Enn einn óhappadagurinn í vinnunni... :/
13/05/06 00:16
Vinnudagurinn byrjaði á því að ég arkaði inn á lager
til þess að rekast á hjúds hunangsflugu á rúntinum á
gólfinu. Ég hafði það ekki í mér að stíga ofan á
hana, en heldur vildi ég síður hafa hana á lagernum.
Upp hófust miklar framkvæmdir við aðgerð þessa en
þetta hófst samt og kom ég flugunni fyrir í lítilli
fötu sem ég fór svo með út. Flugan var hin rólegasta
allan tímann og reyndi ekki einu sinni að fljúga...
en um leið og ég sleppti henni fyrir utan þá
gersamlega trompaðist kvikindið og elti mig inn
aftur!!! o_O
Ég tók smá hringdans við hana á ganginum og hljóp svo aftur út og hún á eftir mér, en ég snarstansaði í dyrunum og skellti hurðinni og slapp.
...Þá fór flúorpera að blikka á lagernum, ég náði í nýja peru, startara og stærðarinnar járnstiga. Gekk þetta svosum fínt fyrir sig, en um leið og ég var búinn að henda gömlu perunni og gamla startaranum og ganga frá stigaferlíkinu þá fór önnur pera að blikka í versluninni (týpískt!). Aftur þarf ég að töfra fram stigann og drösla honum í gegn um ranghala lagersinns (allt fullt af kössum utan af sófum þar sem nýlega kom sending) og aftur skipti ég um peruna... tók svo stóran rannsóknarrúnt um verslunina til þess að sjá hvort það væru fleiri perukvikindi að djöflast.... svo gekk ég frá stiganum og henti gömlu perunni.... þá fór þriðja peran!!!!!! o_O
Síðar fór svo fjórða peran en þá nennti ég þessu ekki lengur, enda löngu komið út í öfgar og augljóst að ekki var allt með feldu.
Þessu næst fer ég að dunda mér við að tjasla saman einu af sófasettunum í rólegheitunum. Samanstóð sett þetta af einum þriggja sæta sófa og einum tveggja sæta. Byrjaði ég á þeim tveggja sæta og allt gekk fínt þar til ég smellti bakinu á hann (tveggja sæta bakið samanstendur af 2 stykkjum og þriggja sæta af þremur). Hann gapti fyrir miðju (ljótt), þá hafði ég smellt bökunum af þriggja sæta sófanum á tveggja sæta sófann (venjulega skiptir þetta engu máli). Enn og aftur upp hófust miklar framkvæmdir, brölt, tölt og gínstan tanna við að ná bökunum aftur af sófanum, enda var þetta ekki hannað til þess að bara detta af sí svona. Í ferlinu reif ég svo gat á stærð við tennisbolta á rassinn á buxunum mínum... og enn voru eftir 5 klst. í vinnunni. Þegar ég þurfti að afgreiða fólk passaði ég verulega upp á það að snúa bakinu að vegg eða öðru skjóli og hefur þetta eflaust vakið álíka furðu og hefði fólkið séð gatið. :/
Svo kom útkeyrsla, fór ég út til þess að opna sendiferðabílinn og gera allt klárt... Haldiði ekki að helvítis hunangsflugan frá því fyrr um daginn bíði ekki enn fyrir utan í þessum líka þvílíka vígamóð!!! o_O
Aftur hófst hringdansinn ógurlegi þar til ég náði að grípa hana aftur í fötuna (sem ég notaði til þess að koma henn út) og lét hana dúsa þar það sem eftir var vinnudagsinns.
Útkeyrslunni var haldið upp í breiðholt. Sendingin fór til konu nokkurrar og gekk allt eins og í sögu. Þegar ég kom með síðasta stikkið inn þá tekur konan sig til og gargar ógurlega á mig í hálf-reiðilegum tón: "ÞAKKAÐÉR FYRIIIR!!!!!!!!!!!!!!!. Mér brá ákaft og ég horfði furðulega á hana á leiðinni út og lokaði á eftir mér... það var ekki fyrr en seinna að mér var sagt að hún væri heyrnarlaus og hefði því ekki mikla stjórn á raddstyrknum... ég dauðskammaðist mín náttúrulega fyrir augnráðið sem ég gaf henni. :S
Margt annað henti mig í vinnunni þennan daginn, ég er með sár á vinstri sköflunginum og var ég til að mynda alltaf að reka húsgögnin í það....
Á leiðinni heim úr vinnunni gat ég svo ekki stillt mig um að athuga hvort hunangsflugukvikindið væri enn undir fötunni. Kíkti ég varlega og sá að hún hafði sloppið á eitthvern undarlegan hátt og ætlaði að skila fötunni aftur inn á lager. *BZZZZZZZZZZT!!!!!!!!!!!* Flugan hafði verið á hvolfi í botninum á fötunni og flaug beint framan í mig og ég féll aftur fyrir mig í eitthverju spassaviðbragðskasti og náði að flýgja inn, skila fötunni og fór svo aðra leið út og slapp þannig.... vona ég... er orðinn hálfsmeikur við að fara út úr húsi núna. :S

|