Litla lirfan ljóta
Ég var að fá Litlu lirfuna ljótu í póstinum!! Laugh Laugh Laugh
Þvílik gargandi snilld hefur ekki komið fyrir mig lengi! -Reyndar hef ég á tilfinningunni að langflestir hafi fengið hana í pósti, en að ég hafi verið einn af þeim langflestu fær mig til að brosa út að eyrum! Laugh

Annars tók ég eftir því, mér til mikils ama og armæðu, að ég þarf að þreyta síðasta prófið mitt að föstudeginum 13. Eins jarðbundinn og ég annars geri mig út fyrir að vera, þá leggst þessi dagsetning einkar illa í mig. :S
|