Hann á ammli í daaaag - hann á ammli í daaaaag!!!
Jæja, þá er kjellinn bara skriðinn upp í 22. aldursárið! Orðinn hundgamall bara:

" Aaaah!! Ég er að detta!! -Hvar er stafurinn minn!? o_O "

Ég er búinn að vera að fá afmæliskveðjur á hverjum degi síðan 1. júlí á teiknisíðu nokkurri sem ég stunda mikið. Þannig eru mál með vexti að afmælisdæmið bilaði og ég hef sem sagt núna átt afmæli á hverjum degi í 22 daga þarna. En engar gjafir frá þessu fólki ennþá amk. hehe. :P
Mamma og Gummi bróðir leggja af stað til Spánar á eftir og ég sit því einn að höllinni í tvær vikur, en sjálfur fer ég síðan út til Spánar eftir tvær vikur og kem líklega til með að mæta þeim í flugstöðinni þegar þau koma til baka. Þar sem FB koxaði á útskriftarferðinni ákvað ég að húkka mér far með MS-ingum til Costa Del Sol í staðinn. Dvel ég þar í herbergi með Agga og félögum í tvær vikur í sólinni... Ég er reyndar farinn að kvíða svolítið fyrir þar sem ég er alveg að bráðna í góða veðrinu hérna heima á klakanum. :S
Síðan þegar ég er búinn að fá að grillast þarna úti í eina viku kemur Magga með vinkonum sínum til að krydda spánarferðina mína... Gott að eiga svona vinkonur sem eru tilbúnir til þess að ferðast um heiminn til þess að hitta mann. :P

Líkur eru á því að ég fá "nýja" Cadillacinn minn í dag eða á næstu dögum. -Ekki móðgast stelpur, þetta er frábær árgerð bæði í bílum og fólki! Winking
Ég er að spá í að setja smá græjur í hann. Ekkert áberandi neitt... og ekkert sem að spillir innréttingunni. Bara upp á að fá góða tónlist til að fulkomna rúntinn. Happy

Svo ákvað ég í fyrradag að kaupa mér nýjan leik í Nintendo DS leikjatölvuna mína (nýi gameboyinn). Svona til þess að kíkja á af og til næstu dagana... Leikurinn heitir Another Code: Two Memories og ég festist samstundis í honum og hætti ekki fyrr en ég var búinn að klára hann allan samdægurs. Þótt hann hafi ekki enst mér nógu vel er ég bara nokkuð sáttur við hann... þetta er svona þrautaleikur í anda MYST, fullur af skemmtilegum fídusum. Til dæmis stóð ég í leiknum andspænis rammgerðri járnhurð með glugga á. Undir glugganum var talnalás og þurfti ég að slá þar inn 20 stafa lykilorð sem ég hafði ekki hugmynd um hvað væri. Ég pikkaði eitthvað í þetta og það kom villa... Það giskar ekki nokkur maður á svona kóða. Ég var ekki sáttur við að festast þarna og dæsti "ohhh djö..." -Þegar ég dæsti þá kom MÓÐA Á GLERIÐ á huriðinni í leiknum og þar voru tölustafirnir skrifaðir í móðuna!! Ég átti sem sagt að anda á leikjatölvuna til þess að það kæmi móða svo ég sæi hver kóðinn væri! Þvílíka gargandi snilld hef ég ekki séð fyrr né síðar!!

Daginn eftir fór ég síðan og keypti annan leik sem á víst að endast betur: Tom Clancy's Splinter Cell: Chaos Theory. Ég á enn eftir að prófa mig almennilega áfram í honum, en só far só gúdd. Happy
|