ARG!!

Yfirvofandi reykingarbann er að fara með mig á taugum. Eins og flestum er kunnugt er líklegt að reykingar á öllum vinnustöðum verði bannaðar árið 2007. Mér finnst allt í lagi að reykingar verði bannaðar á veitingastöðum, hótelum, í verslunum o.fl. en EKKI á kaffihúsum, krám/pöbbum og skemmtistöðum! Fólk sem sækir um vinnu á slíkum stöðum veit að þar kemur til með að verða strompað. Nú þegar eru nokkur kaffihús alveg reyklaus, er það ekki nóg!? Ef þið viljið reyklaus kaffihús og skemmtistaði KOMIÐ ÞEIM Á LAGGIRNAR SJÁLF og snarhættiði að þykjast hugsa fyrir okkur, apakettirnir ykkar!
-Ég vitna í Dennis Lerary: Kaffi var líklega fundið upp af manni sem var að leita að leið til þess að geta verið lengur á fótum og reykt meira.

Þeir sem ekki vilja vera á skemmtistöðum þar sem reykt er ættu ekki að fara inn á skemmtistaði þar sem reykt er, hósta og kveinka sér.
-Einfaldara getur þetta nú ekki orðið.

Tæp 25% þjóðarinnar reykja að staðaldri og á að giska helmingur þeirra Íslendinga er stunda næturlífið reykja, þó ekki nema bara í glasi. Djammið verður ónýtt fyrir öllu þessu fólki, -Hvað vakir fyrir ykkur!? Misstuð þið ástvin í hendur krabbameins og kennið sjálfum ykkur um? Þetta er bara firra! Ég reyki og mun ekki koma til með að kenna neinum öðrum um en sjálfum mér þegar ég fæ krabbamein. -Hvers vegna? Vegna þess að ég er sjálfstæður Íslendingur og hugsa fyrir sjálfan mig! Hugsið þið fyrir ykkur sjálf og látið aðra í friði.
Nú hugsar einhver eflaust: "Allt í lagi, gefum okkur það að helmingur þeirra sem stunda næturlífið reyki, þótt ekki sé nema bara í glasi. Er þá djammið ekki ónýtt fyrir helmingi þjóðarinnar hvort sem er og óhollara í þokkabót?" -Óhollara vissulega, en það er ekki stór hluti þessa fólks sem að lætur reykinn angra sig. Í langMESTA lagi 20%. Af öllum þeim reyklausu manneskjum sem ég þekki eru tvær sem að láta reykinn fara í taugarnar á sér á djamminu, önnur þeirra er með reykingarasma og hin er með ofnæmi fyrir reyknum. Hversu stór hluti þjóðarinnar þjáist af slíku? 5%? 10%?

Og svo næsta skref: Banna reykingar á almanna færi. Neyða alla íslenska reykingamenn til þess að reykja inni hjá sér eða fara í eitthvað skúmaskot þar til ekki er lengur hægt að komast þangað fyrir stubbum. Einnig vil ég benda á það að ef ég er í glasi á röltinu í bænum með rettu í kjaftinum og það kemur lögregluþjónn og ætlar að voga sér að sekta mig þá mun ég hiklaust grípa til ofbeldis. Ég veit vel að ofbeldi mun bara gera illt verra, en mér mun líða mun betur ef ég læt þá hafa fyrir peningunum mínum. Ef kvenlögregluþjónn reynir að sekta mig við sömu aðstæður mun ég leggja á flótta því ég lem ekki kvenfólk.
Þetta eru lög sem ég mun aldrei krjúpa fyrir!

|