Mér fannst ég verða að hressa mig við...
04/03/06 01:00
...Svo ég ákvað að taka með mér myndavélina út í
vinnu og upphugsa þar eitthvað ráðabrugg til þess að
létta á skapinu í mér.
Eftir að hafa dritað stefnulaust út í loftið í dágóðan tíma kom tækifærið. Atli frændi bað mig um að færa bílinn sinn. Eftir að hafa fært bílinn kom ég til baka í dálitlu flýti og skartaði svona stressblandinum skelfingarsvip (sem var í raun bara til þess að draga athygli Atla frá myndavélinni sem ég beindi að honum). Svo sagði ég Atla að ég hefði læst lyklana inni í bílnum hans og tók svo mynd af svipnum sem hann setti upp:
Athugið að hann er í raun þarna að horfa framan í mig, en sjónarhornið er upp á við þar sem ég hélt myndavélinni svo neðarlega. Ah, og auðvitað læsti ég lyklana ekki í alvörunni inni í bílnum hans.
Annars fékk þessi mynd mig líka til að brosa:
Þarna sést Svandís með myndavél í annari og eitt stykki dauðskelkaðan Ella í hinni. Elli er nefnilega dauðhræddur við myndavélar greyið og þessi stelling sem hann er í þarna er alveg priceless, hehe. Annars fínasta mynd af Svandísi líka.

|