*GEISP!!*
04/04/05 01:04
Sólarhringurinn enn á hvolfi hjá mér... ég vaknaði
núna rétt upp úr miðnætti... Ætli ég nýti ekki tímann
til þess að læra fyrir jarðfræðipróf nr.2. -Nú hef ég
spil uppi í erminni, ég veit nefnilega nákvæmlega
hvað er til prófs, sem getur varla skaðað neinn.
Annars notaði ég kvöldvökur mínar til þess að krassa, fikta í þessari síðu og svo Kláraði ég Metal Gear Solid: The Twin Snakes á stuttum tíma á GeimKjúbinum mínum, en ég hafði spilað hann áður í bernsku PleySteisjón 1 tölvunnar. Þetta er fantagóður leikur, en frekar fljótunninn og með allt of léttum endaköllum ef maður spilar leikinn eins og ég: Standa bara á opnu svæði og drita á vondakallinn og hunsa þegar hann meiðir mann, eða einfaldlega rétt færa sig til hliðar þegar hann gerir eitthvað af sér.
Ég er aftur kominn á fulla ferð á Doodlebug og forvitnir geta skoðað krassið mitt þar með því að smella hérna. Það sem ég er svo hrifinn af við þessa teiknisíðu er að þarna er bara einn litur: svatur, eitt áhald: penni, ein línuþykkt: mjó og ekkert undo eða strokleður. Síðan er líka takmarkað "blek", þannig að maður verður annað hvort að teikna mjög rösklega og/eða vanda vel hvar maður setur línurnar.
Svo er ég búinn að finna lag sem að fer meira í mig en Dragonstea din tei (mér er skítsama hvernig það er stafsett!). Ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir, en það er svona strumpahip-hop lag. Einhver bad-ass rappari böstar rímur hægri-vinstri og inn á milli kemur strumpur og singur: "loooonelyyyyyyyyyyyyy, I am so looooonelyyyyyyyyyyy, blahblahblahblaaaaaahblaaaaah..." o.s.frv. Það er ekki líft inni á skemmtistöðunum fyrir þessu andskotans helvíti. Ég meina, það er altént hægt að dilla sér víð dragonblah din blei, en þetta lag er svo rólegt og leiðinlegt að dansgólfin gersamlega tæmast fyrir utan kanski svona eitt tvö pör sem dansa vals eða vangadans. Ég botna ekkert í plötusnúðunum að láta þennan hausverk á fóninn.

|