ÚBBS!!! o_O
10/12/05 19:37

Úbbosííh! :S
Myndin hér að ofan hefur verið að ganga um veraldarvefinn í ótilgreindan tíma. Á henni er ónefndur menntaskólakennari brosandi út af eyrum með hægri höndina í klofi föngulegs sessunautar á súlustað. Eftir því sem ég best veit hefur umrædd mynd gengið á milli núverandi og fyrrverandi nemenda kennarans um víða veröld. Er þetta einkar óheppilegt fyrir mann í hans stöðu, enda eiga menntaskólakennarar að sýna gott fordæmi.
Samt sem áður er ekkert ólöglegt í gangi þarna. Altjént hef ég ekki heyrt nein lög sem banna sérstökum þjóðfélagshópum að stunda súlustaði öðrum framar. Reyndar eitt atriði sem að gæti verið ólöglegt, en það er snertingin. Ekki er ég viss um hvort þau lög séu bara almenn stefna eða lög en ég hef heyrt að það sé strangt tekið á brotum á þeim reglum sem banna snertingar á sýningargripum. Spurning hvort það hafi orðið eitthver eftirmáli þarna skömmu eftir að smellt var af, en þetta er samt sem áður svartur flekkur í kladda þessa kennara. Ég sendi honum hér með mínar samúðarkveðjur fyrir að vera réttur maður á röngum tíma í vitlausu húsi.
Persónulega er ég lítið fyrir svona staði gefinn, en ég er ekki á móti þeim heldur og finnst að þeir sem stunda þá ættu að fá að hafa sitt einkalíf í friði og því verður mér að spurn: Er almennt leyfilegt að taka ljósmyndir þarna inni?
Fyrir sakir skoðanna minna huldi ég andlitin á myndinni, en þarna eru mun fleiri en bara kennarinn og föruneyti á mynd.
Púkinn í mér verður þó að koma því á framfæri að mér þykir þetta svolítið fyndið, hehe. :P
|