Íslenskupróf
Teikn vor'á lofti er ég pældi í prófi,
passlega fast Elli glefsað'í mig.
Dýrið sem ég ald'er bíræfinn bófi
að bíta í hönd þess er brauðfæðir sig.

Barátta mín öll til einskis er runnin
ef aumur sér kennarinn ekki á mér.
Námsmannaloginn er löngu útbrunninn,
lakara hefir þó gengið hjá mér.

Krossa ég fingur ef yrði ég ekki
að einbeita mér að líffræðiprófi.
fíflið hann ég mun heftur í hlekki
ef hangi í tölvu og læri í hófi.

Tvístígandi ég pikka í pennann
með párinu sóa ég tímanum hér.
Kveðja verð ég því kvæðabálk þennan
svo kvikindið bít'ekki höndin'af mér.
|