SAI SAI SAIIIIIII (djúp rödd) THE SAIIIIIIII.... (/djúp rödd)
Ég er kominn með sai hnífinn minn í hendurnar aftur! Laugh Laugh Laugh
Fagnaðarendurfundir það.
Reyndar mátti ég ekki fá hann aftur án þess að þeir klipptu næstum allt blaðið af honum, en það skiptir litlu, hann er samt ennþá fallegur í slíðrinu.
Undarlegt þótti mér að nú er hnífurinn hættulegri en nokkru sinni fyrr þar sem klippingin myndaði á blaðinu tvö stykki 92° horn í stað hins vel rúnaða og ávala odds sem fyrir var. Er nú hæglega hægt að skera sig á honum ef ekki er varlega farið, eins og ég komst að á leiðini út úr lögreglustöðinni skömmu eftir að hafa fengið hann aftur í hendurnar... Ekki skar ég mig á honum á meðan hann var heill, enda gersamlega ómögulegt, jafnvel fyrir Óhappa-Pésa eins og mig. :/

ÞETTA ERU ASNALEGUSTU LÖG Í HEIMI!!!

Asnalegri en lögin sem kveða á um að ekki megi ganga með belju upp Laugarveginn nema einn maður gangi á undan henni og teymi hana, einn gangi við hlið hennar með hönd á baki hennar og svo loks einn á eftir henni með gott tak á hala hennar.
Asnalegri en lög sem kveða á um að þú gætir sætt lögsóknum og sektum/fangelsisvist ef þú neitar bláókunnugri manneskju um að trítla inn til þín og kúka í klósettið þitt.
Asnalegri en lögin sem kváðu á um að Tyrkir væru hér réttdræpir allt fram til '96 ef ég man rétt.

Eins og áður sagði, þá er hnífurinn nú hættulegri en nokkru sinni fyrr, bara ljótari. Er ég kominn á þá skoðun að þessi lög hafi verið sett í gildi til þess að hindra það að nokkur maður eigi fallegan hníf hér á landi. Vafalítið hefur einhver embættismaðurinn fengið minnimáttarkend og komið þessu í gegn með klækjum og múturgreiðslum. Ég meina, ég get keypt mér forljótan eldhúshníf sem er beittari en öll sverðin í Kill Bill™ til samans, en ég má ekki eiga fallegan, meinlausan skrauthnif fyrr en búið er að "gelda" hann útlitslega séð óháð því hvort hann verði skaðlegri fyrir vikið. Á þessu sviði má lögreglan hoppa upp í sparigatið á sjálfri sér!! Hafiði það farisear og tollheimtumenn!!! Grrrrrrr.... >:@

Hvað fangelsisvistina varðar, þá var það víst bara eitthver innantóm hótun til þess að hræða fólk til þess að borga sektina. Aðspurð tjáði lögreglan mér að ég gæti aldrei fengið að sitja þessa sekt af mér. Til þess að komast í fangelsi út af þessu máli þyrfti ég að ráða mér lögfræðing og bíða þess að réttað yrði yfir mér, á meðan myndu hlaðast up vextir, vaxtavextir og ávextir á sektina mína og myndi málinu líklegast ljúka þannig að ég fengi skilorðsbundið fangelsi og þyrfti að borga sektina ofvöxnu, lögfræðingnum og allan málskostnað... Satt að segja er ég farinn að verða fullsaddur á því að vera í fullri barnapössun af lögreglunni. Þeir gætu altént reynt að gera það rétt fyrst þeir eru að því á annað borð því mér finnst eins og þeir hafi bara klippt framan af hnífnum af illgirni... Allavega sé ég engin önnur rök fyrir þessum barnalegu skemmdarverkum laganna varða.
|