Heimatilbúin orðatiltæki og afbakaðir málshættir:
Fall er drambi næst í teygjustökki. - Mjög einhæfur málsháttur. Fólk er yfirleitt frekar montið eftir teygjustökk og talar varla um annað í X-langan tíma.

Lík eru liðin. - Hann er tvíræður þessi. Lík eru bæði liðin (dauð þ.e.a.s.) og liðin (dauð þ.e.a.s.) eru lík. Sbr. beinagrindur eru oft mjög áþekkjanlegar.

Sjaldan fellur steinninn langt frá kveifinni. - Annar sem má víst skilja á tvo vegu, en þó hafði ég þessa merkingu í huga: Kveifin (dugleysinginn) er ekkert allt of sterk og getur því ekki kastað steininum langt. Önnur merking leit dagsinns ljós er kennarinn minn las hann: Kveifin eyðir deginum í að óttast það að eitthvað slæmt muni henda hana og þess vegna hendir hana eitthvað slæmt.

Eins sorp er annars matur. - Bara afbökun á málshættinum "eins dauði er annars brauð." Nema hér er þetta mun einhæfara.

Köld eru stjórnarráð. - Segir sig sjálft. Oft er þjóðin bara tölfræði í augum þeirra.

Sjaldan er ein báran flöt. - Já, ef bára er flöt... er hún þá bára?

Þeir róast sem fiska. - Altént róast ég við það að fiska.

Kalt er grey í harðindum. - Þessi segir sig sjálfur.

Fræ verður furutré - Jafnvel agnarsmátt fræ getur á endanum orðið að tröllvöxnu furutré við réttar aðstæður. Þetta á einnig við um fólk... Djúpt, ekki satt?

Að setja hass í friðarpípuna. - Að þvinga e-rn til samvinnu með bellibrögðum.

Að fægja skjöld e-rs. - Sbr. að halda skildi sínum hreinum, nema þarna er það gert fyrir hönd e-rs annars. "Palli er duglegur að fægja skildi minnihlutahópa" - Það má sem sagt varla minnast á orðin "svartur" eða "hommi" án þess að aumingja Palli taki kipp.

Að róta upp stríðsöxinni. - Andstæðan við að grafa stríðsöxina, þ.e. að egna gamlan óvin upp á móti sér á ný.

Ég vil síðan brúka tækifærið til þess að bægja á brott slúðri og sögusögnum sem að
Tóta hefur víst verið að heyra úr öllum áttum undanfarið þess efnis að ég sé bara kominn á bólakaf í saurlífi og neyslu eiturlyfja. Þetta á ekki við nein rök að styðjast og ég bið fólk eindregið um að gæta tungu sinnar þegar að málum sem þessum er komið!
|