lítrum á hundraðið á malbiki, en 32 á hundraðið í mölinni.
aaah2 copy

aaah1


Þegar á Ísafjörð var komið gerði ég skelfilega uppgötvun: Fagginn (bílaferjan) er hættur að ganga þar sem vegirnir eru orðnir svo "góðir" og því neyðumst við til þess að fara "Banaheiði" aftur á miðvikudaginn, þá þó reynslunni ríkari og getum tekið öllu með ró þar sem væntanlega verður ekkert dekkið lekandi lofti á methraða.
En á morgun höldum við kyrru fyrir hér á Ísafirði og heilsum upp á nýja púkan hans Dúa frænda og skoðum okkur um. Á miðvikudaginn verður förinni svo haldið áfram og verður næsta stopp Siglufjörður.

En leiðin í dag var svona:

vestfirdir
|