Bloggleti enn eina ferðina...
01/03/05 00:42
Ýmisslegt
hefur á daga mína drifið síðan ég bloggaði síðast.
Ber þar helst að nefna:
Þetta gekk ekki upp hjá okkur Tótu.
Mattalingur fór í kirtlatöku og fékk rör í eyrun.
Ég er kominn á fullt í myndskreytingum á skólablaði FB.
Ég er einnig að hefjast handa við að myndskreyta tvær ljóðabækur.
Ég er búinn að hanna kápu fyrir skemmtilega ljóðabók sem Aggi stendur fyrir.
Ég er búinn að vera að teikna eins og brjálæðingur almennt bara:
Mangagellur og Batmanskvísur VARÚÐ: Nekt
Einnig hef ég verið aktífur við ritlistina eins og sjá má hér fyrir neðan, en þar eru sögurnar "Augun" og "Trölli" á ferð. Augun er spennusaga sem er ekki hentug lestri fyrir ung börn, en Trölli ætti að vera í lagi fyrir yngri kynslóðina. Þó gæti hugsast að ég hafi gengið fulllangt í lýsingunum. Ég fæ það þá bara í hausinn seinna. Mig hreinlega kitlar í fingurna mig langar svo að myndskreyta þær báðar, en ljóðabækurnar og skólablaðið verða í forgangi.
Bíllinn minn er dauðvona. Í alvöru í þetta skiptið. Tjah, annað hvort það eða ég hef bara þau áhrif á fólk sem að situr aftur í að það blotni á rassinum við ásjónu mína. Grunar mig þó heldur að þarna sé bíllinn orðinn ryðgaður í gegn. Hann tórir nú saman á fjórum vel staðsettum trékubbum.
Árshátíðin framundan, farið verður út fyrir borgina og gist á hóteli. Þetta verður sveitt gaman!
Artý fartý húfunni sem ég er alltaf með var stolið um helgina... Eins og staðan er núna þá tel ég ekki líklegt að ég finni hana aftur.
Og að lokum ætla ég að sæma lesendur mína prósa"ljóði(?)":
Er þetta
ljóð?
Eða er þetta
ekki
-ljóð?

|